Þessi sumargluggi hjá Manchester United hefur ekki verið sá mest sexí en kannski er það hreinlega bara allt í lagi. Hingað til hefur Mourinho keypt ungan hægri bakvörð Diogo Dalot, miðjumanninn Fred og Lee Grant markvörð. Grant er fyrst fremst hugsaður sem varaskeifa fyrir Sergio Romero. Þetta eru góðar fréttir því þetta þýðir að Joel Pereira getur farið á lán og öðlast reynslu en hann þykir mikið efni. Dalot verður mögulega varaskeifa fyrir Antonio Valencia sem verður aðal hægri bakvörður liðsins næsta tímabil. Fred kemur inn sem miðjumaður sem að liðið vantar sárlega og er líklega bara að koma inn fyrir Michael Carrick en mun spila töluvert meira.
Markvörðurinn ungi Sam Johnstone sem var á láni hjá Aston Villa síðasta vetur hefur verið seldur til West Bromwich Albion í stað Ben Foster sem fór til Watford. Johnstone lék aldrei aðalliðs leik með United en við óskum honum að sjálfsögðu alls hins besta í vetur. Joe Riley bakvörður fór til Bradford á frjálsri sölu.
Inn
- Diogo Dalot – FC Porto
- Fred – Shakhtar Donetsk
- Lee Grant – Stoke City
Út
- Michael Carrick (hættur)
- Dean Henderson – Sheffield United (lán)
- Joe Riley – Bradford City
- Indy Boonen – KV Oostende
- Ilias Moutha-Sebtaoui – RSC Anderlecht
- Sam Johnstone – West Bromwich Albion
- Max Johnstone – Samningur ekki endurnýjaður
- Jake Kenyon – Samningur ekki endurnýjaður
- Devonte Redmond – Samningur ekki endurnýjaður
- Theo Richardson – Samningur ekki endurnýjaður
- Charlie Scott – Samningur ekki endurnýjaður
Við búumst við því að eitthvað fleira fari að gerast eftir að Heimsmeistaramótinu lýkur þann 15. júlí.
Annars er þetta opinn þráður
Karl Garðars says
Lingard að eiga fínt mót. Skyldi hann ætla að leysa hægri miðju fyrir okkur? Gefum okkur að það gerist og að Shaw vakni þá vantar ennþá SMS og einhvern böðul í miðvörðinn með Bailly. Jafnvel framherja líka.
SMS, Cavani og Miranda/Godin..?
Karl Garðars says
Já og til hamingju með Fellaini.
Helgi P says
þessi gluggi er búinn að vera frekar slappur hjá okkar mönnum
Rúnar Þór says
http://www.dv.is/433/2018/7/12/gefur-sterklega-skyn-ad-hann-aetli-ad-elta-ronaldo-til-juventus/
Ef Marcelo eltir Ronaldo hlýtur Alex Sandro að fara, ég vil fá hann í United takk fyrir túkall!!
Björn Friðgeir says
Hingað til hefur þetta verið frekar óspennandi. Ég vil helst sjá miðvörð, er ekki sannfærður um Maguire, en hlakka til að sjá Lindelöf takast á við verkefnið. Alex Sandro væri flottur, og svo er það auðvitað hægri kantur. Spurning hvort Jesse og Juan skipti því ekki bara milli sín?
Held við þurfum ekki enn einn miðjumanninn, þó Carrick sé hættur þá lék hann nú bara fimm leiki í fyrra, byrjaði einn í deild. Fellaini missti út mest allt tímabilið, byrjaði sjö leiki og kom 16 sinnum inná og verður í svipuðu hlutverki. Fred tekur leiki af Herrera og McTominay fyrst og fremst.
Er ég einn um það að vera ekkert ofboðslega spenntur fyrir Bale? Kannske er hann samt það sem þarf til að lyfta þessu liði í meistaraklassann í 1-2 ár.
Turninn Pallister says
Jæja enn einn glugginn, hvernig væri nú ef við versluðum einusinni af skynsemi?
Hef aldrei skilið þessa ásókn í að við þurfum að kaupa „stórstjörnu“. Bestu kaup United hafa aldrei verið stórstjörnur. Hinsvegar hefur klúbburinn oft gert stórstjörnur úr leikmönnum sem hafa verið keyptir.
Bara svona food for thought…
Endilega leiðréttið mig ef ég er að tala vitleysu, en mér finnst við vera orðnir dálítið „commercial“ latir í seinni tíð.
Cantona no 7 says
Okkur vantar tvo góða varnarmenn.
Okkur vantar 1-2 góða miðjumenn.
Okkur vantar einn góðan framherja.
Þá geta menn eins og Shaw og Darmian farið.
G G M U
einarb says
Það má alveg lappa upp á þennan blessaða glugga en ég er full nálægt panic-módinu þar til við verslum varnarmann.
Ég er tiltölulega bjartsýnn á að sóknin muni spjara sig þokkalega – Sanchez mun vonandi smella betur inn með Lingard, Martial, Mata, Rashford og Lukaku. Þar fyrir aftan á miðjunni Pogba / Matic / Fred / Herrera / Fellaini. Allt í góðu þarna.
Hins vegar er vörnin okkar í svokölluðum rusl-flokki. Það er De Gea einum að þakka að liðið fékk ekki á fleiri mörk og lét vörnina líta alltof vel út. ‘Expected goals on target’ tölfræðin hans var *fáránleg* og framistaða hans plástraði því miður alltof vel yfir vafasama vörn okkar.
Það verður erfitt að stóla á Ashley Young og Antonio Valencia sem bakverði á næsta tímabili, þeir verða báðir 33 ára og það gæti endað illa ef þeir verða aftur fyrsta val okkar. Tækifæri Shaw og Darmian virðast vera runnin út og miðvarða dúó-ið Phil Jones og Smalling vil ég helst aldrei sjá spila aftur. Ég byrja ósjálfrátt að humma stefið í klaufabárðum ‘Pat a Mat’ þegar ég sé þessa gaura taka á rás :|
Ég veit ekki, kannski verður þetta seasonið sem Fosu-Mensah og Tuanzebe grípa tækifærið, en að mínu mati er Bailly eini *heimsklassa* varnarmaðurinn í þessu liði.. og hann fær ekki einu sinni að spila.
Ég bíst ekki við að Dalot muni spila stóra rullu á komandi tímabili. Hann spilaði bara 6 leiki fyrir Porto á síðsta tímabili og hlýtur að hafa verið keyptur inn sem framtíðarefniviður.
Það er samt alveg ljóst að við erum ekki að fara saxa mikið á þetta „18-stiga-bil“ í city, en við erum með góðan topp-4 kandídat í þessum hóp.
DMS says
Væri ekki bara ráð að reyna Lindelöf og Bailly saman? Tek undir þetta með Smalling og Jones, fullreynt með þá að mínu mati. Bonucci frá AC Milan væri e.t.v fín viðbót til að auka breiddina, en fyrir mér mætti alveg leyfa Smalling eða Jones að fara fyrir einhverja upphæð.
Salan á Blind er góð miðað við upphæðina og notkunina á þeim leikmanni. Hann er því miður of hægur fyrir ensku deildina og fékk nú almennilega aldrei að spila sína bestu stöðu. Það er erfitt að beita löturhægum bakvörðum í svona hraðri deild þó viðkomandi bakvörður sé með góða sendingargetu.
Mér finnst aðalmálið að fá meira út úr okkar stórstjörnum á borð við Sanchez og Pogba og hressa upp á flæðið í sóknarleiknum. Martial og Rashford þurfa líka að fara að sýna stöðugri frammistöður en ekki bara glefsur af og til.
Samt virðist Móri ekkert vita hvort fleiri menn bætist í hópinn eða ekki og hefur áhyggjur:
https://www.mbl.is/sport/enski/2018/07/18/ahyggjufullur_mourinho_veit_ekkert/
Auðunn says
Ég verð að segja að það er eitthvað meira en lítið að þegar stjóri Manchester United veit ekkert hvort það verði fleiri kaup þetta sumarið.
Er sambandið milli hans annarsvegar og stjórn/eiganda hinsvegar virkilega ekki betra en þetta?
Ef ekki þá treystir stjórn United honum ekki og þar með ætti hann aldrei að hefja tímabilið sem stjóri United.
Ef stjórn liðsins treystir honum 100% þá hljóta menn að tala saman og vera á sömu blaðsíðu.
Annað hvort er liðið að reyna að kaupa leikmenn eða ekki.
Sorry en stundum hljómar Mourinho eins og Trump.
Ég er sammála því að það þurfi að taka hressilega til í vörn liðsins.
Það er ekki hægt að kaupa kaupa og kaupa.
Það þarf líka að selja.
Út ættu Smalling, Young og Darmian að fara fyrstir.
Ég myndi heldur ekki sjá mikið eða neitt eftir Valencia. Jones er líka á mjög gráu svæði en alls ekki versti back up miðvörður í deildinni.
Svo mætti Mata líka fara og auðvitað Fellaini en þá erum við komnir í aðrar stöður á vellinum.
gummi says
við þurfum bara fyrst að losa okkur við þennan þjálfari þetta er svo ógeðslega leiðinnlegur maður og ég hata það að hann skuli vera orðinn þjálfari hjá united
Sindri says
Ég held að Lee Grant muni slá rækilega í gegn.
Helgi P says
ef Móri verslar ekki 2 til 3 nýja leikmenn þá ferðum við að berjast um 5 til 6 sætið