• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 3:2 Arsenal

Þorsteinn Hjálmsson skrifaði þann 2. desember, 2021 | 6 ummæli

Flottur 3-2 sigur á Arsenal leit dagsins ljós í síðasta leik Michael Carrick að sinni sem knattspyrnustjóri Manchester United.

Michael Carrick eða Ralf Rangnick eða hver svo sem það var stillti upp í hið klassíska 4-2-3-1 leikkerfið í leiknum í kvöld. Eina sem hægt væri að telja sem óvænt í liðsvalinu miðað við þá uppstillingu var koma Diogo Dalot inn í hægri bakvarðarstöðuna, en svo virðist vera að Wan-Bissaka sé meiddur þar sem hann var ekki einu sinni á bekknum. Fyrsti byrjunarliðs leikur Dalot í ensku úrvalsdeildinni síðan í október 2019.

Svona var byrjunarlið Manchester United:

1
De Gea
27
Telles
5
Maguire
2
Lindelöf
20
Dalot
17
Fred
39
McTominay
10
Rashford
18
Bruno
25
Sancho
7
Ronaldo

Bekkur: Henderson, Bailly, Jones, Mata, Lingard, Beek, Greenwood, Amad og Martial.

Arteta gerði tvær breytingar á byrjunarliði sínu frá síðasta leik sem vannst gegn Newcastle. Egyptinn Elneny kom inn á miðsvæðið í stað Lokonga, sem settist á bekkinn. Martinelli kom svo inn í liðið fyrir Saka sem er meiddur.

Byrjunarlið Arsenal leit svona út:

32
Ramsdale
20
Tavares
6
Gabriel
4
White
18
Tomiyasu
25
Elneny
5
Partey
10
Smith-Rowe
8
Ødegaard
35
Martinelli
14
Aubameyang

Fyrri hálfleikur

Leikurinn hófst af krafti og þá aðallega af hendi Skyttanna. Arsenal fékk nefnilega þrjár hornspyrnur á fyrstu tveimur mínútum leiksins. Úr einni þeirra var okkar maður, Rashford hársbreidd frá því að skora sjálfsmark en boltinn rétt yfir slána.

Undarlegt atvik átti sér stað eftir um tólf mínútna leik. Þá skoraði Smith-Rowe með skoti utan teigs eftir hornspyrnu Arsenal. Undarlega við þetta allt saman var að De Gea lá óvígur í markteig sínum eftir að Fred hafi stígið á hásin De Gea í baráttu inn í teignum eftir hornspyrnuna. Eftir nokkra mínútna samtal Martin Atkinson við VAR-dómara leiksins var ákvörðunin sú að markið skildi standa. Í spjalli okkar hjá Rauðu djöflunum voru tvær skoðanir á þessu atviki. Annars vegar að um dómaraskandal væri að ræða og hins vegar að um löglegt en siðlaust athæfi væri um að ræða hjá Smith-Rowe að taka skotið vitandi af óvígum markmanni í markinu. Hvað sem okkur finnst eða öðrum um þetta þá var staðan orðin 0-1.

Embed from Getty Images

Lítið markvert gerðist í langa stund eftir markið. United hélt töluvert betur í boltann eftir að hafa lent undir og átti þó nokkrar tilraunir sem voru þó langt frá því að teljast hættulegar. Því til staðfestingar var samanlagt xG (vænt mörk) liðsins 0,19 þar til að 43. mínútan skall á.

Keyrði Sancho þá inn á teiginn vinstra megin og kom boltanum á Fred sem var fljótur að fóta sig og rendi honum fyrir markið á Bruno Fernandes. Hann stýrði boltanum snyrtilega í fjær hornið af stuttu færi fram hjá Ramsdale. Fyrsta mark Bruno síðan 11. september fyrir United sem gerir 15 leiki í röð án marks. Staðan 1-1 í hálfleik.

Seinni hálfleikur

Líkt og í fyrri hálfleik var Arsenal nálægt því að skora á upphafsmínútum hálfleiksins úr horni, De Gea varði þó skalla Gabriel vel. Strax í sókninni eftir það komst Ronaldo í ágætis færi þó þröngt væri, þar náði Ramsdale að gera sig breiðan og varði fast skot Portúgalans.

Það leið þó ekki að löngu þangað til að Ronaldo náði að koma boltanum í netið. Dalot fékk þá boltann skyndilega og var fljótur að koma honum á Rashford á hægri kantinum. Rashford hafði gífurlegt flæmi af grænu grasi fyrir framan sig og kom sér í fyrirgjafastöðu. Fyrirgjöfin sem kom úr þeirri stöðu fór rakleitt á Ronaldo sem skoraði auðvelt mark. Staðan 2-1 eftir 52. mínútur.

Embed from Getty Images

Það tók þó Arsenal aðeins tvær mínútur að jafna leikinn. Þar var að verki Martin Ødegaard sem skrúfaði boltann í fjær hornið í fyrstu snertingu innan teigs, eftir fyrirgjöf Martinelli. Þrjátíu og fimm mínútur eftir og staðan orðinn 2-2.

Á 66. mínútu tæklaði Martin Ødegaard Fred innan teigs en ekkert dæmt. VAR var þó fljótt að grípa í taumana og skipaði Martin Atkinson að stöðva leikinn og dæma vítaspyrnu, takk. Ronaldo fór á punktinn og þrumaði á mitt markið og þandi netmöskvana. United aftur komið yfir.

Á næstu mínútum sótti Arsenal með hröðum sóknum með Martinelli fremstan í flokki, þær skiluðu þó litlu.

Á 87. mínútu náði United skyndisókn eftir hornspyrnu Arsenal. Sancho bar þá boltann upp og var gegn tveimur varnarmönnum Arsenal ásamt Bruno og Ronaldo. Englendingurinn ungi rendi boltanum á Bruno, en skot hans hafnaði í varnarmanni Arsenal. Fimm mínútum var bætt við leikinn og á þeim mínútum gerðist ekkert markvert.

Manchester United komið í sjöunda sæti í deildinni, þremur stigum frá fjórða sæti deildarinnar og tólf stigum á eftir liðinu í efsta sætinu, Chelsea.

Hugleiðingar eftir leik

Það sem mætti túlka sem mögulega neikvætt við þennan leik var uppstillingin á liðinu. Ef ég hefði ekki vitað að búið væri að reka Ole Gunnar Solskjær áður en ég sá liðið hefði ég talið að hann væri en knattspyrnustjóri liðsins. Það þýðir að liðið er en í raun lið Ole, enda sagði Carrick þegar hann tók við liðinu að hann væri ekki ósvipaður þjálfari og Ole. Liðið er því enn á algjörum núll punkti, jafnvel sunnan megin við hann, núna þegar Ralf Rangnick tekur við liðinu. Einnig fannst mér ekki jákvætt hversu seint þjálfarateymi United notaði sínar skiptingar vitandi að tiltölulega stutt er í næsta leik.

Af því sem var jákvætt var að sjálfsögðu sigurinn og að Bruno er byrjaður að skora á ný og það í leik númer 100 fyrir United. Dalot átti flottan leik í vörninni og ætti að grípa tækifærið með báðum höndum sem er að opnast núna vegna meiðsla Wan-Bissaka. Einnig er það frábært að liðinu tókst að skora þrjú mörk í leiknum gegn liði sem er búið að byggja árangur sinn þetta tímabilið upp á varnarleik. 

Embed from Getty Images

Brasilísk framviðstaða frá brassanum okkar Fred, stoðsending og fiskað víti. Ásamt því var hann valdurinn af meiðslum De Gea sem leiddu að fyrsta marki Arsenal. Þrátt fyrir það ætla ég að gefa hinum umdeilda Fred nafnbótina maður leiksins.

Nú er bara að vona að Ralf Rangnick nýtti þennan sigurleik sem upphaf á nýrri sigurgöngu hjá Rauðu djöflunum.

Efnisorð: Arsenal Bruno Fernandes Cristiano Ronaldo Fred Michael Carrick 6

Reader Interactions

Athugasemdir

  1. 1

    Gummi says

    2. desember, 2021 at 20:40

    Þetta er orðið svo glatað hjá þessu liði

    2
  2. 2

    Elis says

    2. desember, 2021 at 20:53

    Nú mun öll Umræðan snúast um þetta mark en það má ekki gleyma að liðið hefur verið ömurlegt.

    Í sambandi við markið þá er ekkert ólöglegt við þetta.
    1. Fred brýtur á sínum markverði
    2. Arsenal setur boltan í markið áður en dómarinn flautar
    3. Ef dómarinn hefði verið búin að flauta þá ekki mark og ef Arsenal maður hefði brotið af sér þá ekki mark.

    P.s DeGea á að drullast á fætur en ekki veltast um eins og spænskur sóknarmaður. Svo stendur hann upp eins og ekkert sé.

    9
  3. 3

    Rúnar P. says

    2. desember, 2021 at 21:13

    Eftir viðtalið við De Gea í síðasta leik, þá er ég 100% á því að hann er einn af rotnu eplunum í liðinu og þarf að fara!

    0
  4. 4

    Scaltastic says

    3. desember, 2021 at 04:07

    Telles tvímælalaust maður leiksins og Fred-arinn okkar kórónaði vikulega ofbeldissambands 90 mín með því að bjarga marki í blálokinn. Löngu orðið tímabært að vernda heimavöllinn og ekki sakar að það hafi verið Arsenal sem varð fyrir barðinu.

    1
  5. 5

    Scaltastic says

    3. desember, 2021 at 04:14

    Rétt skref að hrista vel upp í starfsliðinu. Carrick þakka ég kærlega fyrir sitt framlag fyrir félagið, frábær ferill. Það er óhætt að segja að við höfum ekki átt heimsklassa 8 eftir að hann hætti.

    3
  6. 6

    Þorsteinn says

    3. desember, 2021 at 12:53

    Geggjaður og taugatryllandi sigur – en mikið tók á að horfa á þetta.

    0

Skildu eftir svar Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Bob um United 1 : 2 City
  • Arni um United 1 : 2 City
  • Helgi P um United 1 : 2 City
  • Egill um United 1 : 2 City
  • Egill um United 1 : 2 City

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2023 · Keyrt á WordPress