• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska úrvalsdeildin

Spurs á Old Trafford

Björn Friðgeir skrifaði þann 28. september, 2024 | 2 ummæli

Það má segja að á morgun verði krísufundur á Old Trafford. Tvö lið sem eru hnífjöfn í deildinni, hafa 7 stig eftir 2 sigra, eitt jafntefli og tvö töp mætast. Munurinn er sá að Spurs er me fjögur mörk í plús en markatala United er á núllinu. Það hefur gustað um báða stjóra og Ange Postecoglu er farinn að sjá, líkt og Erik ten Hag, köll eftir að hann fái að taka pokann sinn. Ólíkt Ten Hag hefur hann átt betri tíð síðustu vikuna, 3-1 sigur á Brentford um síðustu helgi og 3-0 sigur á Qarabağ í Evrópudeildinni hafa létt skap Tottenham manna á meðan að jafnteflin gegn Palace og Twente hafa ekkert gert til að gleðja United stuðningsmenn

Ef það er eitthvað sem hefur plagað United liðið í haust þá er það færanýtingin. XG, sú yndislega tölfræði, getur liðinu tæp tíu vænt mörk í deild en liðið hefur skorað fimm. Nú er spurningin hvort Ten Hag breyti til í framlínunni og setji Rasmus Højlund í byrjunarliðið. Bjartsýnasta fólk sér fram á að Bruno Fernandes sem hefur verið ansi mistækur það sem af er leiktíð fái að hvíla og Joshua Zirkzee færi sig aftar á völlinn. Ég geri ekki ráð fyrir neinu slíku og set upp vænt byrjunarlið svona. Christian Eriksen hefur verið í fínu formi, byrjað fjóra leiki í röð og skoraði gegn FC Twente, en gerði svo mistökin sem leiddu til jöfnunarmarksins og ég held hann fari á bekkinn. Ugarte og Mainoo er tvíeyki sem mörg búast við að verði aðal miðjudúóið í vetur og þeir þurfa að sýna þeir passi saman.

Mathijs de Ligt kemur auðvitað aftur í vörnina og bakverðirnir eru öruggir með stöður sínar, það er enn þó nokkuð í Luke Shaw.

Tottenham

Sem fyrr segir er ekki alveg lygn sjór í kringum Ange Postecoglu en sex mörk í tveimur leikjum verður að teljast nokkuð gott. Brennan Johnson og Dominic Solanke hafa séð um fjögur þeirra og eru klárlega hætturnar i þesus liði. Son Heung-min (ekki Min Søn eins og uppstillingargræjan okkar virðist vilja kalla hann) verður kominn á sinn stað. Það virðist því ljóst að Tottenham muni skora mörk á morgun og eins gott að United nái að svara því. Ef ekki vitum við alveg hvernig umræðan verður eftir leik.

2

Reader Interactions

Comments

  1. Elis says

    28. september, 2024 at 19:34

    uuuuu staða stjórana er ekki svipuð og það er ekkert að gusta um Ange. Hann er dýrkaður og dáður af stuðningsmönnum Tottenham á meðan að stuðningsmenn Utd eru ekki með Eric hátt skrifaðan.

  2. Dr Gylforce says

    28. september, 2024 at 21:07

    Að mínu mati verður þessi leikur mjög mikilvægur fyrir Eirík frá Högum. Tapist hann (vonandi ekki!) eru dagar Hollendingsins taldir.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Elis um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress