• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Staðfest

Félagaskipti Staðfest

Edinson Cavani – Nýja sjöan hjá United

Björn Friðgeir skrifaði þann 6. október, 2020 | 2 ummæli

Eftir tíðindalítinn glugga brast á með innstreymi í gær. Fjórir nýir leikmenn voru kynntir til sögunnar og í landsleikjahléinu munum við kynna þá til leiks einn af öðrum.

Að Alex Telles ólöstuðum er stærsta nafnið af þessum fjórum auðvitað Edinson Cavani. Það þarf lítt að kynna nafnið fyrir ykkur, Cavani er búinn að vera einn af helstu framherjum í Evrópu síðustu tíu árin og ósjaldan verið orðaður við United. Það er samt ekki fyrr en nú þegar hann er á þrítugasta og fjórða aldursári að hann gengur loks til liðs við okkur. Lesa meira

Efnisorð: Edinson Cavani 2
Félagaskipti Slúður Staðfest

Gluggavakt Rauðu djöflanna

Magnús Þór skrifaði þann 5. október, 2020 | 12 ummæli

Hér fyrir neðan birtum við það helsta sem tengist Manchester United í dag hvort sem það eru orðrómar eða staðfestar sölur eða kaup.

23:11 Við þökkum samfylgdina í dag

22:42 Annar Úrúgvæi kominn í hús

https://twitter.com/ManUtd/status/1313246080662941696?s=20

20:54 og þá er það nýja sjöan okkar!

https://twitter.com/manutd/status/1313221775786995714?s=21

20:22 Amad Diallo (Traoré) staðfestur

https://twitter.com/manutd/status/1313212414389817345?s=21

19:48 Smalling staðfestur til Roma, pappírarnir afgreiddir mínútu fyrir lokun á Ítalíu Lesa meira

Efnisorð: Alex Telles Amad Diallo Chris Smalling Edinson Cavani Facundu Pellistri Félagaskipti 12
Staðfest

Donny van de Beek er orðinn leikmaður Manchester United *staðfest*

Friðrik Már Ævarsson skrifaði þann 2. september, 2020 | 10 ummæli

Donny van de Beek er orðinn leikmaður Manchester United og þar með eru fyrstu kaup sumarsins dottin í hús. Talið er að kaupverð sé um 40 millj. evra (35,7 millj. punda) fyrir þennan 23 ára Hollending og klásúlur upp á fimm milljónir evra að auki. Donny van de Beek er fæddur þann 18. apríl á því herrans ári 1997 í smábænum Nijkerkerveen en árið 2008 hóf hann að æfa með yngri liðum Veensche Boys en gekk árið 2012 til liðs við Ajax enda faðir hans var mikill stuðningsmaður liðsins. Lesa meira

Efnisorð: Donny van de Beek 10
Staðfest

Ighalo áfram á láni *staðfest*

Björn Friðgeir skrifaði þann 1. júní, 2020 | 2 ummæli

Loksins einhverjar fréttir! Odion Ighalo verður áfram á láni til 31. janúar 2021

Góðar fréttir sem styðja við hópinn og gefur liðinu aukna vídd framávið, enda stóð drengurinn sig vel í þessum fjórum leikjum sem hann fékk fyrir kóf.

https://twitter.com/ManUtd/status/1267403227814924293

Svo lítur allt út fyrir að tímabilið byrji aftur þann 17. júní og fyrsti leikur United gegn Spurs yrði þá helgina 20-21. En það bíður enn staðfestingar. Lesa meira

Efnisorð: Odion Ighalo 2
Félagaskipti Staðfest

Bruno Fernandes er orðinn leikmaður Manchester United ***Staðfest***

Ritstjórn skrifaði þann 30. janúar, 2020 | 7 ummæli

Portúgalski miðjumaðurinn er loksins orðinn leikmaður Manchester United.

https://twitter.com/ManUtd/status/1222928041539776512

Kaupverðið eru rúmlega 46 milljónir punda en svo bætast við árangurstengdar greiðslur, 4,2 milljónir punda tengdar leikjafjölda, aðrar 4,2 milljónir ef United kemst í Meistaradeildina og síðan 12,7 milljónir sem munu vera tengdar frammistöðu Fernandes, og eiga að vera frekar fjarlægar svo sem að hann vini Gullknöttinn. Lesa meira

Efnisorð: Bruno Fernandes Leikmannakaup 7
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Interim pages omitted …
  • Page 11
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Arni um Liðið í Manchester slagnum
  • Helgi P um Liðið í Manchester slagnum
  • Gummi um Liðið í Manchester slagnum
  • Halldór Marteins um Liðið í Manchester slagnum
  • sófinn um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress