• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Þorsteinn Hjálmsson

Enska úrvalsdeildin

Southampton 2:3 Manchester United

Þorsteinn Hjálmsson skrifaði þann 29. nóvember, 2020 | 22 ummæli

Frábær endurkoma hjá United á suðurströndinni í dag. Eftir brösóttan fyrrihálfleik en frábærann seinni hálfleik.

Óvænt byrjunarlið leit dagsins ljós klukkutíma fyrir leik. Martial varð veikur um nóttina og var því ekki í leikmannahóp United. Ómögulegt er að segja hvort leikuppstillingin hefði verið önnur ef hann hefði verið með. Ole stillti upp í hin umdeilda tígull þar sem Donny van de Beek byrjaði sinn fyrsta leik í deild. Greenwood kom aftur inn í liðið eftir fína innkomu í Meistaradeildinni í vikunni. Lesa meira

Efnisorð: Bruno Fernandes Edinson Cavani Endurkoma Southampton 22
Enska úrvalsdeildin

Dýrlingarnir heimsóttir

Þorsteinn Hjálmsson skrifaði þann 28. nóvember, 2020 | Engin ummæli

Okkar menn fara á suðurströndina á morgun fyrsta í aðventu og spila gegn dýrlingunum í Southampton. 

United er að komast á smá skrið eftir slæm úrslit skömmu fyrir landsleikjahléið fyrr í mánuðinum. Þrír sigurleikir í röð, tveir í deild og einn í Meistaradeildinni í liðinni viku og ágætis spilamenska er vonandi eitthvað sem Ole ætlar að reyna ýta undir og bæta á næstu vikum, komandi inn í jóla mánuðinn. Verður þessi leikur alvöru prófraun þar sem menn Hasenhüttel hafa verið ansi góðir nú í upphafi tímabils og náð í 17 stig og sitja í fimmta sæti deildarinnar aðeins þremur stigum frá toppnum. Lesa meira

Efnisorð: Southampton
Enska úrvalsdeildin

Everton 1:3 Manchester United

Þorsteinn Hjálmsson skrifaði þann 7. nóvember, 2020 | 14 ummæli

Ole Gunnar stillti upp í 4-2-3-1 og enginn tígull. Eina óvænta við byrjunarlið okkar manna var að Mata byrjaði þrátt fyrir að hafa byrjað í miðri viku. Martial kom loks aftur inn í liðið í deild eftir að hafa lokið þriggja leikja banni fyrir að slá til Lamela í hörmungunum gegn Spurs. Hjá Everton vakti athygli að Mina var settur á bekkinn og Mason Holgate kom inn í liðið, hans fyrsti leikur í deildinni á tímabilinu. Pickford kom aftur í markið eins og búist var við. Lesa meira

Efnisorð: Bruno Fernandes Leikskýrslur 14
Enska úrvalsdeildin

Hádegis leikur í Guttagarði

Þorsteinn Hjálmsson skrifaði þann 6. nóvember, 2020 | 4 ummæli

Á morgun skella okkar menn sér í rútuferð yfir til Liverpool og spila við Everton á Goodison Park. Aðeins tveimur og hálfum sólarhring eftir afhroðið í Istanbul og langt ferðalag. Þar þurfa okkar menn að hysja upp um sig og sýna hvað í þeim býr og ná í sigur ef ekki á að sturta ný höfnu tímabili í úrvalsdeildinni algjörlega niður. Fimtánda sæti og sjö stig eftir sex spilaða leiki er langt frá því að vera ásættanlegt. Það verður hinsvegar við ramman reip að draga þar sem bláliðar í Guttagarði hafa staðið sig mjög vel í byrjun tímabilsins en fatast flugið þó í síðustu leikjum. Carlo Ancelotti fékk að rífa upp veskið í sumar og setja en meira sitt handbragð á liðið sem virðist hafa gengið upp með fínum árangri það sem af er. Ekki hefur gengið vel gegn Everton síðustu þrjú skipti sem við höfum mætt þeim, tvö 1-1 jafntefli og svo 4-0 rasskelling. Ole þarf að ná í þrjú stig og fá góða framviðstöðu frá leikmönnum sínum. Ef ekki, þá mun orðrómur um brottrekstur verða en hærri heldur en nú er.  Lesa meira

Efnisorð: Everton Ole Gunnar Solskjær Upphitun 4
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 4
  • Page 5
  • Page 6

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress