Enn eitt jafnteflið. Enn ein vonbrigðin. Enn eitt jafnteflið gegn liðum sem eru í efstu 6 sætunum í úrvalsdeildinni. 1-1 lokatölur kvöldsins þar sem Zlatan Ibrahimovic bjargaði stigi eftir enn einn leikinn þar sem United virtist ómögulega geta brotið niður andstæðinginn.
Leikurinn var í raun endurtekning á svo mörgum leikjum sem við höfum séð undanfarin ár og var maður í raun viss um að liðið myndi tapa 1-0 því lengur sem leið á leikinn enda Ronald Koeman búinn að vinna 1-0 tvö ár í röð á Old Trafford.
En að leiknum, eftir slaka frammistöðu gegn WBA á laugardag þá ákvað José Mourinho að hrista upp í hlutunum. Daley Blind, Ander Herrera og Zlatan Ibrahimovic komu allir inn í byrjunarliðið.
Varamenn: S.Romero, Shaw (’64), Fosu-Mensah, Darmian, Pogba (’45), Martial og Mkhitaryan (’64).
Leikurinn
Leikplanið var 4-3-3 þar sem Jesse Lingard driftaði inn á miðjuna svipað og Juan Mata gerir svo oft á meðan Ashley Young átti að vera í Antiono Valencia hlutverkinu upp vænginn.
United byrjaði leikinn eins og svo oft áður á fínu tempói og slapp Zlatan nánast einn í gegn eftir fjórar mínútur. Hann var hins vegar alltof lengi að athafna sig og Ashley Willams bjargaði málunum. Þetta var þema sem átti eftir að vera gegnum gangandi í leiknum.
Marcus Rashford og Jesse Lingard voru gjörsamlega á fullu gasi í byrjun en því miður eins og svo oft áður þá kom lítið sem ekkert út úr neinu sem United gerði. Svo ákvað líka Joel Robles, markvörður Everton, að bæta upp fyrir skituna frá því í síðasta leik en hann átti þó nokkrar frábærar markvörslur í leiknum.
Það virtist draga af United eftir fyrsta korterið og Everton kom sér hægt og rólega inn í leikinn. Á tuttugustu mín fékk Kevin Mirallas fínan bolta yfir Blind og átti skot sem David De Gea varði í horn.
Upp úr horninu komst Everton svo yfir. Hornspyrnan kom á Ashley Williams, sem flikkaði boltanum í átt að marki þar sem Phil Jagielka skóflaði honum einhvern veginn aftur fyrir sig og í gegnum klofið á David De Gea.
Noooo!!
— Gary Neville (@GNev2) April 4, 2017
Ótrúlegt mark í alla staði. De Gea hefði líklega átt að geta komið út í boltann og Marcos Rojo hefði eflaust átt að geta gert betur.
Var þetta þriðja markið sem United fær á sig á Old Trafford árið 2017, hin tvö mörkin voru vítaspyrnur.
Eftir 30 mínútur ákvað Kevin Mirallas að rífa í hálsinn á Jesse Lingard og henda honum í jörðina þó boltinn væri hvergi nálægt. Úr aukaspyrnunni átti Daley Blind mjög gott skot sem Joel Robles varði áður en hann klessti á stöngina, á einhvern ótrúlegan hátt tókst Ander Herrera svo að setja frákastið í slánna frekar en í netið.
Man Utd have now hit the woodwork 17 times in the Premier League this season, no other side has struck it more.
— Squawka Football (@Squawka) April 4, 2017
Young átti svo gott hlaup upp kantinn og gaf boltann fyrir en enn og aftur var enginn á fjærstönginni hjá United. Í lok hálfleiksins átti Herrera svo fínt skot sem Robles varði vel, auðvitað.
Síðari hálfleikurinn var svo samansafn af ÖLLU sem hefur gengið illa hjá United í vetur. Til að byrja með kom Paul Pogba inn á fyrir Blind sem þýddi að Herrera endaði í hægri bakverði og Young í vinstri bakverði. Síðan meiddist Young og fór útaf fyrir Shaw á meðan Carrick fór útaf fyrir Mkhitaryan. Að reyna lesa hver var að spila hvaða stöðu á þessum tímapunkti í leiknum var ómögulegt.
Ofan á allt þetta þá átti Paul Pogba auðvitað skalla í slánna eftir frábæra aukaspyrnu Young og Zlatan Ibrahimovic skoraði en hann var dæmdur rangstæður. Umdeilanlegt er varla orðið en Zlatan virkaði í línu og mjög erfitt að sjá hvernig aðstoðardómarinn gat verið 100% viss um að hann væri rangstæður.
Alveg í lokin setti Rashford frábæran bolta inn í teig sem Zlatan stangaði yfir. Þarna var undirritaður handviss um að þetta væri búið en á einhvern ótrúlegan hátt tókst United að næla sér í vítaspyrnu þegar Willams varði skot frá Luke Shaw með hendi í teignum en boltinn virtist vera á beinustu leið í netið þegar Willams slengdi hendi í knöttinn.
Fékk hann rautt spjald að launum og Zlatan jafnaði úr vítinu. Hvernig Robles slapp við að fá annað gult þegar hann bombaði boltanum í burtu eftir vítið er eitthvað sem ég skil ekki. Sömuleiðis skil ég ekki hvernig Gareth Barry fékk ekki annað gult og það er mér einnig hulin ráðgáta hvernig Zlatan var flaggaður rangstæður.
Phil Neville var að lýsa leiknum og orðaði þetta ágætlega ,,It´s Deja Vu“ en þessi leikur var eins og svo rosalega margir sem maður hefur séð undanfarin ár.
Lokatölur 1-1.
Meira hef ég í raun ekki að segja um þennan leik, við höfum öll séð þennan leik tíu sinnum eða oftar síðustu ár. Leik eftir leik er þetta alveg eins. Ef mótherjinn skorar þá tekst United oftar en ekki að pota inn einu, ef mótherjinn skorar ekki þá skorar United ekki.
Something fundamentally wrong with #mufc's approach. Two shots on target so far. No variety or innovation about their attack. Hit and hope.
— Samuel Luckhurst (@samuelluckhurst) April 4, 2017
Kantspilið hjá þessu United liði er vandræðalegt. Það er nóg að múra fyrir miðjan teiginn, liðið hleypur eins og hauslaus hæna á vegginn.
— Óttar K. Bjarnason (@ottar09) April 4, 2017
Wake me up in August
— Darren (@UtdDarren) April 4, 2017
— Jonas Giæver (@CheGiaevara) April 4, 2017
Luke Shaw certainly had an impact. Which is because/despite of Mourinho, depending on your particular choice of stance.
— Sport Witness (@Sport_Witness) April 4, 2017
Mig grunar að við gætum séð Mourinho gera það sama og Jurgen Klopp gerði með Liverpool í fyrra og gefa allt í Evrópudeildina en fjórða sætið í úrvalsdeildinni er fjarlægur og óraunhæfur draumur sem stendur.
Turninn Pallister says
Arhyglisvert liðsval, en veit ekki alveg hvernig 4-4-2 gæti verið möguleiki. Hugsa að þetta sé frekar 4-5-1 (4-3-3) með möguleika á að skipta yfir í 3-5-2.
Verður pottþétt mjög mikill jarðýtubolti samt. Everton eru ekkert að fara að spila neinn te-boðsbolta og því mikilvægt fyrir okkar menn að detta ekki niður á sama plan. Megum ekki við því að fara að missa menn í bönn núna.
Kjartan says
Frábært, að lenda undir á móti þessu liði er ekki það besta í stöðunni :/
ps. Watford er búið að gera meira á 13 mín heldur en Man Utd gerði á 90 mín, komnir yfir á móti WBA
Karl Gardars says
Ég vil sjá 3 skiptingar í hálfleik. Útaf með eitthvað af þessum drengjum og inná með menn sem nenna þessu. Þetta er óboðlegt með öllu.
Joi says
Út með Fellaini og Carrik inn með Pobba og Magitarian.
Bjarni says
Sammála þér Karl. Gerum meiri kröfur til manna en þetta. Annars virðist mikið rætt að þessi leikur og næsti skeri úr um áherslur á hvaða vígstöðvum skal halda áfram að berjast. Sýnist á spilamennskunni að menn ætla ekki að bíða svo lengi. Vonum samt það besta í seinni hálfleik.
Pillinn says
Eitthvað þarf að fara að breytast hjá þessu liði. Jafntefli í síðasta leik og erum að tapa núna. Sé ekki að við náum að snúa þessu við í hálfleik. Það þarf klárlega breytingar og ef þetta heldur svona áfram þá bíður okkar bara 8.sætið í hæsta lagi. Getur verið að ég sé svartsýnn en ég er orðinn ótrúlega þreyttur á þessu getuleysi sem hefur verið hjá okkur alla leiktíðina. Alltaf ef við eigum séns á að koma okkur í eitthvað ágæta stöðu til að keppa um topp 4 klúðrum við, alveg sama móti hverjum við spilum.
Var svo að heyra að væri í fyrsta sinn sem Everton leiðir í hálfleik á Old Trafford síðan 1996. Það er bara enn eitt dæmið um hve lélegir við höfum verið.
Joi says
Burt með helvítis gráhegrann.
Turninn Pallister says
Þetta er ekki hægt bara hreinlega ekki hægt…
Og svo dæmt af okkur löglegt mark. Er svo reiður að ég á ekki til orð. Þessir helvítis löngu boltar í restina líka, allir þessir peningar í lið sem kemur ekki tuðrunni í netið þó lífið liggi við.
Runólfur Trausti says
Deja Vu
Hjörtur says
Mikið og andskoti er maður orðinn þreyttur á þessu liði, það kemur bókstaflega ekkert út úr því ekkert. Þeim er gjörsamlega fyrirmunað að skora mörk, kanski ekki furða því það er varla að þeir reyni að skjóta á markið, heldur reyna þeir að bolast með boltann inn í markið. Ég ætla að leifa mér að bera liðið saman við Liverpool, hvað það er miklu meiri frískleiki í því liði, og metnaður og markaskorarar af guðsnáð. Ég sagði það í byrjun vetrar að Utd yrði í sæti 6 til 7 og er á því enn. En svo að lokum þarf ekki bara að senda þann gamla í klefann í hálfleik, og hrista aðeins upp í þessu?
Helgi P says
þetta lið er orðið svo ógeðslega lélegt og leiðinnlegt að maður er hættur að nenna horfa á leiki með þessu liði þessi þjálfari verður að fara hann skeit á sig í fyrra og hann heldur bara áfram að skíta á sig maður líka ekki alveg að sjá okkur vinna evrópu keppninna með þessari spila mensku
Georg says
Ég hugsaði með mér í byrjun leiks hvað þyrfti að gera svo að Zlatan væri ekki einn frammi á heimavelli.
Því var fljótsvarað þar sem Everton skorar.
Er JM að láta vængmenn/sóknarmenn á köntunum verjast of mikið á heimavelli eða eins og sást þegar Ibra er einn frammi með 5 varnarmenn í kringum sig og ekki stakann UTD mann nema lengst útá köntum við miðjulínu?
Það spurning er hvernig stendur á því að við jöfnumá móti liði sem Liverpool kjöldregur og lið sem við náðum ekki að vinna tapar svo næsta leik á eftir okkur? Báðir á heimavelli?!?!
Lýsandi segir UTD hafa skoðar færri mörk á heimavellin en Burnley og Swansea WTF.
Rant over
Rúnar Þór says
Er United með lélegustu föstu leikatriðin/krossana í deildinni? Þetta er skelfilegt. Of langt eða endar á fyrsta varnarmanni. Ótrúlegt að enginn af þessum atvinnumönnum geti gefið fyrir jesús minn meira að segja horn sem fer út af!!!! Þetta verður að laga!!!
Gylfi til United bara til að taka föstu leikatriðin?
Blue Moon says
Hvað gerir United þegar Zlatan fer til LA Galaxy? Finnur einhvern annan 36 ára til að byggja á til framtíðar?
Karl Gardars says
Blue moon, fokkaðu þér yfir á city síðuna og talaðu við hinn apann þar.
Ekki góður leikur í dag og swarbrick karlinn var ágætur heilt yfir en línuvörðurinn skeit þegar hann dæmdi markið af. Jose karlinn þarf tíma til að byggja upp. Við förum í CL one way or another og þó það gerist ekki á þessu ári þá er það enginn heimsendir og við komum aftur sterkir. Gefum þessu tíma.
Sigurjón Arthur says
Hvernig má það vera að leikmaður sem er í engu formi kemur frískur inná og það bara eftir einn fund með JM ??? Hvaða helvítis yfirlýsingar voru þetta hjá Mónakó í fjölmiðlum ???
Audunn says
það er rétt að heimurinn ferst ekki þótt Man.Utd komist ekki í meistaradeildina að ári en þvílík vonbrigði sem það nú verða eftir einu mestu eyðslu sem sögur fara af.
Getur stjórnin réttlætt það eftir það sem undan er gengið? Nei en það er samt engin lausn að reka stjórann því það er enginn annar þarna úti á lausu sem getur gert betur með núverandi leikmannahóp.
Ég nenni ekki að bauna meira á Fellaini, hef gert það í allan vetur og þeir sem eitthvað fylgjast með fótbolta yfirhöfuð ættu að vera það vel gefnir þegar að boltanum kemur að sjá að lið með ekki betri leikmann í liðinu leik eftir leik er ekki að fara að berjast í hæðstu hæðum því augljóslega er getustigið ekki til staðar að svo meigi vera.
Það kom mér ekkert á óvart í þessum leik eftir að ég sá liðið og því hef ég í sjálfu sér ekki mikið um leikinn að segja.
Móri verður bara að berja hausnum í steininn og koma með einhverjar lausnir á markaþurrð liðsins.
Það sem ég óttaðist mest með komu hans virðist vera að koma betur og betur í ljós með hverjum leiknum sem líður.
Ungu leikmennirnir okkar sem blómstruðu á síðasta tímabili og voru nánast eina ljósið í myrkrinu hafa ekki náð að fylgja því eftir, þeir hafa allir sem einn valdið mér miklum vonbrigðum á þessu tímabili og kenni ég stjóranum að mestu leiti um það.
Ég er heldur ekkert gífurlega sannfærður um að rétta leiðin að gagnrýna þá opinberlega eins og hefur verið gert oftar en einu sinni.
Þeir þurfa allir á hvatningu og leiðsögn að halda innan sem utan vallar.
Finnst þeir allir vera í fýlu undir núverandi stjóra, amk geislar engin leikgleði í augum þeirra.
Þetta er allt eitthvað svo stíft og neikvætt finnst mér, maður sér það svolítið á líkamstjáningum leikmanna.
Auðunn says
Hvað á svona bull að þýða eiginlega?
Ég skil engan veginn svona taktík og er 100% viss um að hún sé ekki að hjálpa leikmönnum þegar kemur að því að efla sjálfstraust þeirra.
http://www.manchestereveningnews.co.uk/sport/football/football-news/manchester-united-news-fixtures-shaw-12846472
Rauðhaus says
Þeir sem mynda þetta lið (mannskapur + þjálfari) eru bara greinilega ekki betra en þetta.
1. Það eru alltof margir farþegar í þessu liði. Alltof margir leikmenn sem eru kannski ágætis „squad players“ en eru að spila of stórt hlutverk. Við erum Manchester United, eitt allra stærsta knattspyrnulið heimsins. Ef við tökum bara byrjunarliðið í gær. Leikmenn á borð við M. Rojo, A. Young, D. Blind, 35 ára M. Carrick, Lingard og hvað þá M. Fellaini… Enginn þessara leikmanna á að vera spila eins stórt hlutverk eins og raun ber vitni. Þegar svona menn eru allir á sama tíma í byrjunarliði Manchester United er voðinn vís. Hann blasir við. Þetta er einfaldlega ekki nógu gott lið. Á sama tíma eru Pogba, Martial, Shaw, Mhkitaryan á bekknum. Ótrúlegt alveg hreint að geyma öll þessi gæði á bekknum í einu. Og hafa allt þetta meðalgetudrasl inn á í einu.
2. Mourinho er svo sannarlega ekki hafinn yfir gagnrýni. En leikmenn verða líka að axla sína ábyrgð. Þeir hafa algjörlega feilað í vetur fyrir framan mark andstæðinganna. Aðeins einn maður sem ekki er hægt að benda á og segja að hafi valdið vonbrigðum.
3. Mourinho er að beita einhverri þeirri heimskulegustu man-management aðferð sem ég hef orðið vitni að hjá klúbbnum okkar. Halda menn í alvöru að þetta sé að virka vel og á jákvæðan hátt fyrir ungu leikmennina okkar? Meðferðin á Martial og hvað þá Shaw er fáránleg og ég hef verulegar áhyggjur af því að við missum þá báða frá okkur. Þetta eru sennilega tveir af þremur efnulegustu leikmönnum liðsins, ásamt Rashford, þ.e. ef við höldum okkur við leikmenn 21 árs og yngri. Svona lagað hefðum við aldrei nokkurn tímann, ALDREI, séð gerast hjá langsamlega besta knattspyrnustjóra allra tíma, Sir Alex Ferguson.
Þetta er ástæðan fyrir því að Sir Alex gat verið með menn á bakvið sig í 27 ár án þess að þeir hættu að fylgja honum. Þetta er ástæðan fyrir því að Jose Mourinho missir alltaf stuðning leikmanna eftir 2-3 ár. Ekkert lítur út fyrir að það muni breytast hjá Man.Utd.
Sigurjón Arthur says
100 % sammála þér Rauðhaus !! Einn daginn er Luke Shaw í ENGU formi, daginn eftir og eftir einn fund með Móra er hann kominn í form en Móri stjórnaði heilastarfsemi hans inni á vellinum og LS lagði bara til líkamann , þessi gaur er ALLS EKKI Í LAGI !!
Auðunn says
Er svo reiður út í þessi ummæli Mourinho að ég vona svo innilega að menn æðri honum grípi inní og geri honum grein fyrir því að svona opinber meðferð og ummæli í garð leikmanna liðsins verði ekki liðin mínútu lengur.
Svona hagar stjóri Manchester United sér ekki.
Nú þurfa leikmenn á mönnum eins og Ferguson og Bobby Charlton að halda..
Þetta lítur ekki bara fáránlega út fyrir liðið heldur er verið að fremja skemmdarverk innan hópsins og liðsins.
Mourinho gæti setið uppi í sumar með engan Zlatan, Shaw, De Gea, Martial, Carrick og jafnvel fleiri. Hvað þá?
Ef hann heldur áfram á sömu braut á komandi vikum þá verður stjórnin að fórna honum og ráða núverandi stjóra Spurs áður en Mourinho eyðileggur liðið innanfrá.
Mourinho á að vera orðinn það þroskaður að haga sér ekki eins og bjáni í fjölmiðlum.
Ef hann hefur ekki stjórn á sér þá hefur hann ekkert í þessum klúbbi að gera.
Björn Friðgeir says
„Mourinho gæti setið uppi í sumar með engan Zlatan, Shaw, De Gea, Martial, Carrick og jafnvel fleiri. Hvað þá?“
Zlatan: Gamall, hvort sem er ekki hægt að treysta honum 100% næsta sumar. Alltaf verið vitað.
Carrick: Sama, nema tvöfalt.
Shaw: Margrætt. Er ekki tap frá því sem nú er ef hann verður ekki með, en gæti verið mikill gróði ef hann stendur sig.
Martial: Fer ekki. ekki séns.
De Gea: Fer ef hann vill fara til Real. Óháð Mourinho. Þá kaupum við nýjan markmann.
Ég hreinlega sé ekki nokkra einustu ástæðu til að missa sig yfir þessu.
Runólfur Trausti says
Svo má halda því til haga að Ferguson var enginn dýrlingur þegar kom að man-management. Hann henti leikmönnum ítrekað undir rútuna ef hann taldi þess þörf á. In the long run þá virkaði það hjá honum en það má vel vera að hann hafi kostað United 1-2 titla í leiðinni.
Við fyrirgefum honum af því hann fékk tíma til að vinna þau ógrynni titla sem hann á endanum vann.
Því held ég að menn ættu aðeins að róa sig varðandi Mourinho. Varðandi það að Mou skilji eftir sig sviðna jörð þá má benda á að Porto vann deildina í einhver 6 af 7 árum eftir að hann fór þaðan ásamt því að ganga ágætlega í Evrópukeppni. Real Madrid er í fínum málum á Spáni og Chelsea síðast þegar ég vissi í fínum málum á Englandi. Hvað Inter varðar þá má kenna Rafa Benitez og undarlegum stjórnarháttum um hrun þeirra.
Þó svo að Mou fari í fússi og venjulega sé það tímabil algjör skita þá eru liðin hans alltaf í fínum málum eftir á.
Vissulega hefði maður viljað sjá hann gera ýmsa hluti öðruvísi í vetur en það sama hefði ég getað sagt um Ferguson og tala nú ekki um David Moyes eða Louis Van Gaal.
Rauðhaus says
„Ferguson var enginn dýrlingur þegar kom að man-management“.
Reyndar var man-management sennilega mesti styrkleiki Ferguson. Hann var og er snillingur í man-management.
Það er rétt að hann losaði sig við menn og var þá oft mjög ruthless. En það hefur ekkert með man-management að gera. Ef maður les ævisögur leikmanna… t.d. fyrri Keane bókina, Beckham bókina og G. Neville þá sér maður þetta mjög vel. Sir Alex bakkaði menn upp út á við meðan hann tók menn á teppið undir fjögur augu. Hann varði menn alltaf gegn ágangi fjölmiðla.
Það sem Mourinho er að gera núna gagnvart Shaw er algjörlega fáránlegt í alla staði. Og það er einmitt út af svona hlutum sem menn fá að lokum nóg af honum. Það hefur gerst reglulega í gegnum ferilinn hans. Það þýðir þó ekki að hann skilji endilega eftir sig „sviðna jörð“ enda kom það hvergi fram í mínu máli.
Rauðhaus says
Rio Ferdinand (í gær): “When a manager goes public it’s a dangerous thing. You’re not winning, so there’s a chance the changing room could react in a negative way.”
Sir Alex (ekki ný ummæli): „No one likes to be criticized. Few people get better with criticism; most respond to encouragement instead.“
José Mourinho (eftir síðasta leik): „I could feel some of the boys a bit in trouble by the confidence levels. When the confidence levels are not high the quality of the performance is not easy to improve.“
Runólfur Trausti says
Orðaði þetta ef til vill vitlaust.
Punkturinn er samt að tíminn sem Ferguson fékk spilar inn í. Það voru örugglega ekki margir að hrósa man-management þegar hann tók við liðinu og kippti fylliröftunum út en það skilaði engu á vellinum. Það tók þó nokkur ár áður en þetta virkaði – og það byggist á orðspori.
Í dag eru breyttir tímar og þjálfarar komast varla upp með að klippa á fjölmiðla eins og Ferguson gerði óspart. Ofan á það eru komnir samfélagsmiðlar þar sem umræðan grasserar töluvert hraðar en hér áður fyrr þegar hún fór bara fram á pöbbnum.
Punkturinn með „man-management“ hjá mér var í raun frekar sá að Ferguson náði ekki alltaf því besta út úr mönnum og oftar en ekki er það leikmönnum sjálfum að kenna – þeir ná ekki aðlagast eða standa ekki undir væntingum: Kleberson, Verón, Forlan, Anderson (helvítis Suður Ameríkubúar), Berbatov (að mati sumra) og margir ungir leikmenn sem var búist við miklu (Pique, Rossi, Powell, etc).
Hvað varðar þetta Luke Shaw mál þá veit enginn hér hvað fer fram á bakvið tjöldin. Það eina sem ég veit er að Mourinho er FJÓRÐI þjálfarinn til að setja út á Shaw og oftast eru það nákvæmlega sömu kommentin. Ef til vill er hann búinn að reyna allt sitt á bakvið tjöldin og hefur ákveðið að gera þetta í fjölmiðlum til að stuða leikmanninn enn betur.
Kannski sá hann að aðferðin að hafa allt á bakvið tjöldin hjá Memphis virkaði engan veginn og hefur því ákveðið að prófa nýja aðferð.
Minn lokapunktur er sá að ég er mjög ánægður með að Mourinho sé þjálfari og vonandi verður hann það sem lengst. Að því sögðu getum við öll gleymt því að við sjáum einhvern annan þjálfara vera með liðið í meira en 20 ár – það bara gerist ekki í nútíma íþróttum.
Audunn says
Þetta er ekki spurning um að klippa á fjölmiðla, heldur spurning um að halda haus.
Ekki fara í þann gír að gagnrýna leikmenn opinberlega, ég man ekki eftir að hafa séð þessa „taktík“ áður hjá neinum topp þjálfara.
Mourinho er á góðri leið með að missa þá litlu virðingu sem hann þó hefur ennþá
Við sáum hvernig honum tókst á ótrúlega stuttum tíma að snúa ást stuðningsmanna Chelsea á sér í hatur.
Og með sama áframhaldi missir hann virðingu núverandi leikmanna, stuðningsmanna, þjálfara annara liða, stuðningsmenn annara liða, dómara og fjölmiðla.
Þjálfarar annara liða báru ótakmarkaða virðingu fyrir Sir Alex, dómarar og fréttamenn voru nánast hræddir við hann.
@Björn Friðgeir.
Ég veit ekki hvort þú hafir fylgst með einhverjum Man.Utd leik á þessu tímabili en Zlatan er búinn að vera besti maður United í vetur og hann er ekki í síðra formi en t.d Giggs var á hans aldri.
Hann á fullt eftir.
De Gea fer ef hann vill fara.. Einmitt!!! á það ekki við alla? Og ef Martial vill fara útaf af framkomu stjórans þá fer hann.
Ég er ekki að segja að Móri sé búinn að fá allt og alla uppá móti sér, ég er að segja að með þessu áframhaldi þá endar það þannig.
Hann verður að sýna meiri þroska en þetta þegar kemur að því að ræða sína eigin leikmenn opinberlega.