• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 3:1 Newcastle United

Þorsteinn Hjálmsson skrifaði þann 21. febrúar, 2021 | 8 ummæli

Slæmar fréttir bárust í hádeginu fyrir leikinn þar sem tilkynt var að þrír úr þjálfarateyminu væru komnir í einangrun eftir að hafa greinst með COVID-19. Þeir ferðuðust ekki með liðinu til Ítalíu og því smitast á Englandi. Þetta kom hins vegar ekki í veg fyrir að leikurinn færi fram. Inn í teymið fyrir leikinn komu Mark Dempsey aðaliðs þjálfari og Nicky Butt þjálfari U-23 liðsins. Ekkert hefur verið tilkynt um líðann þeirra sem eru smitaðir né hverjir það eru.

Það er fátt sem kom á óvart í liðsvali beggja liða. Hjá okkar mönnum kom ögn á óvart að Daniel James myndi byrja þrátt fyrir flotta framviðstöðu í síðasta leik, enda búist við ekki eins opnum leik sem hentar síður fljótfærum dugnaðarforkum. Það var hins vegar ekki raunin. Bruce gerði aðeins eina breytingu frá síðasta leik. Gayle missti sæti sitt yfir til brassanns stóra og stæðilega Joelinton. Hann gæti hafa verið settur inn í liðið til höfuðs Lindelöf sem hefur átt í stökustu vandræðum með stóra og stæðilega framherja líkt og Joelinton er. Annað kom á daginn þar sem Bruce stillti Joelinton úti á vinstri kanti og smá vaxna Almirón fremst.

Lið Manchester United:

1
De Gea
23
Shaw
5
Maguire
2
Lindelöf
29
Wan-Bissaka
17
Fred
31
Matić
10
Rashford
18
Bruno
21
James
9
Martial

Bekkur: Henderson, Tuanzebe, Bailly, Telles, Mata, Williams, Amad, Greenwood, Shoretire

Lið Newcastle:

26
Darlow
15
Lewis
2
Clark
6
Lascelles
17
Krafth
8
Shelvey
14
Hayden
10
Saint-Maximin
28
Willock
9
Joelinton
24
Almirón

Fyrri hálfleikur

Þegar leikurinn hófst kom á daginn að Bruce ætlaði ekki að liggja til baka og verjast djúpt líkt og undirritaður hélt. Okkar menn héldu vel í boltann en Newcastle pressuðu vel svo boltinn gekk mest megnis milli manna á okkar eigin vallarhelming. Fyrstu færi leiksins voru öll norðann manna sem urðu ýmist til eftir samskiptaleysi í vörn okkar manna eða eftir föst leikatriði, en ekkert sem olli De Gea erfiðleikum. Það var svo eftir hálftímaleik sem eitthvað gerðist við mark Newcastle. Rashford fékk þá boltann utan á kanti og rikti fram hjá bakverðinum Krafth sem náði honum aftur þegar Rashford var kominn inn í teig. Þá lék Rashford fram hjá honum aftur og skaut föstu skoti á nær stöngina og boltinn saung í netinu. Frábært einstaklingsframtak eftir að það hafi lítið verið að frétta af okkar fremstu mönnum í leiknum.

Embed from Getty Images

Það tók Newcastle ekki langann tíma til að jafna leikinn eða um 5 mínútur. Saint-Maximin fékk fyrst fínt færi eftir horn sem De Gea varði aftur í horn. Shelvey tók það horn stutt áður en boltanum var flegnt inn á teiginn. Þar skallaði Maguire boltann frá en ekki lagnt, boltinn féll fyrir Saint-Maximin aftur og nú skaut hann með fyrstu snertingu og hafnaði boltinn í þaknetinu. Eina markverða sem eftir lifði hálfleiksins var skot Fred sem HITTI á markið sem Darlow varði auðveldlega og örlitlar stimpingar milli Bruno og Hayden eftir tæklingu þess síðarnefnda, báðir fengu gult spjald fyrir vikið. Jafnt í hálfleik og greinilegt að smá dofi var yfir liðinu. Hvort það hafi verið vegna hina tíðnefndu fimmtudags leikja þreytu eða COVID truflana í aðdragandanum. Ole þurfti þó að virkja sína leikmenn betur fyrir seinni hálfleikinn sama hver ástæðan gæti verið.

Seinni hálfleikur

Fyrsta færi seinni hálfleiksins féll fyrir Saint-Maximin, aftur eftir að okkar menn skölluðu frá sendingu úr föstu leikatriði, De Gea varði fast skot hans auðveldlega. Eftir um tíu mínútna leik í seinni hálfleik kom Daniel James okkar mönnum aftur yfir. Matic fékk þá boltann við vinstra vítateigshornið og reyndi lága sendingu í átt Bruno Fernandes. Bruno náði ekki til boltans en þess í stað flaut hann yfir á walesverjann litla sem var einn á auðum sjó og kom boltanum fram hjá Darlow í markinu. James með sitt annað mark í jafn mörgum leikjum, ákvörðun Ole að halda honum í liðinu borgaði sig.

Embed from Getty Images

Klukkutími liðinn og þá sýndi Martial loksins eitthvað af sínum hæfileikum eftir að lítið hafi sést til hans fyrr í leiknum. Hann lék þá fram hjá nokkrum varnarmönnum og skaut úr þröngu færi á markið, sem var varið. Nokkru seinna kom Greenwood inn á fyrir Frakkann. Þeir röndóttu héldu áfram að pressa eftir að hafa lent undir og þá af aðeins meiri ákefð enda mjög mikilvæg stig í fallbaráttuna í boði fyrir þá.

Þegar um korter lifði leiks fengu okkar menn víti eftir að Rashford var felldur inn í teignum. Bruno Fernandes gerði enginn mistök og skoraði örugglega með tilheyrandi hoppi. Harry Maguire fékk tvö ágætis skalla færi eftir horn, annað vel varið og hitt fram hjá. Ekkert mark hjá honum núna ólíkt því sem gerðist í fyrri leik liðana á tímabilinu. Þegar skamt lifði leiks gerði Ole tvöfalda skiptingu þar sem Mata og hinn efnilegi Shoretire komu inn á. Fyrsti leikur Shoretire fyrir aðalliðið staðreynd. Hvorugur gerði nokkuð markvert á þeim stutta tíma sem þeir fengu enda ekkert markvert sem gerðist á þessum mínútum.

Embed from Getty Images

Strembinn fyrri hálfleikur en mjög flottur og sannfærandi framviðstaða í þeim síðari. Þrjú mikilvæg stig sem nýtast vel í baráttunni í efsta hluta deildarinnar. Næsti leikur er á fimmtudaginn þar sem Real Sociedad koma á Old Trafford.

 

Efnisorð: Bruno Fernandes Daniel James Marcus Rashford Newcastle United Shola Shoretire 8

Reader Interactions

Athugasemdir

  1. 1

    Karl Garðars says

    21. febrúar, 2021 at 18:35

    Ég vona að Óli karlinn fari nú ekki að setja kjúklingana inn á móti djondjó skelfý. Hann líkist mest eins manns flóðhestahjörð á vellinum.

    Bind annars engar vonir við þennan leik en myndi þó gjarnan þiggja sokkaskúffu frá Martial og Matic.

    1
  2. 2

    Egill says

    21. febrúar, 2021 at 21:04

    Byrjum illa
    Martial gat ekkert
    Maguire gaf mark
    Bruno skoraði og lagði upp
    Gerðum okkur erfitt fyrir gegn einu af lélegustu liðum deildarinnar

    Þetta er sama sagan leik eftir leik, flottur seinni hálfleikur en sá fyrri alveg skelfilegur. Við höfum tapað alltof mörgum stigum með þessu andleysi í byrjun leikja. Við erum búnirnað fá á okkur 32 mörk í deildinni, 2 minna en Liverpool sem hafa verið aðhlátursefni varnarlega síðustu mánuði.

    En 3 stig í safnið og við erum enn í 2. sæti.

    0
  3. 3

    Þorsteinn says

    21. febrúar, 2021 at 22:16

    Mikið var nú gott að vinna þennan leik þó Newcastle sé arfaslakt lið þá var ég alveg á nálum eftir fyrri hálfleik og frekar pirraður. Gaman að sjá James skora og það væri óskandi að hann færi að skína aftur. Það þarf samt að fara laga þessa leku vörn og markvörslu gengur ekki að fá alltaf á sig mörk.

    3
  4. 4

    Rúnar+P. says

    21. febrúar, 2021 at 23:26

    Sorrý en þessi Shola Shoretire verður aldrei full Time ManU leikmaður

    0
  5. 5

    Scaltastic says

    22. febrúar, 2021 at 00:17

    Varnarleikur liðsins er alltaf jafn traustvekjandi… A.þ.s. þá yljar mér alltaf jafn mikið að senda okkar „ástsæla“ Shelvey heim með nýbakað L.

    1
  6. 6

    Cantona no 7 says

    22. febrúar, 2021 at 00:38

    Ole

    2
  7. 7

    gummi says

    22. febrúar, 2021 at 01:23

    Out

    4
  8. 8

    Helgi P says

    22. febrúar, 2021 at 14:02

    Hvað er málið með Solskjær og þessar blessuðu innáskiptingum hann þarf að fara gefa leikmönnum lengur en 2 til 3 mín leik og hvernig kemst Martial alltaf í liðið búinn að vera ömurlegur allt tímabilið

    2

Skildu eftir svar Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Halldór Marteins um Mánuður af sumarfríi
  • Helgi P um Mánuður af sumarfríi
  • Turninn Pallister um Mánuður af sumarfríi
  • Arni um Mánuður af sumarfríi
  • Halldór Marteins um Mánuður af sumarfríi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2022 · Keyrt á WordPress