Maggi, Halldór, og Tryggvi settust niður og ræddu kaupin á Romelo Lukaku og brottför Wayne Rooney til Everton. Einnig var rætt um Nemanja Matic og Ivan Perisic og hvaða kaup muni eiginlega fylgja í kjölfarið.
Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér fyrir ofan auk þess sem hægt er að hala honum niður í gegnum spilarann eða hér að neðan. Jafnframt má gerast áskrifandi að þættinum í gegnum ýmis podkast-forrit:
Gerast áskrifandi í iTunes
Gerast áskrifandi í öðrum forritum
MP3 niðurhal: 40. þáttur
Ingi says
Sælir strákar,
Flottir þættir hjá ykkur, ég held að þáttur 39 hafi verið settur aftur sem þáttur 40 á podcast rásina, allavega fyrir ios stýrikerfin. Ég hlustaði svo á réttan þátt hérna á síðunni.
Auðunn says
Skemmtilegar vangaveltur eins og alltaf.
Með komu Lukaku þá tel ég að liðið sé komið með þokkalega góða breidd uppá topp ef við gefum okkur það að liðið haldi áfram að spila sömu kerfi og það hefur gert undanfarin 3 ár eða svo.
Veit samt ekki alveg hvort kaup á einum framherja nægja, liðið er búið að fara í gegnum svo ótrúleg mikil meiðsli í allt of langan tíma, það hræðir mann svolítið.
Eins minnist ég þess að bestu lið Man.Utd undir Ferguson voru þegar samkeppnin var sem mest uppá topp.
Kallinn var bara svo afskaplega góður í að nýta sér þá breidd þannig að hann fékk það besta út úr þeim öllum hverju sinni.
En nú eru jú nýjir tímar.
Það þarf að leggja áherslu á miðjuna núna, ég trúi ekki öðru en að við fáum að sjá kaup á amk einum sterkum miðjumanni.
Markaðurinn er búinn að vera í ákveðnu limbó það sem af er sumri, sérstaklega hjá stóru liðunum.
Held að ekkert af þeim hafi náð að styrkja sig eins og þau vildu á þessum tímapunkti nema kannski City.
Það gæti farið að losna um einhverja hnúta núna þegar æfingar fara af stað og liðin halda á hin ýmsu mót hingað og þangað um heiminn.
Ég er orðin svolítið spenntur að sjá hvernig Everton mun ganga á komandi tímabili, tala nú ekki um ef Gylfi okkar mætir líka á svæðið.
Það er smá óskhyggja í mér að Everton og önnur fjögur lið (United að sjálfsögðu með í þeim hópi) slái Spurs svolítið útaf laginu og endi að lokum fyrir ofan það lið.
Það kveikir hjá mér von um að það gæti opnað dyr á að fá Dele Ali næsta sumar :) hann er líklega sá leikmaður sem ég vill allra mest sjá í United treyju eftir rétt rúmt ár :)
Ásgeir says
Góđar pælingar. Vantađi samt Björn Friđgeir.