• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Björn Friðgeir

Enska úrvalsdeildin

Manchester United 3:3 Coventry City (7-5 v.)

Björn Friðgeir skrifaði þann 21. apríl, 2024 | 5 ummæli

United, liðið sem gerir hið einfalda flókið, hið auðvelda erfitt, og hið erfiða ómögulegt

Liðið sem Ten Hag stillti upp leit svona út

Varamenn: Bayindir, Eriksen (72.), Amad (90+4.), Antony(66.), Forson (103.), Amass, Ogunney, Jackson, Wheatley.

Willy Kambwala er meiddur og því allar líkur á að Casemiro frekar en McTominay fari í miðvörðinn. Það er vonandi að framherjar Coventry séu ekki of fljótir
United setti í gír frá upphafi, pressaði Coventry alla leið inn í teig og þegar Coventry hreinsaði unnu þeir boltann sem endaði á langri sendingu fram, skalli Bruno og Garnacho var kominn í færi en hitti ekki boltann og hann lak útaf. Þetta var áfram mynstur leiksins. Stök gagnsókn Coventry sem sjaldnast náði teignum en Unitedliðið sló upp tjaldbúðum við vítateig Coventy og vantaði bara að stilla upp í góða Kaíró til að þetta yrði eins og í handboltaleik. Lesa meira

5
Enska bikarkeppnin

Undanúrslit í bikarkeppninni: Coventry á Wembley

Björn Friðgeir skrifaði þann 20. apríl, 2024 | 1 ummæli

Það jafnast ekkert á við að vinna bikar og á morgun getur United stigið skref í átt að því að gera þetta tímabil eftirminnilegra en það á kannske skilið og komast á Wembley. Að vísu bíður City eða Chelsea og það hefur fennt verulega yfir tapið í úrslitaleiknum í fyrra. En það var þá og þetta er núna. Bikar er bikar og sigur á morgun gerir margt betra.

Coventry

Andstæðingurinn á morgun er lið Coventry City. Við sem komin erum á miðjan aldur ólumst upp við Coventry City sem langtímalið í efstu deild, féllu aldrei en gerðu ekki garðinn frægan að ráði. Og þó. Sigur þeirra í bikarkeppninni 1987 var eitthvert mesta afrek minna liðs á þeim tíma, og það þegar bikarinn skipti alvöru máli. Lesa meira

1
Enska úrvalsdeildin

Brentford í kvöld

Björn Friðgeir skrifaði þann 30. mars, 2024 | 3 ummæli

Föstudagurinn langi er að sjálfsögðu haldinn há-heilagur hér á ritstjórn og því kemur upphitun með seinni skipunum. Það er nokkuð síðan við hittum ykkur hér síðast, í millitíðinni var landsleikjahlé og jú, léttur og löðurmannlegur sigur á Liverpool, sem beðið var með á síðustu stundu að innbyrða enda veðmangarar miklu ánægðari með leiki sem hægt er að halda opnum fram á lokaflaut. Takk fyrir okkur, Amad Diallo, Marcus Rashford, Scott McTominay og ha hver þú? Antony!!??. Skreppið nú og skoðið leikinn aftur, aldrei of oft horft. Lesa meira

3
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 2:0 Everton

Björn Friðgeir skrifaði þann 9. mars, 2024 | 10 ummæli

Engin skýrsla, bara vibes:

  • Onana er alvöru markvörður
  • Það væri gaman að hafa vel mannaða vörn
  • Að því sögðu voru Varane og Evans fínir
  • Garnacho mætti brýna færanýtinguna
  • Bruno Fernandes er búinn að skora úr 29 vítum fyrir United, fleiri en nokkur annar leikmaður
  • Everton er agalega slakt.

Áfram gakk, hitt Liverpool liðið um næstu helgi.

10
Enska úrvalsdeildin

Manchester City 3:1 Manchester United

Björn Friðgeir skrifaði þann 3. mars, 2024 | 9 ummæli

Lið Manchester United


“ alt=““ width=“800″ height=“800″ class=“aligncenter size-large wp-image-83600″ data-wp-pid=“83600″ />

Varamenn: Bayındır, Kambwala (69.), Ogunnye, Amad, Amrabat (82.), Collyer, Eriksen, Forson (82.), Antony (75.)

Lið City

Embed from Getty Images Lesa meira

9
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Page 5
  • Page 6
  • Interim pages omitted …
  • Page 130
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Snjómaðurinn um Liðið í Manchester slagnum
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress