• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska úrvalsdeildin

Fáranlega fimm daga törnin heldur áfram

Magnús Þór skrifaði þann 10. maí, 2021 | 3 ummæli

Tveimur dögum eftir góðan sigur á Aston Villa og tveimur dögum á undan fjandaslagnum gegn Liverpool tekur Manchester United á móti Leicester City. Leikurinn skiptir öllu máli fyrir gestina en litlu máli fyrir Rauðu djöflanna þökk sé Gylfa og félögum hans í Everton sem sigraði West Ham um helgina. Leicester einfaldlega verður að vinna tvo og gera eitt jafntefli í leikjunum sem liðið á eftir til þess að komast aftur Meistaradeildina og með því tryggja fimmtudagsfótbolta á Anfield næsta árið.

Embed from Getty Images

Gestirnir urðu fyrir mikilli blóðtöku um daginn þegar Jonny Evans tók uppá því að meiðast og saknaði Leicester hans sárt í tapi gegn Newcastle af öllum liðum. Brendan Rodgers talaði um Evans og sagði að hann væri í rauninni heilinn í vörninni hjá Leicester og virðist liðið sakna hans meira en Harry Maguire nokkurn tíma sem er ótrúlega fyndið. Einnig verður Leicester án þeirra James Justin og hins bráðefnilega Harvey Barnes.

Embed from Getty Images

En talandi um Harry Maguire þá fór fyrirliðinn meiddur af velli gegn Aston Villa og óljóst hvort hann verði meira með á tímabilinu og jafnvel hvort hann nái að fara með Englendingum á EM í sumar. Anthony Martial er áfram meiddur og verður að teljast ansi ólíklegt að  Daniel James verði orðinn klár. Ég  tel það vera dauðafæri hær til að hvíla  menn á morgun þannig að það verði hægt að spila almennilegan leik á fimmtudaginn gegn Liverpool.

Óskalið:

1
De Gea
27
Telles
2
Lindelöf
3
Bailly
33
Williams
31
Matic
39
McTominay
34
Van De Beek
8
Mata
19
Amad
11
Greenwood

Hvaða byrjunarlið viljið þið sjá gegn Leicester? Á Ole að hvíla menn eða stilla upp sínu sterkasta liði?

Efnisorð: Upphitun 3

Reader Interactions

Athugasemdir

  1. 1

    Golli Giss says

    10. maí, 2021 at 12:09

    Engin spurning, hvíla menn, þessi uppstilling hjá þér er mjög góð. Vera með öflugasta mögulega lið á móti Liverpool.

    3
  2. 2

    Steve Bruce says

    10. maí, 2021 at 12:26

    Upp á prinsippið þá væri betra að tapa stigum í þessum leik og keyra svo á LFC á fimmtudag.

    Konan hans Johnny Evans sér um official Man.Utd podcastið í þriggja aðila teymi. Greinilegt að þau hjónin eru all in á United enn þann dag í dag. Mikið svakalega voru gerð mikil mistök þegar Evans var látinn fara frá félaginu.

    6
  3. 3

    MD says

    10. maí, 2021 at 13:34

    Klárlega sammála því, hvíla menn í þessum leik og keyra á Liverpool leikinn. Ég get allavega frekar lifað með því að gefa stig gegn Leicester heldur en Liverpool, plús að þá komum við í veg fyrir að þeir komist í meistaradeild að ári :D

    2

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Tómas um 115. þáttur – Erum við of svartsýn?
  • Arni um Bayern Munich 4:3 Manchester United
  • Zorro um Bayern Munich 4:3 Manchester United
  • Hjöri um Bayern Munich 4:3 Manchester United
  • Egill um Bayern Munich 4:3 Manchester United

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2023 · Keyrt á WordPress