• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska deildarbikarkeppnin

Upphitun: Leikurinn hans Ruuds

Zunderman skrifaði þann 29. október, 2024 | 4 ummæli

Ruud van Nistelrooy verður aðalþjálfari Manchester United í fyrsta – og trúlega eina – skiptið þegar liðið tekur á móti Leicester í deildarbikarnum annað kvöld.

Eftir langa þrautagöngu ákváðu stjórnendur United að fullreynt væri með Erik ten Hag og honum var sagt upp störfum í gærmorgun. Strax var ákveðið að Ruud myndi stýra liðinu á meðan nýr þjálfari yrði fundinn. Það virðist hafa gengið hratt og Ruben Amorim gæti jafnvel verið tekinn við fyrir helgi.

En fyrst er það leikurinn á morgun. Það er sérstök staða að Erik ten Hag hafi, eftir tapið gegn West Ham á sunnudag, haldið blaðamannafund um leikinn gegn Leicester. Við slíkar kringumstæður mega miðlar ekki birta ummælin í ákveðinn tíma.

Embed from Getty Images

Sá frestur rann út á hádegi í dag – og þá var ten Hag farinn – sem þýðir að fæstir miðlar hafa kosið að birta nokkuð frá fundinum. Nokkrir molar hafa lekið út, til viðbótar við tugguna um „við verðum að gera betur“ hljómaði leiðinlega kunnuglegt stef um að bataferli Luke Shaw „gengi ekki eins og ætlað var.“

Noussair Mazraoui mun hafa meiðst á hné um helgina. Mason Mount og Tyrrell Malacia hafa verið við einhverjar æfingar. Indælt væri að sjá þá aftur í hóp. Lengra er í Kobbie Mainoo, Harry Maguire og Leny Yoro en Antony er ekki stóra áhyggjuefnið.

Ólíklegt er að Ruud geri miklar breytingar, aðrar en bregðast við meiðslum. Helst er spurning hvort hann velji liðið út frá því að gefa leikmönnum sem sjaldnar spila færi, til dæmis Altay Bayindir eða ungum mönnum á borð við Harry Amass eða Toby Collyer.

Sennilegast er að leikurinn sjálfur hverfi í skuggann af stjóraskiptunum. Tímaspursmál virðist hvenær Amorim taki við, staðfesting á komu hans gæti legið fyrir eftir leik, jafnvel strax í kvöld því lið hans Sporting Lissabon er að spila deildarleik.

Augun verða eflaust líka á Ruud. Hann heldur sennilega blaðamannafund þar sem hann verður örugglega spurður út í brottrekstur ten Hag og tilkomu Amorims. Eins og aðrir aðalþjálfarar í dag kemur sá portúgalski trúlega með eigið þjálfarateymi og óvíst er að nokkurt pláss verði þar fyrir van Nistelrooy. Sama hvað stuðningsmönnum United, þungt haldnir af nostalgíu Ferguson-tímans, vilja.

Þeir vonast alltént eftir sigri. Það er eina leið til að byggja upp það sjálfstraust sem liðið sannarlega þarfnast. Og væntanlega vill nýr þjálfari fá fleiri leiki en færri, sérstaklega þegar þeir fela í sér tækifæri til að vinna bikar.

Leikurinn hefst klukkan 19:45.

 

 

4

Reader Interactions

Comments

  1. Valur says

    29. október, 2024 at 21:26

    Sporting er að spila í deildarbikarnum gegn Nacional í kvöld….

  2. EgillG says

    30. október, 2024 at 22:04

    Flott að fá einn léttann leik, en djöfulli er maður þreyttur á united að maður veit aldrei hvort að leikmennirnir mæta á völlinn eða ekki

  3. Einar says

    30. október, 2024 at 23:04

    Núna gátu þeir mætt🥰

  4. Zorrokoko says

    4. nóvember, 2024 at 02:51

    þeir munu komast í gang aftur…leikverkið hefur breyst..leikmenn glaðir og berjast eins og ljón….Nistelroy er með hjartað í þetta….má ekki fara þegar hinn kemur…verðum með 2 flotta naggla á hliðarlínini…Áfram Man.Utd….Trúum á þetta…það mun koma okkur langt

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • sófinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Helgi P um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Elis um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress