• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska bikarkeppnin

Manchester United 1:0 West Ham

Björn Friðgeir skrifaði þann 9. febrúar, 2021 | 6 ummæli

De Gea er heima í dag og Bruno á bekknum, en annars er þetta hörkusterkt lið og Amad fær að vera í hóp

26
Henderson
27
Telles
5
Maguire
2
Lindelöf
29
Wan-Bissaka
17
Fred
31
Matić
10
Rashford
34
Van de Beek
11
Greenwood
9
Martial

Varamenn: Grant, Shaw, Tuanzebe, Shaw, Bruno, James, McTominay, Amad, Cavani

Lið West Ham

Fabianski
Cresswell
Ogbonna
Dawson
Coufal
Noble
Rice
Bowen
Fornals
Soucek
Yarmolenko

Þetta var allt frekar átakalaust fyrstu tíu mínúturnar, West Ham komst varla fram fyrir miðju, og boltinn kom varla inn í teig West Ham.

Loksins komst Martial inn í teiginn og var kominn í færi en Ogbonna komst vel fyrir skotið og vildi ekki betur til en að Martial steig óvart á ökkla Ogbonna og sá síðarnefndi þurfti að fara útaf, Issa Diop kom inn á

Áfram hélt þetta svona, Unitd komst lítt áfram, reyndu einhver vonlaus langskot. Það var loksins á 26. mínútu að hætta skapaðist, Alex Telles tók horn, Lindelöf átti skalla í varnarmann og aðeins frábær skutla Fabianski bjargaði í stöng.

United hélt áfram að reyna að finna glufur en gekk illa og síðustu tíu mínútur hálfleiksins sótti West Ham í sig veðrið og tókst að komast í nokkrar sóknir.

Það var bætt við þremur mínútum aðallega vegna samstuðs Martial og Diop eftir hálftímaleik, og United sótti þann viðbótar tíma en náði ekki að búa til neitt.

Mjög viðburðalaus fyrri hálfleikur og United tókst engan veginn að finna leiðir til að vinna á þéttri vörn West Ham. Diop þurfti að fara útaf í hálfleik, hann skallaði í Martial eftir horn United þarna í fyrri hálfleik og fór sjálfur greinilega ver út úr því. Ryan Fredericks kom inn á. West ham skipti líka Ben Johnson inná fyrir Bowen.

Seinni hálfleikur var varla kominn í gang þegar Yarmolenko reyndi skot, lenti illa og sneri sig. Rétt á eftir lenti hann svo í samstuði við Maguire og endaði á að fara útaf. Ademipo Odubeku kom inn á

Loksins á 53. mínútu kom dauðafæri, eftir fyrirgjöf og framlengingu Rashford var Martial dauðafrír á markteig en tók létt innanfótarskot sem Fabianski blokkaði vel, örlítið þröngt færi en Martial hefði mátt gera betur.

En West Ham tók upp á þeim óskunda að fara að sækja meira og voru um tíma alveg með stjórn á leiknum. Þeim gekk næstum betur að koma boltanum á menn í teignum en færin létu á sér standa.

Sem fyrr var Solskjær ekkert að flýta sér að skipta þó fimm skiptingar séu leyfðar í bikarnum, og reyndar ein að auki ef um höfuðhögg er að ræða eins og í tilviki Diop. Loksins á 73. kom þó skiptingin, Fernandes og McTominay komu inná og Donny van de Beek og Nemanja Matic komu útaf. United var þá komið með eitt sitt sterkasta lið allt inná og sóknir United fóru að þyngjast. Ekkert gerðist þó að ráði. Fjórum mínútum fyrir leikslok kom svo Cavani inná fyrir Greenwood en það hafði engin áhrif.

West Ham átti síðustu ógn venjulegs leiktíma, vann horn en úr því varð ekkert.

Mjög daprar níutíu mínútur, og varla nokkuð sem gerðist merkilegt.

Áður en framlengingin hófst komu Shaw og Williams inn í bakvarðastöðurnar fyrir Telles og Wan-Bissaka.

Það gerðist ekki margt fyrstu mínúturnar, en á þeirri sjöundu sótti West Ham, missti bolltann, United komu í sókn, virtust hafa misst af tækifærinu, West Ham náði ekki að hreinsa nema út í teiginn, þar kom Rashford með bakið í mark, nikkaði boltanum til hliðar og McTominay kom á ferðinni og skoraði með föstu skoti. 1-0 United.

Embed from Getty Images

Það gerðist síðan ekkert það sem af var fyrri hálfleik framlengingar, og ekkert í seinni fyrr en að þegar United var í sókn að spila út aukamínútuna komst Martial allt í einu í færi í teignum móti Fabianski, var með varnarmann á sér og skotið engan veginn gott, beint á Fabianski en það var líka það síðasta sem gerðist.

1-0 sigur og United komið áfram og leikur gegn Crystal Palace í mars frestast. Húrra leikjaálag.

Fleira er ekki um leikinn að segja, markið prýðilegt en fáir leikmenn koma frá þessum leik með plús í kladdann.

Efnisorð: Scott McTominay 6

Reader Interactions

Athugasemdir

  1. 1

    Tòmas says

    9. febrúar, 2021 at 21:40

    Sumir hafa verið að kalla eftir að Van De Beek fái fleiri tækifæri en miðað við það sem ég hef séð af honum þá er hann einfaldlega ekki búinn að sýna nóg til að verðskulda fleiri tækifæri.
    Hann er ekki afleitur, tekur fín hlaup.

    McTominay! Koma svo!

    3
  2. 2

    Silli says

    9. febrúar, 2021 at 22:07

    Maður leiksins?
    Ég kýs Fred.

    2
  3. 3

    Cantona no 7 says

    9. febrúar, 2021 at 22:11

    Ole

    2
  4. 4

    Thorleifur says

    10. febrúar, 2021 at 06:46

    Jahérna ! Mjög daprar níutíu mínútur, og varla nokkuð sem gerðist merkilegt. lítið að gerast og United reyndi vonlaus langskot. ?!!

    17 skot 11 innan teigs 9 blokkuð 3 verulega góðar vörslur.
    West ham varðist með 8-10 menn fyrir aftan bolta við vítateig á löngum köflum. Það vantaði neistann og hlaup hjá framherjum okkar, og á köflum var spilið of hægt á móti svona pakkaðri vörn þar sem menn hentu sér fyrir allt. De Beek komst enganveginn í spilið þó hann reyndi mikið. Fred fannst mér bera af í leiknum,þvílík vinnsla og flottar sendingar 😇

    4
  5. 5

    Ómar says

    10. febrúar, 2021 at 08:52

    Sammála Thorleifi nema hvað varðar hlaup framherja. Hamrarnir vörðust of aftarlega til þess. Hins vegar var grátlegt að sjá okkar menn ekki nýta sér þau fáu tækifæri sem gáfust til hraðrar sóknar og dirfsku í spili.

    2
  6. 6

    MSD says

    10. febrúar, 2021 at 09:40

    Hrikalega boring leikur.
    En mig langar að sjá VDB og Bruno saman inná. Ég held að VDB ætti alveg að geta partnerað með varnarsinnuðum Fred,Matic eða McTominay og hafa Bruno í holunni. Vonandi gefst tækifæri til að prófa það nú þegar Pogba er meiddur.

    3

Skildu eftir svar Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Scaltastic um Crystal Palace 1:0 Manchester United
  • Helgi P um Crystal Palace 1:0 Manchester United
  • Þorleifur um Lokaleikur á morgun: Til hvers?
  • Tony um Lokaleikur á morgun: Til hvers?
  • Dór um Brighton & Hove Albion 4:0 Manchester United

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2022 · Keyrt á WordPress