Þegar allt kom til alls var það ekki svo langsótt pæling að Juventus færi að tapa stigum gegn Young Boys í Sviss. Það fór að lokum svo að ítalska liðið tapaði. Hins vegar náði Manchester United ekki að nýta það óvænta tækifæri til að ná toppsætinu því okkar lið tapaði einnig og það fyllilega verðskuldað. United verður þó með í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar í hádeginu á mánudaginn.
Það var þó ánægjulegt að sjá fyrir leik að hinn ungi Mason Greenwood fékk að setjast á bekkinn með liðinu. Samkvæmt heimildum sjónvarpsstöðvarinnar BT þá átti Scott McTominay upphaflega að byrja leikinn en hann meiddist á æfingu fyrir leikinn. Það hefur líklega skilað Mason Greenwood inn á bekkinn en það er góð spurning hver kom inn í byrjunarliðið í staðinn fyrir McTominay.
Manchester United stillti upp þessu byrjunarliði:
Varamenn: Grant, Young (fyrir Rojo á 46′), Garner, Herrera, Lingard (fyrir Lukaku á 69′), Greenwood, Rashford (fyrir Fred á 57′).
Heimamenn eru með þetta byrjunarlið:
Varamenn: Neto, Garay (fyrir Lato á 51′), Wass, Coquelin, Torres (fyrir Cheryshev á 66′), Moreno (fyrir Mina á 67′), Kang-In.
Leikurinn
Leikurinn var, í sem stystu máli, alls ekki nógu góður. Valencia byrjaði betur og var meira með boltann fyrstu mínúturnar. United kom þá til aðeins til baka og virtist vera á leiðinni að ná tökum á leiknum þegar liðið fékk mark í andlitið. Valencia náði spili upp hægri kantinn, fyrirgjöf sem var skölluð í burtu en beint á kantmanninn Soler sem fékk tíma til að stilla af skot og náði skoti sem fór milli fóta Bailly og í fjærhornið. Það voru nokkrir leikmenn United sem litu ekkert sérstaklega vel út í þessu marki. Pogba og Fellaini náðu ekki að stoppa spilið á kantinum, Jones átti mjög slakan skalla frá marki og beint á samherja, Eric Bailly virkaði hræddur við boltann frekar en að lesa skotið og vera fyrir og Sergio Romero hreyfði sig ekki á línunni.
Manchester United reyndi að byggja upp eitthvað spil en það var helst til þröngt hjá liðinu. Líklega af því liðið var ekki með neina kantmenn. Mata var hægra megin og Andreas Pereira vinstra megin. Báðir leituðu mest inn á völlinn. Það var helst að Lukaku væri kominn út á kantinn. Lukaku byrjaði leikinn nokkuð vel, var sprækur og vann vel. En það dró því miður af honum þegar leið á leikinn.
Mata fékk þó færi eftir tæplega hálftíma. Þá datt boltinn fyrir hann í teignum eftir misheppnaða skallahreinsun. Mata skaut að marki en boltinn fór af varnarmanni og aftur fyrir. Boltinn hafði viðkomu í handlegg varnarmannsins en það var erfitt að sjá að það hefði verið viljandi hjá leikmanninum og því hefði víti líklega verið strangur dómur.
Eftir rúman hálftíma fékk Valencia aðra hættulega sókn. Romero gerði þá vel í að bjarga hættulegri fyrirgjöf af stuttu færi. Fellaini gerði svo sömuleiðis mjög vel í að skýla boltanum þegar sóknarmaður Valencia gerði sig líklegan til að skora mark úr dauðafæri. Skömmu síðar gerði Fellaini aftur gríðarlega vel, núna í hinum teignum, þegar hann vann skallabolta af harðfylgni og sendi fallega sendingu á Pogba sem var gapandi frír við fjærstöngina. Pogba hitti hins vegar ekki á markið af stuttu færi, þarna hefði hann átt að skora. Virkilega vel gert hins vegar hjá Fellaini, sem var besti leikmaður Manchester United í fyrri hálfleiknum.
Í hálfleik þurfti Mourinho að gera breytingu þegar hann setti Ashley Young inn á fyrir Marcos Rojo. Mögulega varð Rojo fyrir einhverju hnjaski en það er þó líklegra að þetta hafi verið sambland af taktískri ákvörðun og einfaldlega því að Rojo var ekki búinn að vera góður. Enda enginn vinstri bakvörður.
Seinni hálfleikurinn var þó ekki orðinn tveggja mínútna gamall þegar Phil Jones hafði hjálpað Valencia að auka forystu sína. Batshuayi fékk þá stungusendingu inn fyrir vörn United. Phil Jones virtist hafa fullt vald á því að skýla boltanum en ákvað af einhverjum óskiljanlegum ástæðum að rennitækla boltann í eigið mark. Romero var kominn út til að taka á móti boltanum, Jones virtist ekki hafa hugmynd um hvar Romero var. Þetta mark skrifast alfarið á Phil Jones, hvílíkt klúður!
Það var nánast eins og leikmenn gæfust upp við þetta. Fyrri hálfleikurinn hafði ekki verið neitt sérstaklega góður en seinni hálfleikurinn var enn verri. Það vantaði ákefðina, baráttuna, hungrið og viljann til að koma sér aftur inn í leikinn. Ef eitthvað var þá var Valencia líklegra til að bæta við þriðja markinu. Helsta færið hjá United var þegar Bailly tók boltann á lofti af stuttu færi eftir að Doménech í markinu blakaði hornspyrnu í burtu en Bailly dúndraði þeim bolta hátt yfir.
Eftir um klukkutíma kom Marcus Rashford inn á fyrir arfaslakan Fred. Rashford kom með ákafa inn í leikinn og fékk svo Jesse Lingard inn með sér þegar 20 mínútur voru eftir, þegar Lukaku fór af velli. Það hressti lið United töluvert en það skilaði sér ekki með marki fyrr en um 3 mínútur voru eftir af leiknum. Það var þó reyndar mjög flott mark. Ashley Young kom upp vinstri kantinn, fann Lingard í teignum sem flikkaði boltanum áfram á Mata og tók svo hlaup að markinu. Mata átti fína stungusendingu, Lingard hljóp að endalínu og gaf boltann aftur út á Ashley Young, hann átti síðan fyrirtaks fyrirgjöf sem Rashford gerði vel í að skalla í markið.
Stuttu seinna átti Pogba mjög flotta sendingu yfir vörnina þar sem Mata kom hlaupandi. Mata sneri baki í markið og þurfti að snúa sér um leið og hann tók boltann á lofti. Því miður hitti hann ekki boltann vel úr opnu færi og boltinn skoppaði því framhjá markinu. Ákjósanlegt færi en jafntefli hefði svosem ekki breytt neinu hvað sætið í riðlinum varðaði.
Heilt yfir döpur frammistaða. Fellaini var einna skárstur hjá Manchester United, sérstaklega í fyrri hálfleik. Fred var hrikalegur, það er engan veginn hægt að skilja verðmiðann á honum miðað við frammistöður. Pogba var daufur, fyrir utan frábæra sendingu undir lok leiks. Varnarlínan var of oft úti á túni, Phil Jones átti stóran þátt í báðum mörkum Valencia. Antonio Valencia hefði vel getað fokið útaf, það eru líklega fáir sem telja hann betri en Diogo Dalot.
Rashford var sprækastur í seinni hálfleik, virkaði sá eini sem almennilega vildi þetta. Skoraði líka gott mark.
Framhaldið í Meistaradeildinni
Það hefði svo sannarlega munað miklu að ná efsta sæti riðilsins. Þá hefðu mögulegir andstæðingar liðsins í 16-liða úrslitum verið Ajax, Roma, Lyon, Schalke og Atlético Madrid. En í staðinn eru þetta liðin sem Manchester United getur dregist gegn:
- Barcelona
- Bayern Munchen
- Borussia Dortmund
- Paris Saint-Germain
- Porto
- Real Madrid
Að auki er það ljóst að Manchester United mun eiga fyrri leikinn í einvíginu á heimavelli og seinni leikinn á útivelli. Dregið verður klukkan 12:00 mánudaginn 17. desember. Fyrri leikir 16-liða úrslita verða spilaðir 12.-13. febrúar eða 19.-20. febrúar og seinni leikirnir annað hvort 5.-6. mars eða 12.-13. mars.
U19-liðið
Fyrr í dag fór fram lokaleikur U19-liðsins í H-riðlinum á UEFA Youth League keppninni. Liðið hafði staðið sig afskaplega vel fram að þessu, var taplaust og hafði unnið 4 af 5 leikjum sínum. Nicky Butt, þjálfari liðsins, ákvað að nýta tækifærið og leyfa nokkrum enn yngri leikmönnum að vera með í hópnum, í bland við leikmenn sem höfðu spilað töluvert og átt góða leiki, eins og Angel Gomes og Tahith Chong. Bekkurinn var mjög reynslulítill.
ACADEMY NEWS: Team v Valencia Fojticek, Tanner, O’Connor, Ercolani, Devine; Barlow, Gomes, Chong, McGhee; Burkart, Ramazani Subs: Carney, Neville, Bejger, Denham, Helm, Fish, Shoretire. Most subs never played a full game in U/18’s yet…great experience #mufc
— The MUFC Academy 🐝 (@mrmujac) December 12, 2018
Það þýddi þó ekki að þeir fengju ekki sénsinn, enda væri það ekki mjög United-legt. Valencia komst yfir í leiknum á 13. mínútu með marki frá Jordi Escobar. Escobar þessi er aðeins 16 ára gamall en hefur þó þegar vakið athygli á Spáni og þykir einn efnilegasti leikmaður yngra starfs Valencia í lengri tíma.
Manchester United náði þó að snúa stöðunni sér í vil fyrir leikhlé með mörkum frá Nishan Burkart og Aidan Barlow. United hafði svo yfirburði í leiknum eftir það en virkuðu stundum nokkuð óöryggir varnarlega. Það kom þó ekki að sök því markvörður liðsins, Alex Fojtíček frá Slóvakíu, átti mjög góðan leik og varði til dæmis tvö dauðafæri á lokamínútum leiksins.
Valence 1 – 2 Manchester United (Nishan Burkart & Aidan Barlow) #MUFC pic.twitter.com/5zqO8JWD1J
— Fabio (@FabioProd) December 12, 2018
Afskaplega vel gert hjá guttunum, sérstaklega þar sem varamennirnir fengu flestir að spreyta sig í síðari hálfleik. Það markverðasta þar var að Shola Shoretire kom inn á þegar um korter var eftir og varð þar með bæði yngsti leikmaðurinn til að taka þátt í keppninni og yngsti leikmaðurinn til að spila fyrir Manchester United í þessum aldursflokki í nokkurri keppni. Ekki amalegt fyrir leikmann sem er fæddur 2. febrúar 2004 (10 dögum eftir að Louis Saha gekk til liðs við Manchester United frá Fulham).
Future 🤴🏽😍 https://t.co/s9yDXr6V9h
— Santi Gomes (@agomes_47) December 12, 2018
Annað athyglisvert við skiptingarnar í seinni hálfleik var að Harvey Neville kom inn á fyrir Luca Ercolani á 70. mínútu. Harvey Neville er sonur Phil Neville, litli frændi Gary Neville og sonarsonur Neville Neville. Hann var þarna að spila gegn sínu fyrra félagi en hann æfði hjá Valencia frá 2015 og þar til nú í sumar þegar hann gekk til liðs við Manchester United.
Also making his #UYL debut for round of 16-bound @ManUtd in their 2-1 win at @valenciacf today was Harvey Neville, son of @Lionesses manager Phil (and nephew of Gary), who spent time at Valencia when his father and uncle were coaching there pic.twitter.com/1iTTDH8Q46
— UEFA Youth League (@UEFAYouthLeague) December 12, 2018
Manchester United var búið að tryggja sigur í riðlinum fyrir þennan leik, það var þó virkilega sterkt að enda riðlakeppnina svona vel. United fer þar með beint í 16-liða úrslit keppninnar á meðan Juventus þarf, eins og önnur lið sem lentu í 2. sæti síns riðils, að taka þátt í umspili um að komast í 16-liða úrslitin. Þar mætast þau 8 lið sem enduðu í 2. sæti riðlanna og 8 lið sem hafa unnið sig upp á þetta stig mótsins úr útsláttarkeppni landsmeistara liða í þessum aldursflokki.
Umspilsleikirnir fara fram 19. og 20. febrúar. Í kjölfarið á því verður dregið þann 22. febrúar um hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum. Þá mun þó ekki skipta máli hvort lið unnu riðil eða komust í gegnum umspil en hins vegar geta lið sem voru saman í Meistaradeildarriðlunum ekki dregist saman. Hins vegar geta sigurvegarar tveggja riðla vel mæst, sem og lið frá sömu löndum.
Leikirnir í 16-liða úrslitum verða svo spilaðir 12. og 13. mars. Bæði í umspilsleikjum og öllum leikjum í útsláttarkeppninni er aðeins um eins leiks viðureignir að ræða. Í umspili, 16-liða og 8-liða úrslitum fá lið því annað hvort heima- eða útileik. Leikirnir í undanúrslitum og úrslitaleikurinn sjálfur verða svo spilaðir í Nyon í Sviss í lok apríl.
Gauti says
Ef hann hefði sleppt Fellaini þá hefði þetta verið spennandi byrjunarlið.
Sá gaur skemmir mómentið enda afskaplega slappur spilari á alla kanta.
Þokkalegur í skallaboltum en það er ekki taktík sem við viljum sjá frá Manchester United.
Halldór Marteins says
Skv. BT þá átti Scott McTominay að byrja leikinn en hann meiddist á æfingu.
Halldór Marteins says
Og það er augljóslega rangt að Fellaini sé afskaplega slappur spilari á alla kanta. Það hefur hann margsýnt, svona ef menn hafa fyrir því að horfa á leikina sem hann spilar.
Karl Garðars says
Burtséð frá ómikilvægi leiksins. Ég hugsaði þegar ég sá liðið: hvert er maður kominn þegar maður vill helst ekki sjá neinn af þessum 11 í byrjunarliði United akkúrat þessa stundina.
Þessi hörmungar spilamennska frá fyrstu sekúndu styrkir mann svo í þeirri trú.
Ég vil sjá Greenwood fá mínútur, dettur ekki til hugar að biðja um meira.
Danni says
Djöfull er Pogba mikið drasl. Vona að þetta rusl drullist burt í janúar.
Auðunn says
Þessi frammistaða í fyrri hálfleik er ógeðsleg svo ekki sé fastar að orði kveðið.
Ég veit ekki hversu margir af þessum leikmönnum ættu ALDREI að sjást í Manchester United treyju. Ekki einusinni á pöbb í Tælandi.
Fellaini, Lukaku, Valencia ofl ættu að skammast sín og biðja um sölu í hálfleik þar sem stjórinn hefur ekki knattspyrnlegt vit á að gera það sjálfur.
Þvílíkt rusl sem þessir menn eru, en ekki að það komi manni mjög á òvart.
Fellaini er svo mikið rusl að það stingur mann.
Hann hefur ekki hugmynd um hvaða stöðu hann á að vera í, hann er bara einhversstaðar og allstaðar fyrir á vellinum.
Bjarni Ellertsson says
Sammála Karli, andleysi, áhugaleysi og skortur á ansi mörgum þáttum knattspyrnunnar einkennir þetta lið og er liðinu til skammar. En við höfum svo sem séð þetta áður í vetur. Get ekki hrósað neinum þessara leikmanna fyrir fyrri hálfleikinn enda er verið bjóða uppá algjöran horbjóð.
Bjarni Ellertsson says
Má ekki hlæja núna að þessu liði, he he he he he
Einar says
Veitir ekki á mjög gott að spila án kantmanna þar sem bakverðirnir hætta sér *aldrei* fram. Þvílíkt bitleysi, andleysi og almennt þrot á þessu liði. Hversu oft er hægt að öskrá Rojo í einum hálfleik?
Við skulum bara vera hreinskilin, þetta lið hefur ekkert að gera í 16 liða úrslitum. Sigurinn á Juve var þvílíkt fluke og það er ástæðan fyrir að við erum núna að skríða áfram en ekki (réttilega) í þriðja sæti og á leið í fimmtudags evrópudeild.
Ég held þó í vonina um að það komi leikmenn inn í síðari hálfleik sem vilji spila fyrir klúbbinn, þó þessir leikmenn séu augljóslega ekki að spila fyrir Mourinho. Þessi hópur er ekki jafn lélegur og Jose vill að maður haldi.
Sindri says
Phil Jones er Pétur Pan ensku úrvalsdeildarinnar.
Sama hvað árin líða þroskast hann ekkert.
Tommi says
Ég verð bara þunglyndur þegar èg horfi á United. Liðið sem veitti manni svo mikla ànægju àður gerir það bara alls ekki lengur.
Búið að vera nòg af false dawns.
Svo sem ekki mikið undir ì dag en andleysið er àþreyfanlegt ì flestum leikjum.
Omar says
Mér er drullu sama hvort að þessi leikur skipti einhverju máli eða ekki. Frammistaðan til háborinnar skammar og leikmenn eiga sér enga afsökun. Ljósið í myrkrinu er Rashford, en bara of lítið og of seint. Verst finnst mér að sjá hversu mikið það skín í gegn að leikgleðin og hungrið er ekki til staðar. Hörmung til þess að hugsa að næsti leikur er á móti erkióvinunum í Liverpool sem hafa verið á þvílíku rönni undanfarið. Þar skortir ekki hungrið og leikgleðina, ég er hræddur um að Rauðu Púkarnir verði étnir af risastórum Pelíkana í næsta leik…
Timbo says
Veit ekki hvort verður meira óþolandi… Flengingin sem við fáum næsta sunnudag, eða þurfa að hlusta kop kórinn þenja sig á eftir.
Gummi says
Fer ekki að koma upphitunar podkast fyrir leikinn?
Kominn of langur tími síðan síðast.
Mín 10 sent eru ef það er ekki of seint að væri gaman að fá stuðningsmann annars liðs með ykkur, ef þið þekkið t.d. einhvern skemmtilegan Liverpool mann sem getur talað um hlutina bara eins og þeir eru.. (Án leiðinda)
Ég fylgist með ykkur og hlusta ávalt. Ég er nú reyndar Púlari, en verð nú samt að hrósa ykkur hérna á síðunni, standið ykkur mun betur en liðið ykkar…. En það koma ávalt svona tímar… Liverpoolmenn þekkja það vel…
En það munar alveg ótrúlega mikið að fá annað sjónarhorn oft og hjálpar manni að sjá hlutina jafnvel réttara en maður telur sjálfur…(Taka niður liðsgleraugun)
Get nefnt sem dæmi við liverpoolmenn vorum alveg sannfærðir um ákveðinn leikmann…(Man ómögulega hvað það var samt) En svo heyrði ég ykkur ræða þennan leikmann og þið voruð á allt annarri skoðun og komuð með rök fyrir því…. Mín fyrsta hugsun var, nei nú hafiði rangt fyrir ykkur…hugsaði og melti rökin….nei þið höfðuð rétt fyrir ykkur…. því þið flestir af ykkur voruð ,,hlutlausir“ en sáuð manninn eins og hann var… :)
Að fá ,,liverpool mann eða konu sem þið þekkið og getur bent á hluti hjá manjú lífgar bara uppá podköstin tel ég :)
Betur sjá augu en auga :)
En ég persónulega hef gaman að hlusta á ykkur alla….Björn svosem lætur stundum Liverpool hatrið stjórna sér kannski of mikið… En skil það alveg…það eru Púlarar sem eru alveg eins….
En ekki láta podkastið minnka þó gengið sé ekki ásættanlegt…. Þetta er jafnvel það eina góða semstuðningsmenn hafa þegar illa árar á vellinum :)
Ætla svosem ekkert að segja mikið um Móra annað en ég sé ekkert annað í spilunum en að láta hann fara…Því fyrr því betra fyrir ykkur. Hann er alveg búinn á því einhverja hluta vegna…
Lífið heil og megi betra liðið vinna um helgina :)
Kveðja Gummi