• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 6:2 Leeds United

Daníel Smári skrifaði þann 20. desember, 2020 | 14 ummæli

Manchester United vann 6-2 stórsigur á erkifjendunum í Leeds United. Ekki amalegt það!

Svona stilltu liðin upp:

Manchester United:

1
De Gea
23
Shaw
5
Maguire
2
Lindelöf
29
Wan-Bissaka
39
McTominay
17
Fred
10
Rashford
18
Bruno
21
James
9
Martial

Leeds United:

1
Meslier
10
Alioski
2
Ayling
6
Cooper
15
Dallas
23
Phillips
22
Harrison
43
Klich
20
Rodrigo
18
Raphinha
9
Bamford

Leikurinn byrjaði frábærlega fyrir okkar menn þegar Bruno Fernandes lagði boltann fyrir töfrafætur Scott McTominay sem hamraði boltann í bláhornið framhjá Meslier. 1-0 og 2 mínútur liðnar!

Það leið heil mínúta áður en greyið Meslier þurfti að tína boltann úr netinu og aftur var það McTominay. Í þetta skiptið kom hann á ferðinni í gegnum miðjuna, tók listavel á móti sendingu Anthony Martial og renndi boltanum rólega í fjærhornið. 2-0 og við í draumalandi. Eftir seinna mark McTominay gafst Leeds tími til að ná örlítilli fótfestu í leiknum en það var ljóst að rauða liðið ætlaði að refsa fyrir hver einustu mistök þeirra hvítklæddu.

Leeds fékk þó tækifæri til að komast aftur inn í leikinn þegar að Patrick Bamford slapp í gegn en blessunarlega hentaði vinkillinn ekki sterkari fæti Bamford og hann setti boltann víðsfjarri markinu. Leikurinn var ákaflega hraður og Leeds hvergi af baki dottnir. Maður hafði þó alltaf á tilfinningunni að United myndi ekki staldra við tvö mörk. Það varð svo raunin þegar að Bruno Fernandes batt endahnútinn á stórkostlega skyndisókn Manchester United. 3-0 eftir 20 mínútur!

Eftir þriðja mark okkar manna náði Leeds meiri fótfestu á boltanum og náðu að festa United liðið dýpra á vellinum, án þess þó að skapa sér mikið. Það byrjuðu að hringja varúðarbjöllur þegar við fengum á okkur horn eftir horn. Það voru þó ekki gestirnir sem skoruðu eftir hornspyrnu, heldur Manchester United. Nánar tiltekið var það sænski miðvörðurinn Victor Lindelöf. Hann tók snjallt hlaup á fjærstöngina og rak boltann yfir línuna eftir að Anthony Martial hafði skallað boltann áleiðis. 4-0 – leik lokið á 37. mínútu?

Leeds höfðu aðrar hugmyndir og tæpum fimm mínútum seinna hafði Liam Cooper skallað hornspyrnu Raphinha í bláhornið og minnkað muninn í 4-1. Enn eitt markið sem við fáum á okkur eftir fast leikatriði! Stuttu síðar flautaði Anthony Taylor til loka fyrri hálfleiks og fjörinu langt því frá lokið.

Marcelo Bielsa gerði tvöfalda skiptingu í hálfleik þegar hann skipti Kalvin Phillips og Mateusz Klich útaf fyrir Pascal Struijk og Jamie Shackleton. Það virtist litlu ætla að skila þar sem að Anthony Martial hafði komið sér í dauðafæri á 47. mínútu en markaskórnir hans eru enn sem komið er týndir. Það var svo þremur mínútum seinna sem að David de Gea varði stórkostlega frá Raphinha þegar Brasilíumaðurinn fékk gott færi á fjærstönginni.

Næsta korterið var sennilega daufasti kaflinn í þessum bráðfjöruga leik, en Leeds liðið var þó meira með boltann án þess þó að skapa sér nokkuð hættulegt. Solskjær skipti þá Alex Telles inn fyrir Luke Shaw á 60. mínútu. Raphinha átti ágætis tilraun fyrir utan teig United en de Gea sá boltann allan tímann og varði í horn.

Það var svo á 66. mínútu sem að Daniel James slökkti í öllum vonum Leeds um endurkomu þegar hann setti boltann glæsilega í gegnum klof Meslier eftir frábæran undirbúning markavélarinnar Scott McTominay. 5-1. Djöfull er gaman að vinna Leeds aftur! Fjórum mínútum síðar braut Pascal Struijk klaufalega á Martial innan vítateigs og Taylor gaf sér smá tíma til umhugsunar áður en hann benti á punktinn. Þar gerði hinn óviðjafnanlegi Bruno Fernandes engin mistök og setti sorgmæddan Meslier í rangt horn. 6-1. 6-1. SEX-EITT!

Edinson Cavani og Donny van de Beek komu inn á 71. mínútu fyrir Bruno Fernandes og Marcus Rashford, sem báðir spiluðu frábærlega. Rashford lék sér oft að varnarmönnum Leeds og var óheppinn að skora ekki í leiknum. Tveimur mínútum eftir innkomu Cavani og van de Beek skoraði Stuart Dallas glæsilegt mark og minnkaði muninn í 6-2.

Síðustu mínútur leiksins voru fáránlegar. Okkar menn hefðu hæglega getað bætt við 5-6 mörkum og Leeds sennilega skorað 1-2 til viðbótar sjálfir. Cavani, Fred, Daniel James og Alex Telles komust allir í góð færi – sumir oftar en einu sinni! Jack Harrison klúðraði á óskiljanlegan hátt hinu megin. Þetta er í raun saga leiksins… sókn, sókn og aftur sókn. Magnaður leikur áhorfs og dásamlegt að sjá liðið skora helling af mörkum og extra sætt að sjá það á Old Trafford! Hægt er að tilnefna marga sem mann leiksins í dag en mitt atkvæði hlýtur Scott McTominay. Hann var allsstaðar, skilaði boltanum vel frá sér, braut upp sóknir og valdi sjálfur rétt augnablik til að sækja.

Anthony Taylor flautaði svo til leiksloka og Ole Gunnar Solskjær og lærisveinar hans gátu brosað breitt. Manchester United fer í heimsókn á Goodison Park og spilar gegn Everton í Deildarbikarnum, á miðvikudaginn næsta. Kjörið tækifæri fyrir Solskjær til að hvíla lykilmenn og gefa minni spámönnum sénsinn. Mögulega gætum við fengið að sjá Facundo Pellistri spila fyrir aðalliðið í fyrsta sinn. Áfram Manchester United!

 

 

14

Reader Interactions

Athugasemdir

  1. 1

    Hilmar V says

    20. desember, 2020 at 15:45

    Er Solskjær að reyna eyðilegja feril Van de Beek að trysta james í staðinn fyrir Van de Beek er brandari

    2
  2. 2

    Olafur Karl Olafsson says

    20. desember, 2020 at 15:53

    Slappadu af, VDB fær sinn séns, mér finnst tetta gód uppstilling, tad eru mjøg margir leikir á mjøg stuttum tíma,

    10
  3. 3

    Hilmar V says

    20. desember, 2020 at 16:18

    Ég efast um að þú segir að þetta hafi verið góð uppstilling eftir leik þetta gæti orðið stórt tap hjá okkur í dag

    3
  4. 4

    Olafir Karl says

    20. desember, 2020 at 17:36

    Jep Hilmar, horfu nu å leikinn fyrst? Og svo geturdu vælt eins og tu villt, tad er ekki svo langt til liverpool

    15
  5. 5

    Turninn Pallister says

    20. desember, 2020 at 17:44

    Úff þessi leikur er rosalegur, hef ekki oft horft á leiki þar sem mér finnst að 4 mörk í fyrri hálfleik dugi ekki til sigurs. Sótt endanna á milli og hreinlega ótrúlegt að enn sé 3 marka munur. Hvað sem gerist þá er þetta frábær leikur!

    5
  6. 6

    Golli Giss says

    20. desember, 2020 at 17:59

    Já nú er gaman, la la la lalaala..

    3
  7. 7

    Turninn Pallister says

    20. desember, 2020 at 18:28

    Frábær leikur, hefðum getað skorað 10 mörk í þessum leik. Það er nokkuð ljóst að okkur líður best ef við komumst á undan yfir og getum sótt hratt. Var alveg vitað miðað við það hvernig Leeds lestin sækir í sínum leikjum að við myndum ekki halda hreinu. Martial hefði leikandi getað gert þrennu, en mark og 3 stoðsendingar eru nú ekkert svo slæmt, þannig að ég horfi framhjá því í dag. McTominay geggjaður í dag og vonandi eru þessi meiðsli ekki alvarleg, þar sem við þurfum á breiddinni að halda yfir þessa jólatörn.

    8
  8. 8

    Hjöri says

    20. desember, 2020 at 18:48

    Hilmar V er ekki miklu betra að tjá sig bara etir leik, og kvarta þá yfir hvort uppstillingin var góð eða slæm.

    5
  9. 9

    Rúnar+P. says

    20. desember, 2020 at 19:04

    Geggjað að vinna svona leik, samt enn þá meira geggjað að horfa á leik með yfir 40 marktilraunum.

    3
  10. 10

    Turninn Pallister says

    20. desember, 2020 at 19:18

    Leiðrétti að sjálfsögðu að auðvitað skoraði Martial ekki í þessum leik, ætlaði að skrifa „fiskuð vítaspyrna og 2 stoðsendingar“. Gleymdi mér aðeins í sigurgleðinni 😉

    5
  11. 11

    Þorsteinn says

    20. desember, 2020 at 19:45

    Frábær leikur og vonandi erum við að komast fyrir alvöru í gang, frábært að sjá liðið sækja frá fyrstu og vonandi verður framhald á því. Maður vandist því að liðið byrjaði frekar illa með Alex og væri komið í gírinn þegar jólavertíðin byrjaði – þetta virkar heimilislega og ég vona að það verði rauninn.

    2
  12. 12

    Karl Garðars says

    20. desember, 2020 at 21:24

    Þvílík skemmtun þessi leikur!
    Allir að spila grimmt og vel.

    Eftir svona fjör þá gæti maður alveg séð sig nýbólusettan og hrikalegan gargandi Heija Úle á Old Trafford áður en 2021 er úti.
    En til þess þarf helvíti margt að ganga upp innan vallar sem utan.
    Er á meðan er! 👏👏🙌

    2
  13. 13

    Cantona no 7 says

    21. desember, 2020 at 15:16

    Ole

    1
  14. 14

    gummi says

    22. desember, 2020 at 16:42

    Ætli maður verði ekki hrósa Óla kallinum fyrir þennan leik klárlega besti leikur skemmtilegasti leikur sem ég hef horft á United spila síðan Ferguson hætti

    3

Skildu eftir svar Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Atli um Manchester United 0:0 Real Sociedad
  • Karl Garðars um Manchester United 0:0 Real Sociedad
  • Robbi Mich um Manchester United 0:0 Real Sociedad
  • Helgi P um Manchester United 0:0 Real Sociedad
  • Helgi P um Manchester United 3:1 Newcastle United

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2021 · Keyrt á WordPress