Markalaust jafntefli í tíðindalausum leik.
1
De Gea
23
Shaw
5
Maguire
2
Lindelöf
29
Wan-Bissaka
17
Fred
6
Pogba
39
McTominay
18
B. Fernandes
11
Greenwood
10
Rashford
Bekkur: Henderson, Bailly, Alex Telles, Mata, Matic, van de Beek, Martial (Greenwood 74′).
Turninn Pallister says
Jæja loksins leikur þar sem maður getur hrósað varnarlínunni. Heilt yfir fín frammistaða þar, bæði hjá markmanni og vörn. Annars fremur bragðdaufur leikur og lítið um baráttu og bardaga frá fyrri tíð.
Golli Giss says
Góður leikur hjá okkar mönnum, gegn frábæru liði. 442 hentar greinilega best meðan vörnin er ekki eða stundum ekki traust. Komaso
Elis says
Þetta var bara skelfilegt.
Staðan er orðin þannig á Man utd að 0-0 jafntefli á heimavelli í alveg hundleiðinlegum leik gegn Man City(sem liðið sigraði tvisvar á síðustu leiktíð) er bara allt í einu flokkaður sem góður leikur.
Þetta var einfaldlega góð framistaða ef Man utd er flokkað sem miðlungs lið sem skapaði sér ekkert í 90 mín á meðan að gestirnir fengu 2-3 góð færi til að klára leikinn.
Ég reikna samt með því að flestir hrósa þessari framistöðu af því að þetta var Man City en það verður að taka með í reikningin að þetta er Man City lið sem virkar ekki sanfærandi og hefur einungis núna unnið 5 leiki af 11 sem er ekki merkilegt á þeim bænum.
sigurvald says
Góðir hlutir gerast hægt. 🙂
Rúnar P says
Besti varnarleikur sem þessi ManU vörn hefur spilað lengi, vantaði samt mikið upp á að sending hjá okkar mönnum rötuðu á rétta menn og svo allt bit í sókn hjá báðum liðum
Ekki mikið fyrir augað
Björn Friðgeir says
Þetta er held ég í annað skiptið sem tekst ekki að manna skýrslu. Og þetta hafa okkar menn fundið á sér því þeir okkar sem sá leikinn eða megnið af honum eru fullkomlega sammála ofangreindri skýrslu Magga, sem sá ekki leikinn *grátandihláturstjákn*
Vörnin fín reyndar, en þetta City lið var fullkomlega bitlaust!
Karl Garðars says
Á þessum síðustu og verstu þá hefur það reynst ágætlega fyrir geðheilsuna að bíða með að tjá sig um leikina fyrr en daginn eftir. Eftir hnakkaskitur eins og RB leikinn er farsælast að sleppa því alveg.
Í þessu tilfelli er ég neikvæðari í dag en í gær því það er nú ekki oft sem maður er að því kominn að sofna sitjandi yfir derby leik en…
Mér fannst vörnin í lagi en ekkert meira en það. En finnst einhverjum þessi vörn í lagi fyrir 200m punda og þá staðreynd að það þarf alltaf 2 varnarsinnaða miðjumenn til að dæmið gangi upp í einhverjum tilfellum? Ég myndi allan daginn frekar þiggja Kára og Ragga og bland í poka fyrir afganginn.
Shaw fannst mér koma sterkari inn eftir að Torres kom inn á en fram að því var hann eins og Luke Shaw að koma upp úr meiðslum.
AVB hefur legið undir ámæli fyrir staðsetningar upp á síðkastið. Èg hvet fólk til að skoða hvað sá sænski við hliðina á honum er að bralla í þessum færum og mörkum sem við höfum verið að fá á okkur.
Pogba var bara nokkuð góður og McT mjög góður. Mér fannst hann t.a.m sá eini sem spilaði eins og maður vill sjá liðið spila í derby leik á Old Trafford.
Að því sögðu þá fannst mér líka Fred spila vel þangað til á c.a. 50 mín þegar hann varð straumlaus. Gott ef hann var ekki hálfmeiddur eftir samstuð í fyrri. Hann hélt sig m.o.m í snóker frá boltanum eftir það og reyndi sitt besta í varnarleiknum. Ole sýndi þá leikplanið sitt, í fram að því tíðindalausum leik, þegar hann sendi Matic að hita upp ef Fred þyrfti að fara út af. Þá hefði ég í alvöru talað, slökkt á sjónvarpinu.
Eftir stendur að við hefðum alveg eins getað hvílt framherjana því við sköpuðum nánast ekki neitt að gagni og city áttu ef eitthvað er sigurinn frekar skilið.
Markalaust jafntefli í leik á móti rjúkandi heitu meistaraliði City = ok varnarsigur og blah blah.
En þetta var markalaust, varnarströggl með heppnisívafi sem marðist í jafntefli í leik á móti city liði sem situr um miðja deild með 3 jafntefli og 2 töp eftir 10 spilaða leiki.
Það er fullt af stuðningsfólki, liðsmönnum og auðvitað þjálfarasnillingunum sem finnast þetta góð úrslit.
Hvert erum við komin í meðalmennskunni og metnaðarleysinu? Það er vissulega ekkert sjálfgefið í þessu og maður gæti fallist á þetta ef það væri ekki búið að ausa í þetta lið hundruðum milljarða ISK og fara í gegnum þjálfaraflóruna nánast eins og hún leggur sig. Mindsettið fyrir leik er algjört þrot, andvana fætt og í boði hvers….??
Ég persónulega vildi gefa Ole og co. tíma til að vinna og finna þessi marg umræddu DNA og auðkenni. Ástæðan fyrir því að ég er missa þolinmæðina núna er sú að 2 ár eru liðin og Ole virðist hvorki vita sitt sterkasta lið né sterkasta leikkerfi. Hann er að klúðra leikjum taktískt áður en þeir eru flautaðir á og situr svo bara eins og froskur og bíður eftir að hlutirnir lagist í staðinn fyrir að bregðast strax við. Uppleggið virðist svo æði oft vera að spila fokdýru liði með einhverjum david moyes underdog þankagangi og vona það besta. Treysta á einstaklingsgæði og form í stað þess að mynda öfluga liðsheild með góðu skipulagi. Duglegustu menn ganga á lagið og drabbast niður ef engin er gerð krafan til þeirra eða hinna í liðinu. Það er eðli skepnunnar.
Í þokkabót virðast þjálfararnir ekki geta gert neinn einstakling betri en þeir hafa getað gert suma verri á undraverðum tíma. Ég hafði trú á kaup og sölu stefnunni en síðasti gluggi og þá aðallega kaupin á Van de beek til þess eins að nota hann ekki pirra mig. Ekki hjálpar að Mcguire er að spila í besta falli sem 35m punda miðvörður.
Nú er sigurhlutfallið hjá Ole ekkert afleitt en m.v. aurana sem eru á bak við liðið og leikina sem eru að tapast þá er þetta að mínum dómi ekki ásættanlegt. Það eru allt of mörg æpandi hættumerki til þess að láta þetta óátalið. Þessir þjálfarar virðast vera of reynslulaus og lítil númer fyrir verkefni á þessu leveli.
Einn púlaravinur minn sagði: þið eruð líklega á svipuðum stað og við vorum undir Kenny Daglish. Úfffff…
Fyrir mörgum árum var Bielsa orðaður við liðið og ég væri ennþá mikið til í það ef Ole skilar engu nema kannski meistaradeildarsæti eftir þessa leiktíð. Er samt ekki viss um að Bielsa myndi vilja reyna að slökkva í þessu brennandi húsi.
Ranti lokið, afsakið lengdina.
Hilmar V says
Búnir að vinna 1 heimaleik í deild þetta er ekki boðlegt burt með Solskjær strax
Helgi P says
Hvernig í andskotanum gátum víð tapað fyrir þessu Arsenal liði er eķki kominn tími á að spila smá soknar bolta og Solskjær vetður að fara drullast til að fara nota van de beek hann er alltaf með betri mönnum þegar hann spilar annars er hann eftir að fara í janúar