Eftir ansi glæsilega frammistöðu gegn Norwich í Capital One bikarnum þá er aftur komið að deildinni. Fulham hefur ekki gengið neitt sérstaklega í deildinni það sem af er.
Manchester United vann Fulham úti á síðasta tímabili 1-0 og vonandi sigrum við aftur núna og bara með meira af mörkum.
Samkvæmt physioroom.com eru bara Danny Welbeck og Darren Fletcher á meiðslalistanum og hjá Fulham eru Matthew Briggs, Hugo Rodallega og Brede Hangeland fjarri góðu gamni.
Það þarf ekki að fara mörgum orðum um hvað það er mikilvægt að ná almennilegu „rönni“ í deildinni og fara að sýna hinum liðunum að það sé enn ástæða til að óttast Manchester United.
Flashback-hornið
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=1RJ8eLXRbBA]
Mögulegt byrjunarlið
De Gea
Rafael Vidic Evans Evra
Carrick Giggs
Nani Rooney Kagawa
van Persie