• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Almennt

Engin Ofurdeild

Magnús Þór skrifaði þann 20. apríl, 2021 | 2 ummæli

Eftir ansi dramatíska tvo sólarhringa frá tilkynningu tólf stórliða evrópskar knattspyrnu um stofnun svokallaðrar Ofurdeild Evrópu virðist vera sem að allur grundvöllur fyrir tilvist hennar sé ekki lengur til staðar. Áformum þessum var mætt af mikilli andstæðu aðdáenda, leikmanna og stjóra félaganna og sameinaðist stuðningsfólk óháð því hvaða lið það styður. Í allan dag vofði yfir að tvö liðanna sex frá Englandi væri komin með bakþanka en það voru Chelsea og Manchester City.

Í dag var svo tilkynnt að Ed Woodward væri búinn að segja af sér en uppsögnin á að fara fram um áramótin. Ekki er ólíklegt að hann fari fyrr enda furðulegt að ætla að kveðja á miðju næsta tímabili. Svo í kvöld var haldinn fundur liðanna tólf og kjölfar hans kepptust ensku liðin við að segja sig úr Ofurdeildinni sem virðist nú vera úr sögunni.

We will not be participating in the European Super League.#MUFC

— Manchester United (@ManUtd) April 20, 2021

Efnisorð: Ed Woodward Ofurdeildin 2

Reader Interactions

Comments

  1. TonyD says

    20. apríl, 2021 at 22:47

    Fari það kolað!! Þetta gerðist bara strax sem sýnir hversu illa ígrundað þetta drasl var og það var greinilega ekki auðvelt að finna þessi 3 auka lið. Hvað hefði gerst ef PSG, Bayern og Dortmund hefðu samþykkt þetta? Var kannski aldrei að fara að gerast og planið var greinilega aldrei nógu solid til þess að halda því til streytu (dómgæsla, leikvangar, samnigngar og margt fleira). Þessi deild er slæmur pabba brandari og klúbbarnir 12 sem tóku þátt hafa gert sig að athlægi næstu árin. Þegar maður hlustar á Perez er alveg glórulaust að það séu til einhverjir með vott af viti sem hlustar á þennan gæja og að setja hann í forsvar fyrir þessa deild, var einfaldlega dauðadæmd hugmynd. Hann, og allir sem komu að þessari ákvörðun eru táknmynd þess sem er að boltanum í dag og þótt víðar væri leitað.

    Takk fyrir að hafa gert það eina rétta í stöðunni og Bless Woody… þín verður vart saknað.

    eitt að lokum,
    Glazer´s out!!

  2. SHS says

    21. apríl, 2021 at 02:53

    Kom þá allavegana eitthvað gott úr þessu! Woodie er að fara! :’D

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Arni um Liðið í Manchester slagnum
  • Helgi P um Liðið í Manchester slagnum
  • Gummi um Liðið í Manchester slagnum
  • Halldór Marteins um Liðið í Manchester slagnum
  • sófinn um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress