• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Tryggvi Páll

Enska úrvalsdeildin

United fer á Suðurströndina

Tryggvi Páll skrifaði þann 16. maí, 2017 | 1 ummæli

Við erum í svolítið skrýtinni stöðu akkúrat núna, við stuðningsmenn Manchester United. Við erum að bíða eftir stærsta leik tímabilsins, úrslitaleik Evrópudeildarinnar eftir rétt rúma viku, en í millitíðinni þurfum við að spila tvo leiki sem skipta engu máli, svona úr því að liðið á ekki tölfræðilega möguleika á því að komast í eitt af sætunum sem gefa Meistaradeildarsæti. Þessi leikur hefði auðvitað átt að vera mjög mikilvægur en töpin tvö gegn Arsenal og Tottenham, sem og jafnteflin 14(!), hafa gert það að verkum að við erum bara úr leik í deildinni. Lesa meira

Efnisorð: Southampton Upphitun 1
Enska úrvalsdeildin

Gylfi heimsækir Old Trafford

Tryggvi Páll skrifaði þann 29. apríl, 2017 | 1 ummæli

Leikur í gær, leikur í dag og leikur á morgun, eða það finnst manni allavega þessa dagana. United tekur á móti Gylfa Sigurðssyni og félögum í Swansea eldsnemma á morgun.

Þetta er níundi og síðasti leikurinn sem okkar menn spila í brjálæðislega þéttum apríl-mánuði sem hefur bara verið ansi fínn fyrir United. Í þessum níu leikjum hefur liðið aðeins fengið á sig þrjú mörk, fært sig ofar í deildinni og tryggt sér sæti í undanúrslitum Evrópudeildarinnar. Gæti verið verra. Lesa meira

Efnisorð: Gylfi Þór Sigurðsson Swansea Upphitun 1
Evrópudeildin

Mikilvægasti leikurinn á tímabilinu framundan

Tryggvi Páll skrifaði þann 19. apríl, 2017 | 3 ummæli

Að mörgu leyti er apríl skemmtilegasti mánuðurinn í boltanum. Þar ræðst svo margt hvernig tímabilið endar. Evrópukeppnirnar eru í fullum gangi og hver leikur í deildinni skiptir öllu máli um hvernig niðurstaðan verður í maí. Tap í einum leik getur sett allt úr skorðum. Það eru ekki töpin sem hafa sett tímabilið okkar úr skorðum, þvert á móti, liðið tapar varla leik. Nei, það eru jafnteflin sem hafa komið í bakið á okkur. Lesa meira

Efnisorð: Anderlecht Upphitun 3
Enska úrvalsdeildin

Sunderland 0:3 Manchester United

Tryggvi Páll skrifaði þann 9. apríl, 2017 | 12 ummæli

Ágætis skyldusigur að baki hjá United gegn afar döpru Sunderland-liði David Moyes. Byrjunarliðið var svona.

20
Romero
23
Shaw
5
Rojo
3
Bailly
36
Darmian
6
Pogba
21
Herrera
27
Fellaini
14
Lingard
22
Mkhitaryan
9
Ibrahimovic

Bekkur: J.Pereira, Carrick, Blind, Fosu-Mensah, Tuanzebe, Martial, Rashford.

Það kom ekkert sérstaklega mikið óvart þar, fyrir utan það að David de Gea var ekki í hóp en hann virðist hafa meiðst lítillega í vikunni. Sergio Romero, sá mikli meistari, kom í hans stað. Það sem vakti mesta athygli var að Maroune Fellaini fékk fyrirliðabandið í fjarveru allra þeirra sem eru venjulega með það. Ágætis troll hjá José Mourinho. Lesa meira

Efnisorð: Marcus Rashford Sunderland Zlatan Ibrahimovic 12
Evrópudeildin

Rússarnir frá Rostov koma í heimsókn

Tryggvi Páll skrifaði þann 15. mars, 2017 | 5 ummæli

Eftir afar svekkjandi tap gegn Chelsea í bikarkeppninni á mánudaginn er það kærkomið að fá næsta bikarleik bara beint í andlitið. Rússarnir í FC Rostov eru á leið til Manchester í síðari viðureign félagins við okkar menn í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.

Staðan í einvíginu er 1-1 eftir fyrri leik liðanna fyrir rétt tæpri viku. United stendur ágætlega að vígi enda erum við með eitt stykki útivallarmark í pokahorninu í boði Henrikh Mkhitaryan. Það er mikilvægur leikur framundan enda veðrður að segjast eins og er að Meistaradeildarsætið sem er í boði fyrir sigur í Evrópudeildinni sé raunhæfasta leið okkar aftur inn í Meistaradeildina, um það er maður ansi hræddur, í það minnsta. Lesa meira

Efnisorð: Rostov Upphitun 5
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Page 5
  • Interim pages omitted …
  • Page 49
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Arni um Liðið í Manchester slagnum
  • Helgi P um Liðið í Manchester slagnum
  • Gummi um Liðið í Manchester slagnum
  • Halldór Marteins um Liðið í Manchester slagnum
  • sófinn um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress