• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Archives for október 2016

Enska úrvalsdeildin

Manchester United 0:0 Burnley

Magnús Þór skrifaði þann 29. október, 2016 | 24 ummæli

Ótrúlega svekkjandi markalaust jafntefli er niðurstaðan í dag. United gjörsamlega yfirspilaði Burnley en gátu bara ekki komið tuðrunni í netið. Ótrúlega léleg dómgæsla Mark Clattenburg hjálpaði ekki en hann allar stóru ákvarðanirnar voru rangar hjá honum í dag.

Þessi leikur var í rauninni stórfurðulegur. Liðið spilaði virkilega vel og vörnin var traust. Burnley mætti með tvær rútur í dag og lögðu þeim á mjög svo árangursríkan hátt. Það hjálpaði t.d. Tom Heaton að líta út fyrir að vera meira en bara miðlungs markvörður. En það er náttúrulega ekki nýtt að þannig markverðir eigi leiki lífs síns á Old Trafford. Lesa meira

Efnisorð: Ander Herrera Burnley Leikskýrslur Mark Clattenburg Old Trafford 24
Enska úrvalsdeildin

Manchester United tekur á móti Jóa Berg og félögum í Burnley

Magnús Þór skrifaði þann 28. október, 2016 | Engin ummæli

United spilar klukkan 14:00 á morgun sinn þriðja leik á sex dögum. Gengið í þessum leikjum hefur verið afskaplega sveiflukennt. Liðið vann góðan og sannfærandi 4-1 sigur á Fenerbahce þar sem liðið hefði getað og jafnvel átt að skora fleiri mörk. Næsti leikur þar á eftir var 4:0 lestarslysið gegn Chelsea á Stamford Bridge. Eðlilega voru margir þá stressaðir fyrir næsta leik sem var heimaleikur gegn City í EFL bikarnum en liðið átti fína kafla í þeim leik og vann sanngjarnan 1:0 sigur. Lesa meira

Efnisorð: Burnley Upphitun 0
Lesefni

Djöfullegt lesefni: 2016: 16

Magnús Þór skrifaði þann 27. október, 2016 | Engin ummæli

Af nógu er að taka í lestrarpakka vikunnar.

Leikmenn

Football Fan Zone skrifaði um Jesse Lingard og hvernig stuðningsmenn líta á unga leikmenn þessa dagana

Memphis ræddi um stöðu sína við fjölmiðla í landsleikjahléinu

Luke Shaw ræðir aðeins um andrúmsloftið í klefanum, danssýki Paul Pogba og grínarann Zlatan

Hver elskar ekki Juan Mata?

Tímabilið er líklega búið hjá James Wilson

Phil Neville og Jamie Carragher tala um hversu mikill lykilleikmaður Juan Mata er að verða fyrir United Lesa meira

0
Enska deildarbikarkeppnin

Manchester United 1:0 Manchester City

Halldór Marteins skrifaði þann 26. október, 2016 | 18 ummæli

Það voru margir sem óskuðu þess að sjá Mkhitaryan byrja leikinn gegn Manchester City. En það var ekki í spilunum. Ekki aðeins var Mkhitaryan utan byrjunarliðs heldur var hann ekki einu sinni í hópnum. Og það þrátt fyrir að hafa sést með leikmannahópi Manchester United sem stimplaði sig inn á Lowry hótelið fyrir leik. Svo hafi hann ekki náð að meiðast með einhverjum hætti á hótelinu þá getur maður ekki annað en velt fyrir sér hvort það sé hreinlega eitthvað í gangi með Mkhitaryan og hvort Mourinho treysti honum ekki til að spila. Vonandi er það ekki málið en þetta er farið að líta grunsamlega út. Lesa meira

Efnisorð: EFL Cup Leikskýrslur Manchester City 18
Enska deildarbikarkeppnin

Stór leikur í lítilli keppni – Manchester City kemur aftur í heimsókn

Halldór Marteins skrifaði þann 25. október, 2016 | 9 ummæli

Klukkan 19:00 annað kvöld fer fram óvenju þýðingarmikill leikur í annars heldur þýðingarlítilli keppni þegar nágrannarnir í Manchester City koma í heimsókn á Old Trafford. Þótt báðum liðum sé líklega nokk sama um EFL bikarinn sem slíkan þá munu þau samt koma inn í þennan leik í leit að langþráðum sigri. Stjórarnir eru undir pressu, leikmenn þurfa að stíga upp, það hefur verið að safnast upp pirringur meðal stuðningsmanna liðanna, blöðin hafa kjamsað á óförum síðustu vikna (reyndar töluvert meira United megin) og hlátrasköll stuðningsmanna annarra liða, sem velta sér upp úr hæðnisfullri Þórðargleði, bergmála í eyrunum. Nú er tíminn til að draga fram sokkaskúffurnar og korktappana, nú er tíminn til að byrja að svara almennilega fyrir sig. Það er komið að næsta stóra prófi Manchester United, endurtektarprófi gegn ljósbláklæddum leikmönnum Pep Guardiola. Bring it on! Lesa meira

Efnisorð: Manchester City Pep Guardiola Upphitun 9
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress