• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

ellioman

Enska úrvalsdeildin

Manchester United 1:0 Aston Villa

ellioman skrifaði þann 16. apríl, 2016 | 9 ummæli

United tók á móti Aston Villa á Old Trafford í leik sem skipti gríðarlega miklu máli fyrir bæði lið. United í bullandi baráttu við Arsenal, City og West Ham (mögulega Liverpool og Southampton) um fjórða sætið í deildinni og allt annað en sigur myndi þýða að Aston Villa væri fallið.

Fyrir leikinn var maður alveg hæfilega bjartsýnn á sigur þar sem United er búið að vera á ágætis róli þrátt fyrir tap í síðasta deildarleik og vegna þess að Aston Villa er búnir að vera áberandi versta liðið á þessu tímabili. Lesa meira

Efnisorð: Aston Villa Leikskýrslur Marcus Rashford 9
Enska úrvalsdeildin

Aston Villa kemur í heimsókn á Old Trafford

ellioman skrifaði þann 16. apríl, 2016 | 2 ummæli

Jæja, rússíbanareið tímabilsins hjá Manchester United heldur áfram. Eftir hrikalega svekkjandi tap gegn Tottenham Hotspurs um síðustu helgi þá náði liðið að vinna hið feiknasterka lið West Ham tvö núll í Fa bikarkeppninni í vægast sagt stórskemmtilegum og erfiðum leik þar sem Marcus Rashford skoraði eitt af fallegustu mörkum United á þessu tímabili. Það sem þessi sigur gerði var að koma United í fjögurra liða úrslit bikarkeppninnar með Everton, Crystal Palace og Watford og er það eini sjens United að vinna bikar á þessu tímabili. Lesa meira

Efnisorð: Aston Villa Upphitun 2
Lesefni

Djöfullegt lesefni: 2016:05

ellioman skrifaði þann 9. mars, 2016 | Engin ummæli

Andy Mitten hefur verið duglegur undanfarið. Fyrst skrifaði hann um Anderson og árangur United með leikmenn frá Suður Ameríku. Svo leit hann aðeins nánar á Marcus Rashford sem við þekkjum nú orðið vel og að lokum sýndi hann okkur hvað ungu strákanir í United eru að endurvekja neistann hjá liðinu.

Republik of Mancunia, eitt allra virkasta United-bloggið í Bretlandi, á 10 ára afmæli og í tilefni þess eru þeir með heilan helling af skemmtilegum greinum um síðustu 10 ár hjá United og viðtölum við blaðamenn um hvernig síðustu 10 ára hafa verið hjá United. Margt mjög athyglisvert þarna. Lesa meira

0
Lesefni

Djöfullegt lesefni: 2016:04

ellioman skrifaði þann 26. febrúar, 2016 | 2 ummæli

United & Van Gaal

Hnignun United heldur áfram segir Andy Mitten og ekkert útlit fyrir að það sé að breytast

Og hann hélt áfram að skrifa um fall félagsins

Daniel Taylor segir að United eigi að skipta Van Gaal út fyrir Mourinho

Miguel Delaney er sammála Daniel Taylor og segir að United eigi að fókusa á langtímalausnir

Daniel Harris kafar djúpt ofan í vandamál United og reynir að finna lausnirnar í ansi magnaðri grein Lesa meira

2
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 3:0 Stoke City

ellioman skrifaði þann 2. febrúar, 2016 | 10 ummæli

United tók á móti Stoke í kvöld í alveg hörkuskemmtilegum leik. Já þið lásuð rétt, United spilaði vel í skemmtilegum knattspyrnuleik. Svo til að kóróna allt saman þá skoraði liðið í fyrri hálfleik. Ekki einu sinni heldur tvisvar! Liðið skoraði svo úr skyndisókn. Tvisvar! Svei mér þá, ég held bara að ég sé orðinn hið opinbera lukkudýr United. Tvær upphitanir í röð, tveir sigrar og 6 mörk! Not too shabby. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur Stoke City 10
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 4
  • Page 5
  • Page 6
  • Page 7
  • Page 8
  • Interim pages omitted …
  • Page 26
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Arni um Liðið í Manchester slagnum
  • Helgi P um Liðið í Manchester slagnum
  • Gummi um Liðið í Manchester slagnum
  • Halldór Marteins um Liðið í Manchester slagnum
  • sófinn um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress