Fyrir leik gaf Ole það út að líklegt væri að meiðsli Martial í landsleik hefðu verið það alvarleg að líklegt sé að hann verði frá út tímabilið. Síðan voru hvorki Telles né Bailly í hóp og United með einum færri varamann en leyfilegt er.
Varamenn: De Gea, Tuanzebe, Williams, Amad, James, Matic, McTominay, Van de Beek
Lið Brighton var svona
United byrjaði mjög vel og sótti stíft gegn Brighton liði sem lá vel tilbaka. Eitt færi kom úr þessari pressu, skot Greenwood í stöng. Þetta varði þó aðeins fyrstu 10 mínúturnar því Brighton sneri alveg leiknum og tók sókn sem í raun varði alveg hátt í þrjár mínútur og endaði á því að Neil Maupay átti frábæra sendingu fyrir, Victor Lindelöf náði ekki upp í boltann, Danny Welbeck stakk sér fram á undan Wan-Bissaka og skallaði. Dean Henderson varði með fæti en boltinn fór beint út og Welbeck gat haldið áfram hreyfingunni og stangað boltann í netið. 0-1 fyrir Brighton, og enn má setja spurningarmerki við vörn United.
Eftir þetta dró Brighton sig aftur til baka og leikurinn fór í sama farið og í upphafi. Leikmenn United voru þó fjarRi þVÍ að finna einhverjar glufur á vörninni og gekk að auki ekkert alltof vel að halda boltanum og koma honum á samherja þannig vel væri. Það var helst að menn reyndu að hlaupa á vörnina en það þýddi lítið að leika á einn eða tvo því þá beið einfaldlega sá þriðji. Enginn United leikmaður kom vel út úr þessu, Rashford greinilega ekki full-leikfæri, Pogba komst ekki í takt, Fernandes voru mislagðir fætur og Cavani sást varla.
Það var síðan Brighton sem skapaði eitthvað, Lallana fór gegnum vörnina eins og engin væri og renndi boltanum til hliðar þar sem Harry Maguire kom til bjargar með frábærri tæklingu rétt áður en Maupay komst í boltann, sem hefði verið frábært færi. Brighton fékk svo tvær hornspyrnur og skapaði meiri hættu síðustu tvær mínúturnar en United næsta hálftímann á undan, en fóru bara með þessa 0-1 forystu inn í hlé.
Seinni hálfleikur var svo nákvæmlega í sama farinu. United sótti, ómarkvisst og illa, Brighton vörðust með gríðargóðu skipulagi og aga.
En loksins gerðu þeir síðarnefndu mistök, Venkman komst ekki í boltann eftir innkast Brighton, Cavani varð á undan og kom boltanum á Bruno sem lék upp og renndi út á Rashford sem var kominn móti Sánchez og skoraði með nettu skoti. Annað skot United á mark, það fyrra var langskot Rashford snemma í seinni hálfleik.
United sótti vel eftir markið, en á 71. mínútu komu Brighton í gott hraðaupphlaup sem endaði á að Welbeck náði ekki til fyrirgjafar og það var kallað á VAR til að staðfest að Maguire hefði ekki brotið á honum.
Fyrsta skipting United kom í kjölfarið, Marcus Rashford sem virtist sem fyrr segir engan veginn alheill kom af velli og Dan James fór inná.
Brighton setti meiri kraft í leikinn sótti bara þónokkuð og United gat ekki nýtt sér það með skyndisóknum sem hefur þó verið einn af helstu styrkleikunum í vetur.
Loksins á 82. mínútu gerði Ole næstu skiptingu, Donny van de Beek kom inná fyrir Cavani sem hafði verið því sem næst ósýnilegur í leiknum, átti erfitt uppdráttar.
Og það var í næstu sókn sem United komst loksins yfir.
Bruno Fernandes var með boltann vinstra megin í teignum, gaf háa þversendingu og fjær var Paul Pogba sem átti skot sem kjarnaði leik hans í dag, lélegt og í jörðina og inn að vítapunktinum en þar var Mason Greenwood og stangaði boltann framhjá Sánchez og Ben White á marklínunni gat ekki hreinsað nema í netið.
Brighton gáfust ekkert upp og sóttu síðustu mínúturnar en United hélt það út og sigur staðreynd.
Enn og aftur vinnst sigur út á einstaklingsframtak og jafnvel smá heppni. Brighton var vel skipulagt og þjálfað lið, eitthvað sem virðist alltaf vanta uppá. Lengst af leik voru of margir leikmenn ekki í formi, annað hvort líkamlega eða leikformi og það var aldrei gefið að eitthvað fengist úr þessum leik.
En þegar upp er staðið reyndust það þrjú stig og annað sætið er sætt, og ellefu stig í fimmta þannig að meistaradeildarsætisstaðan er góð.
Rúnar P says
Wan-Bissaka endar bara sem annar Valencia hef hann fer ekki að læra að gefa boltan inn í teig! 🤬
Zorro says
Þvilik leiðindi ..get ekki sætt mig við svona meðalmensku…verðum að fá alvöru stjòra….veðurfréttir eru að byrja..þær eru meira spennandi
Egill says
1-0 undir á heimavelli gegn einu af lélegustu liðum deildarinnar.
Sem betur fer erum við með svo jákvæðan og glaðan þjálfara, og captain sem kann heldur betur að rífa menn í gang, þetta verður allt í lagi…
Bjarni Ellertsson says
Flottur Welbeck, þekkir hverja þúfu á gömlu tröð, smá kaldhæðni fyrir viðkvæma. Fyrri hálfleikur arfaslakur en fyrr má nú rota en dauðrota. Hægt að bæta upp slakan fyrri hálfleik með því að girða sig í brók í seinni og hirða þessi 3 stig sem eru í boði.
Karl Garðars says
Þegar Lindelof kom þá hafði maður tröllatrú á honum og fannst bara að það vantaði smá tíma/leiki. Það er svo víðs fjarri.
Ég hélt að vísu líka að Mcguire yrði betri en hann hefur reynst (nb hann er alls ekki búinn að vera slæmur).
Það er mikið rætt núna um hvor eigi að standa í hliðinu eins og það spili einhverja rullu. Henderson hefur meira presence í teignum og De Gea hefur sturlaða reflexa. En hvorugt skiptir nokkru einasta máli þegar vörnin ræðir ekki við auðveldar fyrirgjafir.
Í minningunni þá var Smalling mun betri en Lindelof hefur verið. Er þetta rugl í manni?
SHS says
OLE!
Karl Garðars says
Þetta var grinder. Falleg mörk og gott að sjá Marcus og Mason finna möskvana.
Bjarni Ellertsson says
Frábært að klára þetta í seinni eftir slakan fyrri hálfleik. Meiri ákefð, áræðni og vilji í leikmönnum, kláruðu leikinn með stæl. Erum ágætir þegar þetta þrennt er til staðar.
Áfram Utd.
Egill says
Smalling er að mínu mati by far betri leikmaður en bæði Lindelöf og Maguire, þvílíkt klúður að láta hann fara. Átti sín trúðamóment en var sterkur í loftinu, og þá meina ég að það kom eitthvað úr hans skallaboltum. Hann gat skorað og skallað boltann á samherja, sem er svolítið ólíkt því sem við eigum að venjast með okkar miðverði í dag.
En þar sem ég hika sjaldan við að gagnrýna þá sem mér finnst standa sig illa, þá þarf nú líka að hrósa því sem vel ert gert. Maguire var mjög flottur í dag, stálheppinn að fá ekki á sig víti (ekki í fyrsta skiptið) en stóð sig að öðru leiti mjög vel. Það var ekki mikið um panic í vörninni eins og hefur oft verið og mér fannst Brighton aldrei líklegir til að jafna leikinn.
Virkilega vel gert að koma til baka gegn hreinlega betra varnarliði en okkar, en þessi frammistaða veldur mér samt áhyggjum.
Hlutirnir eru ekkert að batna hjá okkur, þetta er Old Trafford og við vorum í miklu basli við að skapa okkur færi. Það er svo til skammar að fá á sig svona mark eins og við gerðum. AWB og Lindelöf eru ekki góðir varnarmenn. AWB er besti tæklari í heimi, en hann kann ekkert annað varnarhlutverk. Lindelöf getur verið heimsklassa leikmaður á góðum degi, en á þeim næsta er hann hreinlega lélegur, og er það því miður oftar en ekki. Aðrir leikmenn virkuðu margir hverjir þreyttir og leikur liðsins fyrirsjáanlegur, líklegast í 19 leiknum í röð eða hér um bil.
Sterk 3 stig á erfiðum heimavelli, eins sorglegt og það hljómar.
Cantona no 7 says
Ole Ole
Sindri says
Varðandi umræðu um Smalling: Peysutogið hjá honum hefði kostað mörg víti svo hann var losaður á réttum tíma, að mínu mati.
Sigur í dag og hagstæð úrslit þessa helgi, fullyrði að við séum öruggir í top 4.
GGMU.
Björn Kr says
Menn virkuðu stundum eins og þeir væru ekki að tengjast saman sem lið. En ég hef séð það verra jafnvel þó þeir hafa sigrað í þeim leikjum eða gert jafntefli . Fullt af töpuðm boltum og arfaslökum sendingum í þeim leikjum. Hreint oft með ólíkindum. En við höfum líka oft séð betri spilamennsku, sbr leikinn gegn Man City og fyrri leikinn gegn Real Sociedad. En samt hafa þeir bara tapað 4 leikjum í deildinni, en því miður allt of mikið af jafnteflum. Hvað segir það?: Mín skoðun: Vantar alvöru miðvörð við hlið Maguire sem er leiðtogi, helst 190+ og kannski einn alvöru striker til að keppa við hina. En miðað við allt saman er annað sætið ásættanlegt, hin liðin hafa tapað stigum á réttum augnablikum, eins og Chelsea, Leicester og Spurs. En það er nú önnur saga. Eins og maðurinn sagði sigur er sigur og 3 stig í hús sama hvernig þau eru fengin.
Tómas says
Ef Smalling er betri leikmaður en Maguire , afhverju var hann þá seldur frá United?
Afhverju er hann ekki í enska landsliðinu?
Annars ágætis leikur hjá United. Brighton varðist vel. Minni á að Spurs rann á rassinn móti Newcastle og Chelsea móti Wba um helgina.
Egill says
Tja, Lukaku var seldur án þess að framherji kæmi inn í staðin, Herrera var seldur án þess að staðan hans væru fyllt, þannig að vandamálið er mikið frekar hæfni félagsins á leikmannamarkaðnum.
Trent var ekki valinn í landsliðið, er hann þá ekki nógu góður?
Englendingar sem spila erlendis eiga alltaf erfitt með að komast í landsliðið.
Maguire hefur allavega ekki bætt nokkurn skapað hlut í þessari vörn, en á móti höfum við tapað ógninni í föstum leikatriðum.
Tómas says
Við söknum nú ekki Herrera? Jújú hann djöflaðist eins og Fred, þokkalegur leikmaður og hann kyssti merkið og svona.
Lukaku, spurning. En hann vildi fara.
Trent verður í þessum landsliðshóp en þetta er samt spurning um áherslur líka. Er Trent kannski bara svona góður í uberpressu liði sem er mikið með boltann en verri þegar þarf mikið að verjast eins og enska landsliðið þarf í loka keppni.
Myndi segja að Maguire, væri jafn mikill eða meiri markaógn, betri á boltanum og aðeins betri varnarmaður en Smalling.
Halldór Marteins says
Minn maður Maguire var að spila sinn 100. leik fyrir United, ekki amalegt að ná því á ca. 600 dögum.
Hann er náttúrulega augljóslega betri í fótbolta en Smalling, betri í löppunum og með sömu styrkleika í lofteinvígum. Smalling má eiga það að hann er góður karakter og það var vel virðingarvert að hann vildi frekar fara og vera aðalmaðurinn annars staðar en vera þriðji miðvörður hjá United. Ekkert út á það að setja. Hann hefði verið fínn sem squadplayer hjá United en stendur sig mjög vel á Ítalíu.
Maguire er samt miklu meiri leiðtogi. Það er engin tilviljun að hann hafi fengið þetta fyrirliðaband.
Það sást vel hjá mörgum liðum að þetta landsleikjahlé var alls ekkert að fara vel í alla. Frekar galin törn, þannig lagað. Flott að ná að komast út úr þessum fyrsta leik með þrjú stig.
Scaltastic says
Hef fyrir lifandis löngu gert mér grein fyrir því að fyrirliðinn okkar mun seint eða aldrei verða bragð mánaðarins hjá meirihluta aðdáendahópsins. Hver og einn hefur sínar forsendur fyrir sinni skoðun og ekki mitt að dæma um það.
Að mínu mati er Maguire jafn Shaw sem næst/þriðji mikilvægasti leikmaður liðsins. Ég hafði verulegar áhyggjur af honum eftir fyrstu sex vikurnar á tímabilinu, af skiljanlegri ástæðu. Það hvernig hann hefur unnið sig tilbaka eftir það áfall + hann missir aldrei úr leik… hann hefur unnið sér inn mína virðingu og traust a.m.k.
Þetta voru stórir 3 punktar í kvöld og ætti topp 4 að vera geirneglt úr þessu. Það sést vel hvað leikjaálagið er búið að taka sinn toll á mörgum lykilmönnum. Er nokkuð viss um að skrokkarnir á Rashford, Lindelöf, Cavani og Pogba séu cirka 50 – 70 % fit. Það er í raun brutal að stór hluti leikmanna sterkustu deildanna fái kannski 2 – 3 vikna sumarfrí, annað árið í röð. Þetta kemur óneitanlega niður á gæðum fótboltans.
Í ljósi núverandi aðstæðna þá er þeim mun dýrmætara að hryggsúla liðsins (Bruno og Harry) hafa þann eiginleika að geta spilað 90 mín, tvisvar í viku.
Karl Garðars says
Það má alls ekki taka neitt af Mcguire að mínu mati því það þarf ekki annað en að líta á meiðslasögu allra hinna í seinki tíð til að átta sig á því að hann stendur þeim öllum framar.
Hin miðvarðarstaðan er stóra vandamálið og ég held að við fáum ekki fyrir allan verðmiðann á Harry fyrr en hann fær einhvern jafngóðan eða betri sér við hlið.
Það myndi breyta öllu fyrir okkur ef við gefum okkur svo það að Shaw haldist góður og AWB lagi hjá sér grunnatriðin sbr. Staðsetningar og fókus (awareness).
Þá erum við striker (Haland), velspilandi miðjuankeri og mögulega hægri væng (sancho) frá því að vera með þrusu lið.