Juan Mata er búinn að skrifa undir. Vikan var löng, en þetta er staðfest! Verðið: 37,1m punda
Morgunslúður
Ef það er ekki nóg að búið sé að tilkynna að kaupa eigi Juan Mata þá er hér fínn morgunslúðurpakki:
Wayne Rooney er við það að skrifa undir nýjan samning sem færir honum lítil 300.000 pund á viku í tekjur. Þannig að enn einu sinni virðist ætla að taka að sefa hans órólegu sál með peningum, bæði til hans og með að sýna að okkur sé alvara í leikmannakaupum.
Skv. Mirror og Mail hefur United gert 22,5m. punda tilboð í undrabarnið Luke Shaw hjá Southampton. Shaw er 18 ára vinstri bakvörður og búinn að standa sig gríðarvel í vetur. Eina vandamálið við þetta er að Chelsea er líka á höttunum eftir honum til að koma í stað Ashley Cole, og Shaw ku gallharður Chelsea aðdáandi. En það má reyna.
Og að lokum var David Moyes á leik Bayern München og Borussia Mönchengladbach í gær. Af nógu var að taka í slúðri um hvern Moyes væri helst að spá í. Dante var nú bara að grínast með að það væri möguleiki á að hann færði sig, hann hefur engan áhuga. Mario Mandžukić er liklegra skotmark, enda vofa kaupin á Lewandowski yfir honum, þrátt fyrir að hann hafi bara skorað 14 mörk í 26 leikjum í vetur. Moyes skoðaði víst Mandžukić þegar Moyes var hjá Everton. En síðla kvölds í gær komu svo myndir af því að Moyes sat næstur umba Toni Kroos í stúkunni. Samningur Kroos rennur út á næsta ári og hann er ekkert að flýta sér að skrifa undir nýjan samning, vill fá almennilegan pening.
Þannig að það er aldrei að vita nema síðustu dagar janúar beri frekari góðar fréttir með sér.
Manchester United hefur náð samkomulagi um kaup á Juan Mata.
Það er orðið opinbert, Manchester United og Chelsea hafa komið sér saman um kaup United á Juan Mata. Kaupverð talið vera 37 milljónir punda sem gerir hann að dýrasta leikmanni í sögu Manchester United. Mata á eftir að standast læknisskoðun og skrifa undir samning. Læknisskoðanir hjá United eru algjört formsatriði enda komust bæði Owen Hargreaves og Michael Owen í gegnum slíkar. Þá hefur verið ljóst síðan í gær að samkomulag um kaup og kjör liggur. Þetta er því nær allt saman klappað og klárt, annað tímabilið í röð kaupir United gríðarlega sterka leikmenn frá fjendum sínum úr höfuðborginni.
Juan Mata er fæddur í Burgos á Spáni þann 28. apríl 1988 og er því 25 ára. Hann var í unglingaliði Real Madrid, gekk síðan til liðs við Valencia og eftir fjögur ár hjá þeim keypti Chelsea hann fyrir 23,5m punda sumarið 2011. Mata var ekki lengi að koma sér fyrir í ensku deildinni og á þeim tímabilum sem hann lék fyrir Chelsea lék hann 135 leiki, skoraði í þeim 35 mörk og lagði upp 58. Hann var valinn leikmaður ársins af Chelsea fyrir árin 2012 og 2013 sem þýðir það að Chelsea er að selja okkur sinn besta leikmann undanfarin tvö tímabil!
Hann féll þó í ónáð við endurkomu José Mourinho og hefur lítið fengið að spila undir stjórn hans. Mata hefur til að mynda aðeins lokið 90 mínútum tvisvar á leiktíðinni og varla fengið tækifæri til að spila nokkra leiki í röð. Það hefur þó ekki stoppað hann í að spila sinn leik, þrátt fyrir lítinn spilatíma er hann með tvær stoðsendingar og er næstefstur á blaði meðal Chelsea-manna þegar kemur að lykilsendingum í leik. Þess má geta að að hann er með jafnmargar stoðsendingar (2) á tímabilinu og Antonio Valencia sem hefur spilað umtalsvert meira en Juan Mata.
Þetta er skemmtilegt kvót frá Mata um Giggs:
When I was growing up, I had many idols, like Dennis Bergkamp and Gianfranco Zola. But Ryan Giggs was an inspiration to me. I think he showed what he’s worth with that goal. He’s one of the best wingers ever. Perhaps I noticed Giggs because he plays in the same position as me. He was incredibly impressive, with his tackling, dribbling and general style.
Opni „Er Juan Mata á leiðinni“ þráðurinn
kl 16:00
Fleiri fregnir berast að einhverjar tafir séu á því að félagskiptin verði kláruð fyrir og að tafirnar séu Chelsea-megin frekar en United-megin. Chelsea sé að bíða eftir því að kaupin á Salah gangi endanlega í gegn, það t.d. á eftir að ganga frá atvinnuleyfi fyrir hann ásamt öðru. Bæði félög eru þó ekkert að stressa sig og hafa trú á því að þetta muni klárast.
kl 15:10
Mirror segir að það verði ekki skrifað undir samninga fyrr en í næstu viku.
United are relaxed about the delay, believing the deal itself is not in jeopardy, but the hold-up may see them struggle to register the 25-year-old Spaniard in time to make his debut against Cardiff at Old Trafford on Tuesday.
A fee has been agreed between United and Chelsea for Mata, and it is understood the delay is down to the failure of both clubs to agree a structure of payments for the transfer.
kl 14:16
Í öðrum fréttum þá var Anderson að fá númerið 88 hjá Fiorentina.
kl 14:15
Stutt vídeó af Mourinho á fréttamannafundinum
kl 12:38
Mourinho staðfestir að Mata sé á leið til United.
Tilvitnanir frá Mourinho:
„Things are going in a good direction & we have allowed Juan to have the medical with United – I think sooner rather than later.“
„I asked him when the offer came: ‘Are you really happy to go?’ He said ‘I’m really happy to go'“
„He was disappointed, frustrated at not playing more“
„Many clubs/managers/boards feel you don’t sell to a rival club, we feel and we think different.“
„‘We are not afraid of him doing well at Man United, we want him to be happy & do well at Man United“
„He was not playing for this period of time. When I was going to send him on, we scored.I couldn’t make him feel great.“
„It’s a good offer… respectful to us, respectful to the value of the player that allows to try and bring another player.“
„When he comes back to Stamford Bridge with a Man United shirt on, for sure we will show how much we … respect him“
kl 8:22
Mikki litli Owen heldur að hann viti eitthvað:
So, Juan Mata is on the verge of a move to United. A little dickie bird tells me there is more good news for United fans coming soon! #tease
— michael owen (@themichaelowen) January 24, 2014
kl 7:30
Rob Marrs er púlari en hefur vit á fótbolta og hann hefur skoðun á því hvers vegna Mourinho vill selja Mata.
kl 7:00
Þetta er að taka lengri tíma en maður hefði vonað þannig að það er rétt að hafa hér þráð þar sem við smellum inn nýjustu fréttum af Juan Mata og öðru slúðri ef við á.
Í gær snérust sem sé fréttirnar um að Juan Mata myndi mæta á Carrington í þyrlu og fara í læknisskoðun en engar frekar fréttir bárust og loks kom í ljós að hann var enn í London í gærkvöldi. Skv. sömu fréttum á hann hins vegar að fara í þessa læknisskoðun í dag og vonandi skrifa undir upp úr því. Slúðrið vill meina að hann fái 130þúsund pund á viku… eða rétt rúmlega það sem Ashley Young fær.
Tvær fréttir í morgun þess virði að deila: Guillem Balague í Telegraph lýsir hvernig Mata hefur verið úti í kuldanum hjá Mourinho og í Independent er lýst hvers vegna United notaði þriðja aðila til að koma viðræðum í gang.
Meira þegar fréttir berast en þráðurinn er opinn
Manchester United 2(3):1(3) Sunderland (1-2 v)
Byrjum á góðu fréttunum. Samkvæmt The Telegraph hefur Chelsea samþykkt tilboð United í Juan Mata og allt er klappað og klárt, það eina sem eftir er læknisskoðun sem fram á að fara á morgun. Spennandi fréttir og vonandi fyrsta skrefið af mörgum til þess að bæta þennan leikmannahóp.
Þetta voru 119 mínútur af hreinræktuðum leiðindum, 2 mínútur af hreinni spennu og 5 mínútur af slökustu vítaspyrnukeppni í sögu knattspyrnunnar.
Byrjunarliðið var svona:
De Gea
Rafael Smalling Evans Büttner
Carrick Fletcher
Januzaj Welbeck Kagawa
Chicharito
Bekkur: Lindegaard, Evra, Jones, Cleverley, Giggs, Young, Valencia.
Sunderland: Mannone, Bardsley, Alonso, Brown, O’Shea (c), Cattermole, Colback, Ki, Johnson, Borini, Fletcher.
Fyrri leikurinn fór 2-1 og við þurftum því að skora meira en Sunderland til að fara áfram í kvöld. Það gekk ekki eftir. Það er nánast tilgangslaust að fjalla eitthvað um fyrstu 118 mínúturnar. Það var mikið um hlaup og mikið um baráttu hjá báðum liðum en afskaplega lítið um fótbolta. Okkur tókst þó að hnoða inn marki þegar Jonny Evans skoraði eftir horn. Leikurinn hóst af alvöru þegar David De Gea gerði sín verstu mistök í United-treyjunni til þessa. Á einhvern ótrúlegan hátt missti hann tiltölulega lélegt skot Bardsley í netið og staðan 1-1, Sunderland á leiðinni á Wembley. Virkilega slæmur tímapunktur til að gera mistök, David. Hann hefur verið slakur undanfarið en það er svo sem hægt að fyrirgefa honum það, hann hefur reddað okkur áður og það oft.
Við brunuðum í sókn og Chicarito gerði sitt allra besta til að skjóta yfir af 1 metra færi eftir frábæran undirbúning Adnan Januzaj en mistókst það og staðan því 2-1. Vítaspyrnukeppni staðreynd.
Darren Fletcher var sá eini sem skoraði úr víti fyrir okkur, Danny Welbeck og Phil Jones skutu yfir og Rafael og Januzaj létu verja frá sér. De Gea varði vítin frá Steven Fletcher og Adam Johnson, Graig Gardner skaut yfir en Ki-Sung Yueng og Marcos Alonso kláruðu sín víti.
Vítaspyrnukeppnin var alveg eins og leikurinn. Lítið um gæði en mikið um kraft enda kepptust menn við að negla yfir. De Gea hélt okkur inn í þessu með að verja tvo víti en þegar útileikmennirnir geta bara skorað úr einu af 5 er voðinn vís. Sunderland, já Sunderland sló okkur því út og verður því leitt til slátrunar á Wembley þegar liðið mætir City í úrslitunum.
Þessi leikur var í raun bara þverskurður af þessu tímabili. Liðið að spila illa en samt með forustu í leiknum 95% af honum og svo koma einhver fáranleg einstaklingsmistök sem kosta stigin eða úrslitin. Það segir allt sem segja þarf um hvað þetta lið þarf að fara í mikla endurnýjun að í leik eftir leik er Adnan Januzaj, 18 ára unglingur sem enginn vissi hver var fyrir örfáum mánuðum okkar langbesti leikmaður og það sem meira er, sá eini sem virðist vera tilbúinn til að leggja eitthvað á sig í leikjum liðsins. Er það tilviljun að hann er eini leikmaður liðsins sem spilaði ekki undir stjórn Sir Alex Ferguson? Eru leikmenn orðnir saddir og nenna ekki að leggja á sig það sem þarf til að rífa sig upp úr þessari lægð?
Moyes er vorkunn, enda mikið um meiðsli í hópnum en hann verður að átta sig á því að það er eitthvað ekki í lagi. Sumir leikmenn virðast áhugalausir og þeir sem eru slakir fá endalaus tækifæri. Afhverju má ekki gefa Fabio tækifæri fram yfir Evra? Hvaða tak hafa kantmennirnir okkar á Moyes og hversu slakur er Zaha á æfingum fyrst að hann kemst ekki í liðið á kostnað Valencia eða Young! Það má alveg prófa eitthvað nýtt!
David Moyes var ráðinn til Manchester United vegna þess að það er klúbbur sem ræktar hæfileika og klúbbur þar sem menn fá tækifæri til þess að vaxa í starfi, hvort sem að þú ert leikmaður eða knattspyrnustjóri. Svona hefur það verið, svona mun það vera og svona á það að vera. Moyes náði fínum árangri með Everton en fjandinn hafi það, það er ekki nógu gott fyrir Manchester United. Moyes þarf að sýna það að hann geti vaxið í þessu starfi líkt og Busby og Ferguson gerðu. Það væri fínt ef hann myndi byrja á því í næsta leik.