• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska úrvalsdeildin

Bournemouth kemur í heimsókn

Runólfur Trausti skrifaði þann 3. mars, 2017 | 3 ummæli

Eftir frækinn sigur gegn Southampton síðustu helgi í úrslitum EFL bikarsins þá fengu okkar menn heila sex daga án þess að spila leik. Jaðrar það við þriggja mánaða sumarfrí fyrir liðið enda hefur það spilað tvo leiki á viku síðan nýja árið gekk í garð, svona nánast.

Eftir ævintýrið síðustu helgi þar sem Zlatan fór enn einu sinni fyrir liðinu þá tekur alvaran í deildinni við en Manchester United hefur ekki spilað deildarleik síðan 11. febrúar en þá sigraði liðið Watford 2-0. Af þeim sjö leikjum sem liðið spilaði í febrúar þá vann það sex þeirra og gerði eitt jafntefli, 0-0 við Hull City. Að sama skapi fékk það ekki mark á sig í deildinni, vonandi heldur það áfram á morgun.

Í vikunni gaf United út að Michael Carrick fengi heiðursleik þar sem hann hefur verið 11 ár hjá félaginu.Meistaradeildina árið 2008 Er Carrick nýbúinn að stofna góðgerðasamtök og munu þau sjá um að koma þeim peningum sem safnast til ýmissa góðgerðamála. Hugmyndin er að fá saman flesta þeirra sem unnu með Manchester United gegn einhverskonar All Star heimsliði sem mun innihalda bæði Steven Gerrard og Frank Lampard.

Einnig kíkti rapparinn Stormzy á æfingasvæði félagsins í vikunni en fyrir þá sem ekki vita það þá er hann einn heitasti rappari Bretlands um þessar mundir ásamt því að vera gífurlegu United aðdáandi. Flestir ættu þó að muna eftir honum í tengslum við myndbandið sem tilkynnti endanlega komu Paul Pogba aftur til Manchester United, eða #Pogback eins og unga kynslóðin kallaði það.

Bournemouth

Eftir að hafa byrjað tímabilið ágætlega hefur þeim fatast flugið undanfarið og sitja sem stendur í 16. sæti deildarinnar, aðeins fjórum stigum frá fallsæti. Þeir töpuðu til að mynda öllum sínum leikjum í febrúar og leka mörkum eins og enginn sé morgundagurinn, fengu til að mynda á sig sex stykki gegn Everton.

 

Embed from Getty Images

 

Eddie Howe gerði sitt besta til að fá nýjan markmann í janúar glugganum og þá helst Asmir Begovic, það er nefnilega orðið nokkuð ljóst að Artur Boruc er kominn fram yfir síðasta söludag en hann ásamt varnarlínu Bournemouth gera flest mistök til leiða til marka í deildinni.

Leikstíllinn sem Howe fékk mikið hrós fyrir í fyrra, og á enn skilið, er að kosta Bournemouth full mikið af mörkum. Við vonum augljóslega að það haldi áfram á morgun.

Hvað varðar meiðsli þá gæti fyrrum Liverpool maðurinn Jordan Ibe náð leiknum en þeir Adam Federici, Simon Francis og Callum Wilson missa allir af leiknum vegna meiðsla.

Embed from Getty Images

 

Manchester United

Þetta er ekki flókið fyrir okkar menn, sigur kemur okkur tímabundið upp í 4. sæti deildarinnar og við föllum í versta falli aftur niður í 5. sæti þar sem Liverpool og Arsenal mætast á sunnudag. Fyrst þarf þó að sigra Bournemouth.

Vonandi er bikarþynnkan ekki of mikil hjá United því núna er squeaky bum time tímabilsins að fara í gang.

Hvað varðar meiðsli hjá okkar mönnum þá ættu Phil Jones og Henrykh Mkhitaryan að vera tilbúnir sem þýðir að týndi drengurinn James Wilson er eini maðurinn á meiðslalistanum hjá okkar mönnum.

Mig grunar að José Mourinho sleppi því að spila með Michael Carrick á bakvið hina hefðbundnu tvo miðjumenn og því má reikna með að liðið verði mjög svipað og það sem byrjaði leikinn gegn Southampton um síðustu helgi. Ég held svo áfram að láta mig dreyma um að Luke Shaw verði í byrjunarliðinu.

Embed from Getty Images

Leikurinn byrjar klukkan 12:30 á morgun (Laugardag).

Spáir undirritaður 4-0 heimasigri. Megið kenna mér um ef allt fer á versta veg.

Efnisorð: Bournemouth Enska úrvalsdeildin Old Trafford Upphitun 3

Reader Interactions

Comments

  1. Björn Friðgeir says

    3. mars, 2017 at 14:14

    Mourinho var að staðfesta á fréttamannafundi að Shaw yrði í hóp.

  2. Viðar says

    3. mars, 2017 at 14:35

    Þetta er must win leikur þar sem Arsenal og/eða Liverpool munu tapa stigum og jafnvel tottenham líka þar sem þeir eiga erfiðan leik við Everton

  3. Bjarni says

    3. mars, 2017 at 15:47

    Margir must win leikir á tímabilinu hafa því miður tapast eða réttara sagt ekki unnist. Hef þó fulla trú að liðinu í dag og að sigurinn um síðustu helgi fleyti liðinu áfram til sigurs í næstu leikjum og tryggi okkur meistaradeildarsætið að lokum. Vonandi verða menn á skotskónum á morgun.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Elis um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress