• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Meistaradeild Evrópu

PSG annað kvöld

Magnús Þór skrifaði þann 19. október, 2020 | 1 ummæli

Annað kvöld hefst riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Manchester United snýr aftur eftir árs fjarveru. Síðasti sigurleikur United í Meistaradeildinni kom einmitt á Parc des Princes en þar fer viðureign liðanna fram annað kvöld.

PSG

Paris Saint-Germain  byrjaði tímabilið heima fyrir frekar brösluglega. Liðið byrjaði með ósannfærandi töpum en hefur verið að koma til og hefur unnið 5 leiki í röð og situr í 2. sæti Ligue 1. PSG hefur ekki bara verið verið óheppið með meiðsli leikmanna heldur voru líka að koma upp Covid smit í hópnum. Síðasti leikur liðsins var sannfærandi 0:4 sigur á Nimes á útivelli.

Embed from Getty Images

Búið er að staðfesta að þeir Marco Verratti og Leandro Paredes verði ekki með vegna meiðsla. Julian Draxler og Marquinhos eru byrjaðir að æfa og eru líklegir til  að koma við sögu í leiknum annað kvöld.

 

Manchester United

United hefur byrjað þetta tímabil frekar skrautlega og hafa unnið 3 leiki og tapað 2. Tveir þessara siguleikja voru gegn Brighton í deild og deildabikar. Eins og frægt er orðið var liðið kjöldregið af Tottenham fyrir landsleikjahléið. Liðið svaraði vel með góðri frammistöðu gegn Newcastle United í 1:4 sigri þar sem mörkin komu seint en voru verðskulduð.

Embed from Getty Images

Liðið hefur sloppið við stór meiðsli hingað til og eina Covid smitið greindist fyrir tímabilið hjá Paul Pogba. Edinson Cavani er byrjaður æfa með liðinu og en hann verður ekki með gegn PSG. Mason Greenwood verður áfram frá vegna minniháttar meiðsla en Solskjær vonast til að hann verði klár um næstu helgi. Einnig hefur komið fram að Bruno Fernandes verði fyrirliði liðsins í leiknum annað kvöld í fjarveru Harry Maguire sem fór ekki með til Parísar.

Mögulegt byrjunarlið

1
De Gea
23
Shaw
2
Lindelöf
3
Bailly
27
Telles
6
Pogba
18
B. Fernandes
17
Fred
29
Wan-Bissaka
10
Rashford
9
Martial
Efnisorð: Meistaradeild Evrópu PSG Upphitun 1

Reader Interactions

Athugasemdir

  1. 1

    Sveinbjörn says

    20. október, 2020 at 12:15

    Er furðulega rólegur yfir þessum leik. Ætla að spá sigri þar sem Rashford verður mikilvægur. Takið þið svo ekki post match viðtal við Berba?

    1

Skildu eftir svar Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Má bjóða þér að auglýsa

Síðustu ummæli

  • Sveinbjörn um Fulham 1:2 Manchester United
  • Cantona no 7 um Fulham 1:2 Manchester United
  • Karl Garðars um Fulham 1:2 Manchester United
  • Helgi P um Fulham 1:2 Manchester United
  • gummi um Fulham 1:2 Manchester United

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2021 · Keyrt á WordPress