• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Kristófer Kristjánsson

Enska úrvalsdeildin

United eygir möguleika á að ná Bournemouth

Kristófer Kristjánsson skrifaði þann 2. nóvember, 2018 | Engin ummæli

Þú last ekki vitlaust. Heimsókn til Eddie Howe og sveina hans í Bournemouth í hádeginu á morgun í 11. umferð úrvalsdeildarinnar er tækifæri fyrir Manchester United til að jafna Bournemouth að stigum í 6. sætinu. Það er að vísu ólíklegt að okkar menn hirði sætið af gestgjöfunum á morgun, Bournemouth hefur betri markatölu sem nemur sjö mörkum!

United hafði betur gegn Everton um síðustu helgi, 2:1, þökk sé vítaspyrnumarki Paul Pogba og glæstri afgreiðslu Anthony Martial. Rauðklæddir urðu að sjálfsögðu að gera sér erfitt fyrir í leik sem virtist nokkuð þægilegur; Chris Smalling gaf vítaspyrnu í síðari hálfleik sem enginn annar en Gylfi Þór Sigurðsson afgreiddi af sinni alkunnri snilld en nær komust gestirnir frá Bítlaborginni ekki. Lesa meira

0
Enska deildarbikarkeppnin

Manchester United 2:2 Derby County

Kristófer Kristjánsson skrifaði þann 25. september, 2018 | 37 ummæli

B-deildarlið Derby kom, sá og sigraði í 3. umferð enska deildabikarsins á Old Trafford í kvöld er Manchester United mistókst að vinna þriðja heimaleikinn í röð. Úff. Staðan var 2:2-eftir venjulegan leiktíma og þurfti því að grípa til vítaspyrnukeppni (framlengingunni hefur verið kippt út úr fyrri umferðum) og þar máttu okkar menn þola 8:7-tap en Phil Jones var sá eini sem klúðraði spyrnu í kvöld. Lesa meira

37
Enska deildarbikarkeppnin

Mourinho og Lampard etja kappi

Kristófer Kristjánsson skrifaði þann 24. september, 2018 | 2 ummæli

Frank Lampard mætir með lærisveina sína í Derby á Old Trafford annað kvöld í þriðju umferð enska deildabikarsins. José Mourinho og Lampard þekkjast vel enda lék sá síðarnefndi undir stjórn Portúgalans hjá Chelsea við góðan orðstír; þeir unnu svo þessa ágætu keppni saman í tvígang.

Eftir enn eitt svekkelsið gegn Úlfunum í úrvalsdeildinni um helgina er ekki við öðru að búast en að breytt lið hafi betur gegn B-deildarliði Derby, annað væri skellur. Liðið hefur farið ágætlega af stað undir stjórn Lampard sem tók við í sumar, situr í 6. sæti með fimm sigra í níu leikjum. Lesa meira

2
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 2:1 Leicester City

Kristófer Kristjánsson skrifaði þann 10. ágúst, 2018 | 31 ummæli

Þetta er byrjað! Loks getum við gleymt öllu ruglinu, hvort sem það er fáránlegt undirbúningstímabil eða aðgerðarleysi á meðan félagsskiptaglugginn stóð opinn. Það er liðin tíð sem verður ekki breytt, en nú er fótboltinn farinn af stað, loksins. Ekki er verra að stigin þrjú fylgdu með fyrsta leik þó frammistaðan hafi varla verið sígild, byrjunarliðið var eftirfarandi: Lesa meira

31
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 0:1 West Bromwich Albion

Kristófer Kristjánsson skrifaði þann 15. apríl, 2018 | 28 ummæli

Manchester City er Englandsmeistari. Eftir ævintýralega endurkomu gegn einmitt þeim, sem jafnframt slóg fagnaðarlátum þeirra á frest, um síðustu helgi virtist það alveg ljóst að leikmenn United ætluðu að selja sig dýrt í baráttunni um 2. sætið. Það var því nokkuð létt yfir okkur í dag er botnlið West Brom kom í heimsókn.

Við héldum að liðið kæmi með sjálfstraust inn í leikinn og myndi sækja töluvert á lið West Brom, sem hafði ekki unnið útileik í síðustu 15 tilraunum. Með sigri yrði annað skref tekið í átt að öðru sæti og með tapi yrði Englandsmeistaratitillinn endanlega City-manna. Með þetta í húfi gegn lakasta liði deildarinnar, hljótum við að vinna, jafnvel stórt… Úps. Lesa meira

28
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Page 5
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress