• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Kristófer Kristjánsson

Enska úrvalsdeildin

Botnlið Crystal Palace heimsækir Old Trafford

Kristófer Kristjánsson skrifaði þann 29. september, 2017 | 6 ummæli

Margir horfðu á annríkan september mánuð sem ákveðið próf fyrir Manchester United sem hafði farið vel af stað og unnið alla þrjá deildarleiki sína í ágúst. Eftir óheppilegt jafntefli á útivelli gegn Stoke í fyrsta leik mánaðarins hafa lærisveinar Mourinho ekki litið til baka. Í Meistaradeildinni hafa tveir leikir unnist þægilega sem og einn í enska deildabikarnum og í úrvalsdeildinni var Wayne Rooney og félögum í Everton skellt 4:0 áður en Mourinho gerði það sem Mourinho gerir best í sterkum útivallarsigri gegn Southampton. Á morgun kemur Crystal Palace í heimsókn í lokaleik september og óhætt er að segja að með sigri þar hefur lið United svo sannarlega staðist prófið. Lesa meira

6
Enska úrvalsdeildin

Stoke City 2:2 Manchester United

Kristófer Kristjánsson skrifaði þann 9. september, 2017 | 13 ummæli

Eins og í fyrra þá kom hikstinn í fjórða leik og við urðum að sættast á 2:2 jafntefli gegn Stoke City á Bet 365 vellinum í dag. Jafnteflið sem slíkt eru engin hörmungar úrslit en frammistaðan var ákveðið áhyggjuefni og auðvitað situr það enn þá í mönnum hvernig tímabilið riðlaðist á þessum sama tíma í fyrra.

José Mourinho ákvað að breyta sigurformúlu fyrstu leikjanna og bauð upp á 4-3-3 í dag. Martial, Blind og Mata settust á varamannabekkinn en inn komu Rashford, Darmian og Herrera. Miðju þríeykið var því Herrera-Matic-Pogba, eitthvað sem margir stuðningsmenn hafa beðið spenntir eftir að sjá. Darmian tók ser auðvitað stöðu í vinstri bakverði á meðan Rashford spilaði frá vinstri vængnum, Mkhitaryan frá þeim hægri og Lukaku þeirra á milli. Lesa meira

13
Enska úrvalsdeildin

Þrumuskúr í Stoke á morgun

Kristófer Kristjánsson skrifaði þann 8. september, 2017 | 4 ummæli

Þrír leikir, þrír sigrar og níu stig, hljómar það kunnuglega? Sú var raunin eftir fyrstu þrjár umferðirnar í fyrra og bjartsýnin var töluverð. Jose Mourinho og Zlatan Ibrahimovic voru mættir á leikvang draumanna og eftir frábæra byrjun voru okkur allir vegir færir! Eða þannig, við unnum einn af næstu sjö deildarleikjum.
Eftir þrjá leiki í ár er staðan sú sama og bjartsýnin jafnvel enn meiri en sagan segir okkur að best er að fara ekki framúr sér. Við getum þó byggt enn fremur á góðri byrjun á morgun og hvergi er betri staður til þess en heimavöllur Peter Crouch og félaga í Stoke. Að sjálfsögðu er spáð mikilli úrkomu og þrumuskúr í Stoke-on-Trent í síðdeginu á morgun og því er framundan leikurinn sem allir segja að Lionel nokkur Messi ætti ekki roð í; rigningarleikur á Britannia vellinum. Lesa meira

Efnisorð: Upphitun 4
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 3
  • Page 4
  • Page 5

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress