Maður er farinn að huga að næsta tímabili og góðar frammistöður undanfarið eru farnar að gera mann ansi bjartsýnan fyrir framhaldið. Hvað svo sem mönnum finnst um Chelsea og þá leikaðferð sem Mourinho grípur til þegar hann þarf á sigri að halda er ekki hægt að neita því að liðið hans hefur verið besta liðið á tímabilinu. Vissulega hafa þeir hikstað undanfarið og þurft að treysta á markverði andstæðingana í undanförnum leikjum til þess að koma sér yfir línuna en heilt yfir á Chelsea skilið Englandsmeistaratitilinn í ár. Þannig er það bara, þeir kláruðu mótið í haust.
Chelsea 1:0 Manchester United
Það er erfitt að vera eitthvað dapur yfir tapi Manchester United á Stamford Bridge í dag. United spilaði vel, alveg á pari við þá leiki sem liðið hefur spilað undanfarið. Van Gaal sagði meira að segja eftir leikinn að þetta hafi verið besti leikur United í vetur. Hvort það sé nú rétt eða ekki þá er Chelsea alveg spes í því hvernig þeir spila, þeirra leikur snýst alfarið um að vera þéttir fyrir [footnote]PARK THE BUS![/footnote] og nýta sér þau mistök sem mótherjinn gerir. Í dag gerði United tvö mistök, eitt af þeim skapaði mark Chelsea og í hinu tilfellinu endaði boltinn í þverslánni hjá okkar mönnum. Að öllu öðru leyti stjórnaði United öllu á vellinum án þess þó að finna markið sem vantaði svo sárlega.
Rennum aðeins yfir liðin í dag. United stillti upp svona:
Bekkur: Valdes, Blackett (80), Rafael, Di Maria (70), Januzaj (70), Pereira, van Persie
Enn ein þolraunin – Chelsea á morgun
Þetta er búið að vera hreint ótrúlega gaman undanfarið! Sex sigurleikir í röð í deildinni, liðið verið meiðslalaust og farið að ná saman, leikaðferðin að smella, og meira að segja skemmtileg spilamennska.
En við vissum að þessi gríðarerfiða leikjahrina myndi enda á einum þeim erfiðasta. Síðustu 11 árin hefur United tvisvar unnið á Stamford Bridge. Í Meistaradeildinni vorið 2011 tryggði Wayne Rooney liðinu sigur með þessu marki
Djöfullegt lesefni: 2015:13
Rauðu Djöflarnir
- Skylduáhorf! – Yfirferð Neville og Carragher yfir spilamennsku United.
- Runólfur kíkti á nýtt hlutverk Wayne Rooney.
- Mánudagspælingar þessarar viku snerust að miklu leyti um miðjumenn United.
United
- Tíu tölfræðiþættir sem varpa ljósi á betri frammistöðu United undanfarið.
- Rooney segir að United hafi nýtti sér að í City-liðinu sé ákveðnir menn sem séu latir.
- Zonal Marking metur frammistöður þeirra leikmanna United sem komu í sumar.
- Delaney telur að spilamennska United undanfarið sé góður grunnur fyrir næsta tímabila.
- Louis van Gaal og félagar byrjuðu að undirbúa sig fyrir næsta tímabil í janúar með því að skoða nýja leikmenn og skipuleggja undirbúningstímabilið.
Leikmenn
- Af hverju er Michael Carrick svona mikilvægur fyrir liðið hans Van Gaal?.
- Ashley Young er endurfæddur.
- Andy Mitten skrifar um Fellaini.
- Barney Ronay skrifar um Michael Carrick.
- Wayne Rooney virðist vera að dæla út pepp-ræðum fyrir leiki.
Ýmislegt
- United neyðist til þess að spila í Nike-búningum sínum á æfingarferðalaginu um Bandaríkin í sumar vegna þess að Adidas-samningurinn tekur ekki gildi fyrr en 1. ágúst nk..
- Fyrrverandi talsmaður Glazer-fjölskyldunnar hefur skrifað bók um Glazerana.
- Simon Kuper, höfundur Soccernomics, skrifar um þessa bók og Glazerana.
- The Set Pieces eru með grein um IMUSA, hóp sem hefur barist hatrammlega gegn markaðsvæðingu Manchester United.
- FC United gengur vel um þessar mundir.
Leikmannaslúður
- United að fara bjóða 15m í Gundogan?
- Dortmund hafa boðið Hummels nýjan samning.
- United mun hafa betur í baráttunni við Liverpool um Memphis Depay.
- Daily Mail virðist hafa skúbbað því að Danny Ings sé á leiðinni til United.
- United er að skoða það að bjóða Chicarito í skiptum fyrir Nathaniel Clyne.
Mynd vikunnar
Lag vikunnar
Gojira – „L’Enfant Sauvage“
Fyrirliðinn Wayne Rooney
Eins og margir vita þá er undirritaður ekki stærsti aðdáandi Wayne Rooney, á sínum tíma var ég í fremsta vagni á Rooney-lestinni en færðist svo hægt og rólega aftar og stökk hreinlega frá borði á sínum tíma. En sem stendur er Rooney svo sannarlega að vinna sig upp í áliti. Það er einfaldlega ekki hægt að skafa af því, þegar Wayne Rooney spilar sem fremsti maður hjá Manchester United þá gengur liðinu betur.
Meiðsli Robin Van Persie voru vægast sagt lán í ólani. Þau leiddu til þess að Rooney var færður upp á topp og tilraunin til að breyta honum í miðjumann er vonandi endanlega úr sögunni. Liðinu gengur einfaldlega mun betur með Rooney upp á topp heldur en ella, það virðist þó ekki sem hann sé að hafa þessi gífurlegu áhrif sem maður reiknar með að framherji Manchester United hafi. Leikurinn gegn Manchester City á sunnudaginn er gott dæmi um það en Rooney átti aðeins 35 snertingar í leiknum (hann átti samt sem áður stoðsendingu á Juan Mata í leiknum). Hann hefur aðeins einu sinni á ferlinum átt jafn fáar snertingar á boltann í leik.