• Skip to primary navigation
  • Skip to content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Podkast
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Podkast

Friðrik Már Ævarsson

Enska úrvalsdeildin

Southampton 0:1 Manchester United

Friðrik Már Ævarsson skrifaði þann 23. september, 2017 | 8 ummæli

Dýrlingarnir tóku á móti okkar mönnum á St. Mary’s í dag en Jose Mourinho stillti upp sterku liði, Fellaini, De Gea, Lukaku, Matic og Mkhitaryan komu allir inn í byrjunarliðið.

1
De Gea
18
Young
4
Jones
3
Bailly
25
Valencia
27
Fellaini
31
Matic
8
Mata
19
Rashford
9
Lukaku
22
Mkhitaryan

Lið Southampton var einnig gríðarlega sterk. Þó vermdu Gabbiadini og Virgil van Djik bekkinn, greinilegt að sá síðarnefndi er enn í skammarkróknum en svo virðist vera að Shane Long hafi átt að þreyta vörnina hjá United og Gabbiadini átt að koma ferskur inn í lok leiks. Lesa meira

8
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 4:1 Burton Albion

Friðrik Már Ævarsson skrifaði þann 20. september, 2017 | 9 ummæli

Jose Mourinho hvíldi nokkra lykilleikmenn í bikarleiknum eins og fastlega var búist við. Romero, Carrick og Lingard fengu allir pláss í byrjunarliðinu ásamt Blind, Darmian og Mata.

20
Romero
36
Darmian
2
Lindelöf
12
Smalling
17
Blind
16
Carrick
21
Herrera
14
Lingard
8
Mata
11
Martial
19
Rashford

Gestirnir stilltu upp sterku liði og voru greinilega mættir til að fá eitthvað úr leiknum en Nigel Clough gerði nokkrar breytingar frá síðasta bikarleik og stillti upp þriggja manna vörn.

Ripley
Flanagan
Turner
Naylor
Lund
Akpan
Allen
Palmer
Dyer
Mason
Varney

Það má segja að leikurinn hafi byrjað með krafti og áttu gestirnir fyrsta skot á markið. En fyrsta markið leit dagsins ljós strax á 5. mínútu, en Marcus Rashford skoraði þá eftir sendingu frá Carrick, sem reyndar Lingard gerði vel með að fleyta áfram fyrir Rashford inn í opið svæði í teignum. Lesa meira

9
Enska bikarkeppnin

Baráttan um deildarbikarinn hefst á ný.

Friðrik Már Ævarsson skrifaði þann 18. september, 2017 | 4 ummæli

Næst á dagskrá er fyrsti leikur United í deildarbikarnum og mótherjarnir að þessu sinni Burton Albion F. C. Eftir frábæra byrjun í Úrvalsdeildinni og Meistaradeildinni vonumst við að sjálfsögðu til að United geti haldið uppteknum hætti og byrjað af sama krafti í deildarbikarnum.

Bikarinn, sem núna ber nafnið Carabao Cup eftir orkudrykkjaframleiðandanum, hefur ekki alltaf verið í miklum metum hjá stóru liðunum og því hefur þessi keppni oft verið vettvangur fyrir stjóra þessara liða til að leyfa yngri og sprækari leikmönnum að spreyta sig. United vann einmitt þennan bikar í fyrra við mikinn fögnuð höfundar og næsta víst að Mourinho vilji gera allt í sínu valdi til að halda honum. Það verður því fróðlegt að sjá hversu mikið Móri er tilbúinn að gefa ungu strákunum færi á að sanna sig á stóra sviðinu í þessum leikjum og það kæmi lítið á óvart að sjá minni spámenn í hópnum. Þessi leikur væri tilvalinn til þess þar sem líklega pakka Burton Albion í vörn og vona að endurtaka þurfi leikinn á heimavelli þeirra. Að auki er ekki ólíklegt að nú þegar leikjadagskráin er orðin ansi þétt að Mourinho þurfi að hvíla lykilleikmenn fyrir stærri leiki. Þar fyrir utan er meiðslalistinn búinn að lengjast við lítinn fögnuð höfundar. Nýjasta nafnið á listanum er Paul Pogba sem gæti verið út í allt að 12 vikur en aðrir á listanum eru Zlatan Ibrahimovich og Marcos Rojo en Luke Shaw, sem hefur verið á listanum, er spurningarmerki og fróðlegt að sjá hvort hann sé tilbúinn. Lesa meira

Efnisorð: Deildarbikarinn 4
  • « Fyrri síða
  • Page 1
  • …
  • Page 5
  • Page 6
  • Page 7

Primary Sidebar

Ingólfur Gissurarson - Framúrskarandi fasteignasali

Næsti leikur

Powered by whatsthescore.com

Síðustu ummæli

  • Rauðhaus um Chelsea 0:2 Manchester United
  • Robbi Mich um Chelsea 0:2 Manchester United
  • Runar P um Chelsea 0:2 Manchester United
  • guðmundur Helgi um Chelsea 0:2 Manchester United
  • Cantona no 7 um Chelsea 0:2 Manchester United

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2019 · Keyrt á WordPress