• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Æfingarleikur

Steindautt markalaust jafntefli í fyrsta æfingaleiknum 2025

Zunderman skrifaði þann 19. júlí, 2025 | Engin ummæli

Embed from Getty Images

Manchester United gerði 0-0 jafntefli við Leeds í hrútleiðinlegum leik sem var fyrsti æfingaleikurinn sumarið 2025. Spilað var í Stokkhólmi. Þetta voru helstu punktarnir úr leiknum.

• Diego Leon byrjaði sem vinstri bakvörður og Amad sem sá hægri. Obi var frammi.
• Leeds fékk fyrsta færið á þriðju mínútu þegar pláss losnaði á bakvið Leon. Leeds náði góðri fyrirgjöf en ekki skoti.
• United var meira með boltann en gerði lítið fyrir hann fyrr en eftir vatnspásuna á 24. mínútu.
• Í vatnspásunni sýndu myndavélarnar Will Farrell sem á orðið hlut í Leeds. Hann sýndi stoltur bol sem merktur var Gnesta, litlum bæ við Stokkhólm. Væntanlega hafa Google-leitir að því svæði margfaldast.
• Fyrsta færi United var á 40. mínútu. Obi snéri sér og tók eiginlega skotfæri af Matheus Cunha. Skot Obi fór rétt framhjá.
• Cunha sýndi það sem ætlast er til af honum, tók boltann, stakk sér á milli manna og reyndi að komast áfram. Diego Leon lítur út fyrir að vera mun eldri en 18 ára og átti ágætan hálfleik.

• Með innkomu Harry Maguire og Leny Yoru í hálfleik fylgdu langar skiptingar
• Leeds fékk færi á 56. mínútu þegar vörn United opnaðist eftir að Dorgu datt en Heaton varði vel.
• Annað Leeds færi á 64. mínútu, eftir spil í gegnum vörn United hægra megin, en Heaton ver vel.
• Dorgu átti trúlega að fá víti á 81. mínútu, fékk ekki en stóð upp aftur og átti gott skot.
• Langbesta færi United kom á 88. mínútu. Mainoo skallaði í slána, Dalot fylgdi fyrst eftir og svo féll boltinn fyrir Heaven sem hefði átt að skora en markvörður Leeds varði.
• Dorgu og Mount bestir fram á við fyrir United í seinni hálfleik. Yoro fínn, Heaton varði vel í að minnsta kosti þrjú skipti.
• Hinn 17 ára gamli Bendito Mantato byrjaði seinni hálfleikinn og fékk 35 mínútur. Jack Fletcher kláraði leikinn.

• Rétt fyrir leikinn spurðist út að United væri nánast búið að gera samning við Barcelona um Marcus Rashford. Hann fer að láni í ár og Barcelona hefur síðan kost á að kaupa.
• Á meðan leik stóð komu fréttir um að Bryan Mbuemo hefði heimsótt Old Trafford í dag og myndi mæta á Carrington eftir helgi.
• Ronny Johnsen var sérfræðingur hjá MUTV. Lítur vel út. Talaði um að mikilvægast væru að leikmenn næðu að tengjast.

• Amorim lýsti ánægju með Cunha, hann hefði verið viljugur að keyra á mótherjana. Sagði Leeds hafa leyst það vel og haldið boltanum þegar United reyndi að pressa. Kvartaði yfir að hraða vantaði í miðjuna. Á móti sagði hann að stemmingin væri góð í hópnum. Sagði augljóst að þetta hefði verið æfingaleikur.

 

0

Reader Interactions

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Arni um Liðið í Manchester slagnum
  • Helgi P um Liðið í Manchester slagnum
  • Gummi um Liðið í Manchester slagnum
  • Halldór Marteins um Liðið í Manchester slagnum
  • sófinn um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress