• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Meistaradeild Evrópu

Meistaradeild Evrópu

Meistaradeildin í Madrid

Halldór Marteins skrifaði þann 22. febrúar, 2022 | Engin ummæli

Eftir tvo fína deildarsigra í röð er nú komið að útsláttarkeppni í Meistaradeild Evrópu. Manchester United dróst fyrst gegn franska liðinu PSG í 16-liða úrslitum en í ljós kom að mistök höfðu valdið því að United fór ranglega í pottinn gegn Villareal en ekki í pottinn þegar andstæðingar Atlético Madrid voru dregnir. Atlético fengu upphaflega þýsku meistarana í Bayern Munchen og kvörtuðu formlega þegar þessi mistök urðu ljós. Þeir fengu í gegn að dregið var aftur, eðlilega, og í það skiptið drógust Atlético og Manchester United saman. Mikið fjör, allt saman. Lesa meira

0
Meistaradeild Evrópu

Manchester United 1:1 Young Boys

Björn Friðgeir skrifaði þann 8. desember, 2021 | 6 ummæli

Þessa leiks verður ekki minnst fyrir annað en að fjórir ungir leikmenn komu inná, meðalaldur þeirra var 18 ár. Ralf Rangnick gerði 11 breytingar á byrjunarliðinu og setti kjúklingana á bekkinn.

26
Henderson
23
Shaw
3
Bailly
31
Matic
28
Wan-Bissaka
14
Lingard
6
Mata
43
Van De Beek
16
Amad
36
Elanga
11
Greenwood

Varamenn: Heaton(68′), Kovar, Hardley, Mengi(61′), Iqbal(88′), Savage(88′), Shoretire(68′)

Leikurinn var svo sem ekkert sérlega viðburðaríkur fyrstu mínúturnar og lítið frá að segja fyrr en á 9. mínútu, Anthony Elanga kom upp, gaf út á Shaw á kantinum sem fór næstum upp að endamörkum áður en hann gaf út í teiginn, og þar klippti Greenwood boltann í netið. Eitt – núll. Lesa meira

6
Meistaradeild Evrópu

Young Boys koma í heimsókn

Björn Friðgeir skrifaði þann 7. desember, 2021 | 1 ummæli

Síðasta afrek Ole Gunnars Solskjær var að tryggja United sigur í riðli sínum í Meistaradeildinni og á morgun tekur Ralf Rangnick á móti Young Boys og getur nýtt leikinn í að gefa mönnum séns og hvíla lykilmenn.

Á blaðamannafundi í dag gaf hann út að Nemanja Matic myndi leiða liðið út sem fyrirliði og að Dean Henderson og Donny van de Beek fengju tækifæri. Að Matic verði fyrirliði sýnir að Maguire og Bruno fái frí og við spáum bara svolítið út í bláinn Lesa meira

1
Meistaradeild Evrópu

Villarreal 0:2 Man Utd

Daníel Smári skrifaði þann 23. nóvember, 2021 | 19 ummæli

Það var lagið! 0-2 sigur á Spáni og við erum komnir í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu. Knattspyrnan var ekki áferðafalleg og við sáum lítið af boltanum á löngum stundum, en það skiptir engu máli úr því að stigin þrjú koma með okkur til Manchester. Michael Carrick gerði nokkrar breytingar á liðinu sem byrjaði síðasta leik. Bruno Fernandes og Marcus Rashford fengu sér sæti á bekknum, auk þess sem að Luke Shaw var meiddur. Í stað þeirra komu Donny van de Beek, Anthony Martial og Alex Telles inn í liðið. Lesa meira

19
Meistaradeild Evrópu

Stjóralaust og stefnulaust Manchester United heimsækir Villarreal

Magnús Þór skrifaði þann 22. nóvember, 2021 | Engin ummæli

Eftir vægast sagt djúpan dal hjá Manchester United hefur stjóranum Ole Gunnar Solskjær verið sagt upp störfum. Það sem vekur athygli er að hann var sá eini í þjálfaraliðinu sem var látinn fara. Mögulega mun það breytast þegar nýr stjóri tekur við, hvenær sem það nú verður. Michael  Carrick er tímabundinn stjóri þangað til að annar tímabundinn stjóri verður fenginn til að stýra liðinu út tímabilið. Við ræddum þetta í nýjasta þætti Djöflavarpsins. Carrick stýrir sínum fyrsta leik annað kvöld þegar United flýgur til Spánar og mætir á Estadio de la Cerámica, heimavöll Villarreal. Lesa meira

Efnisorð: Upphitun 0
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Page 5
  • Interim pages omitted …
  • Page 31
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress