• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska úrvalsdeildin

Liverpool á morgun

Magnús Þór skrifaði þann 22. september, 2012 | 6 ummæli

Þá er komið að fyrri slag þessara fornu fjanda. Liðin hafa byrjað þetta tímabil mjög ólíkt. Á meðan United voru slakir í fyrsta leik en hafa svo unnið fjóra leiki í röð ef að fyrsti leikurinn í meistaradeildini er tekinn með, þá hafa Liverpool átt sína verstu byrjun í um 100 ár. Svo hefur Manchester Utd ekki unnið á Anfield síðan 2007. En eins og oft áður þegar þessi lið mætast þá skiptir tölfræðin ekki alltaf máli. Leikurinn hefst klukkan 12:30.

Samkvæmt Sir Alex þá verður Wayne Rooney ekki í hópnum sem fer til Liverpool, hann er byrjaður að æfa á fullu og verður vonandi tilbúinn í næstu viku, á meðan þurfum við að bíða 2-3 vikur eftir að Ashley Young verði klár í slaginn. Ég held að David de Gea muni pottþétt byrja þennan leik eftir frábæra frammistöðu gegn Galatasaray á miðvikudaginn. Ferdinand verður líklega aftur í liðinu eftir að hafa verið hvíldur í sama leik. Margir vilja eflaust sjá Büttner í vinstri bakverðinum en mig grunar að Evra muni spila. Scholes verður líklega á bekknum eftir að hafa spilað 80 mínútur á miðvikudaginn, Cleverley verður pottþétt á miðjunni með Carrick og sóknarlínan verður sennilega óbreytt frá síðustu leikjum. Annars er alltaf möguleiki að Fergie muni komi á óvart með liðsvali og þá gæti Welbeck byrjað í stað Nani.

Líklegt byrjunarlið Man Utd

De Gea

Rafael Vidic Ferdinand Evra

Cleverley Carrick

Valencia Kagawa Nani/Welbeck

van Persie

 

Staða Liverpool er svolítið í sérstök í ljósi þess að liðið hefur alls ekki verið að spila illa í deildinni en þeirra helsti höfuðverkur er sá að þeir skora ekki mörk. Þeir eru ansi fáir framherjarnir í liðinu eða strangt til tekið tveir, og annar þeirra spilar á kantinum og hinn er Luis Suarez, sem virðist oftar en ekki gjörsamlega fyrirmunað að skora. Steven Gerrard hefur undanfarin ár verið lukkudýr Liverpool og hefur margoft komið liðinu til bjargar þegar hefur þörf hefur verið á. En með tilkomu Brendan Rodgers þá hefur Liverpool tekið upp nýjan spilstíl, svokallað tiki-taka sem flestir ættu að kannast með sem fylgst hafa með Barcelona og spænska landsliðinu undanfarin ár, Swansea spilaði þetta líka á síðustu leiktíð og skemmtu mörgum með skemmtilegu og hröðu spili. Gerrard hefur ekki ennþá fundið sig í nýja kerfinu og hefur ótrúlegt en satt í nokkrum leikjum verið slakasti leikmaður liðsins.

Líklegt byrjunarlið Liverpool:

Reina

Kelly Skrtel Agger Johnson

Shelvey Gerrard Allen

Borini Suarez Sterling

Þess má til gamans geta að Tryggvi Páll einn af ritstjórum síðunnar mun taka þátt í hringborðsspjall ásamt Kristjáni Atla af Kop.is á útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu í dag klukkan 13.15. Hvet alla til að hlusta á það.

PS: Opið bréf Ferguson til United aðdáenda.

 

Efnisorð: Liverpool Upphitun 6
Mótherji mælir Viðtöl

Mótherjinn mælir: Kristján af kop.is

ellioman skrifaði þann 21. september, 2012 | 15 ummæli

Það verður vonandi reglulegur viðburður hér fyrir stórleiki að fá stuðningsmann mótherjanna til að segja okkur aðeins frá liðinu sínu frá sínum sjónarhóli svo við getum aðeins kynnst þeim betur. Stórleikirnir gerast ekki stærri en leikurinn á sunnudaginn og það er við hæfi að fá fótboltabloggara sem er hokinn af reynslu sem fyrsta gest okkar hér.

Við bjóðum velkominn í heimsókn Kristján Atla Ragnarsson frá kop.is

Hvernig er almennt álit Liverpool stuðningsmanna á Brendan Rodgers?
Er hann rétti maðurinn í starfið?

Það er of snemmt að segja. Mönnum líst almennt mjög vel á hann; Swansea spiluðu flottan bolta á síðustu leiktíð og hann hefur sagt allt það rétta síðan hann tók við Liverpool. Hann kemur mjög vel fyrir. Hins vegar var sumarglugginn hálfgert klúður og það er erfitt að fylkja sér á bak við knattspyrnustjóra sem segir allt það rétta þegar hann hefur ekki unnið leik í fyrstu fjórum umferðunum. Ég skal svara þér um jólin.

Hvað þyrfti Liverpool að gera til þess að þú yrðir ánægður með þetta tímabil?
Hvar endar Liverpool í deild?

Mín von í upphafi tímabils var að liðið myndi bæta sig frá síðustu leiktíð og berjast um Meistaradeildarsæti. Hins vegar er leikmannahópurinn svo þunnskipaður að það þurfa nánast allir aðalliðsmenn að spila framar vonum og enginn þeirra má meiðast til að þær vonir standist. Og miðað við byrjun tímabilsins og þá ömurlegu staðreynd að Lucas Leiva sé þegar búinn að meiðast í 2-3 mánuði er ég nánast þegar búinn að gefa upp vonina. Í dag kæmi mér þægilega á óvart ef liðið næði Evrópusæti.

Hverjir verða meistarar?
Manchester City stigu stóra skrefið á síðustu leiktíð og verða illviðráðanlegir í vetur. United hafa reynsluna og Chelsea virka feykisterkir í upphafi móts en ég held að breiddin hjá City segi sitt. Ég verð hissa ef þeir verja ekki titilinn í ár, þótt ég búist við að Chelsea og United muni pressa þá alla leið að venju.

Hverjir eru mikilvægustu leikmenn Liverpool?
Lucas Leiva og Luis Suarez. Ef sá fyrrnefndi er ekki með stórsér á allri spilamennsku liðsins og ef sá síðarnefndi skorar ekki mörkin í vetur gerir það enginn. Í alvöru, hafið þið séð sóknarlínuna okkar? Suarez er helmingurinn af henni og hinn helmingurinn er að spila fyrir West Ham.

Hver er helsti veikleiki Liverpool-liðsins?
Sóknin, aftur. Ef Suarez skorar ekki mörkin gerir það enginn. Liðið skoraði aðeins 47 mörk í deildinni á síðustu leiktíð og veikti sóknarlínuna frekar en að styrkja hana í sumar. Lið sem skora ekki mörk ná ekki árangri.

Hvað þurfa leikmenn Liverpool að hafa mest í huga er þegar þeir mæta United?
Hvar er United hættulegast?

Robin Van Persie er augljóst svar, hann er heitasti framherji heims utan Spánar í dag og hann kálaði Liverpool á Anfield með ótrúlegri tvennu á síðustu leiktíð. Hins vegar er ég einnig logandi hræddur við Shinji Kagawa. Ég fylgdist vel með honum hjá Dortmund sl. tvö ár og miðað við hvernig Santi Cazorla fór með vörn Liverpool fyrir rúmum tveimur vikum ætti Kagawa að geta leikið sama leik ef hann fær tækifæri til. Liverpool verður að þagga niður í þessum tveimur til að eiga séns.

Hvaða veikleika telur þú United hafa sem Liverpool gæti nýtt sér?
Ég myndi segja að vörn United sé ekki sú sterkasta sem þeir hafa átt en þar mætir veikileiki United, vörnin, veikleika Liverpool, sókninni. Hins vegar hefur United annan veikleika sem aðdáandi United ræddi í podcast-þætti TheAnfieldWrap.com sl. mánudag, þ.e. að United virðist hafa nálgast Anfield af ákveðinni hræðslu síðustu ár. United virðist spila þessa leiki upp á jafntefli í stað þess að ráðast á Liverpool og ef þeir gera það núna eru þeir að bjóða hættunni heim. United er með sterkara liðið í dag og ég vona því að þeir sýni áfram sömu varkárni og undanfarin ár. Ef þeir ráðast að Liverpool eru mínir menn í vandræðum.

Ef þú gætir fengið einn leikmann frá United til Liverpool, hvern myndir þú velja?
Robin Van Persie. MÖRK ÓSKAST!

Hvernig myndir þú stilla Liverpool-liðinu upp fyrir leikinn?
Sterkasta lið Liverpool er nokkuð sjálfvalið þessa dagana og ég sé lítið sem breytir því, sérstaklega á meðan Lucas er meiddur. Pepe Reina verður í markinu, Johnson, Skrtel, Agger og Enrique verða í vörn, Allen, Gerrard og annað hvort Sahin eða Shelvey á miðjunni og Suarez, Borini og hinn ungi Sterling verða frammi. Ég vona að Nuri Sahin verði klár í þennan leik og ég vona að Rodgers hætti að prófa Glen Johnson í vinstri bakverði á kostnað Jose Enrique.

Hverju eiga United menn helst að taka eftir í leik Liverpool? Hvaða leikmanni/taktík?
Joe Allen. Hann er að spila langbest af okkar mönnum enda sá sem fylgdi Rodgers yfir frá Swansea og þekkir spilamennsku hans best. Aðrir leikmenn eiga í vandræðum í upphafi tímabils með að aðlagast nýjum leikstíl og Allen hefur staðið höfuð og herðar yfir aðra leikmenn liðsins hingað til, þrátt fyrir smæð. Auðvitað má líka benda mönnum á að fylgjast með hinum 17 ára Raheem Sterling sem hefur reynt fleiri „einvígi“ (þ.e. að sóla andstæðing) en nokkur annar leikmaður í deildinni hingað til.

Þín spá fyrir leikinn?
Suarez og Evra takast ekki í hendur og allt verður vitlaust … utan vallar. Eða þá að Evra verður á bekknum og Buttner í byrjunarliðinu. Get ég pantað það, plís? Allavega, leikurinn endar í jafntefli sem hentar báðum liðum ágætlega vel.

Hver er uppáhaldsleikur Liverpool og United sem þú hefur séð?
Ég hef þrisvar sinnum séð leiki þessara liða á Anfield og United hefur unnið þá alla. Ég hef svarið þess eið að fara aldrei, aldrei, aldrei aftur á leiki við United og ég mun fara í gröfina pirraður yfir John O’Shea-markinu vorið 2007. Hins vegar fór 1-4 sigurinn 2009 langt með að bæta mér þessa þrjá leiki upp. Það er og verður uppáhalds leikurinn minn um ókomna tíð grunar mig, enda ekki oft sem Liverpool vinnur svo stóran sigur á Old Trafford. ANDREA DOSSENA!

Nú erum við hér uppi á Íslandi ekki eins beintengdir í óvildina milli stuðningsmanna úti, en finnst þér aukin illindi milli stuðningsmanna síðasta tímabil hafa skilað sér upp á skerið?
Já. Því miður. Ég á nokkra bestu vini sem halda með United og það hefur verið þögult samkomulag okkar á milli að ræða Suarez/Evra-málið aldrei. Það þýðir bara ekkert. Hafi verið rígur þarna á milli í mörg ár er þar núna bara tilefni til rifrildis því Suarez og Evra bera nánast alltaf á góma og þá fer fólk að rífast. Ég veit ekki hversu langan tíma það tekur að hætta að rífast yfir þeirra máli, sennilega róast það ekki aftur fyrr en þeir eru báðir hættir að spila með sínum liðum. Þannig að ef þið væruð til í að selja Evra strax í janúar væri það vel þegið og myndi strax byrja að græða sárin :-)

Við þökkum Kristjáni Atla kærlega fyrir og vonum að þið hafið haft gaman af þessari innsýn í hugarheim Liverpool manna.

Efnisorð: Liverpool 15
Lesefni

Rauðu djöflarnir lesa:

ellioman skrifaði þann 20. september, 2012 | 5 ummæli

Frá síðustu útgáfu af „Rauðu djöflarnir lesa“ er United búið að spila tvo leiki. Sigruðu Wigan 4-0 í ensku deildinni og svo Galatasaray 1-0 í Meistaradeildinni. Það er því af nógu lesefni að taka og hér er það helsta sem við lásum í þessari viku.

  • ROM svarar ásökunum fjölmiðla um Hillsborough níðsöngva á Old Trafford um síðustu helgi og útskýrir söguna á bakvið “always the victims, it’s never their fault“
  • Gary Neville skrifaði frábæra grein um Hr. Paul Scholes
  • Sky Sports greinir frá því að Vidic og Gerrard munu í sameiningu sleppa 96 blöðrum til minningar um þá sem létu lífið í Hillborough harmleiknum
  • Van der Sar segir frá samtali sem hann átti við Van Persie í sumar
  • Beautifully Red sýnir okkur það besta úr leik United gegn Wigan
  • Steve Bruce talar um útsendararaskýrslu sem dæmdi hann veikburða og ekki nógu góðan fyrir United
  • Powell segir að engin hætta sé á því frægðin muni stíga honum til höfuðs
  • Swiss Ramble með grein sem útskýrir það helsta um Financial Fair Play (FFP)
  • The Guardian rifjar upp leikinn í Istanbul fyrir 19 árum þegar United heimsótti Helvíti
  • Sky Sports tók viðtal við Ferguson eftir leikinn gegn Galatasaray (Vídeó)

Að auki hefur Chevrolet verið með skemmtilegt Q&A þar sem aðdáendur spyrja leikmenn United alls kyns spurninga og svörin birt á youtube. Smellið hér til þess að sjá vídeóin.

5
Meistaradeild Evrópu

Manchester United 1:0 Galatasaray

Björn Friðgeir skrifaði þann 19. september, 2012 | 11 ummæli

Manchester United - GalatasarayGalatasaray kom í heimsókn á Old Trafford í fyrsta skipti í átján ár og var frekar óheppið að fara heim án stiga í leik þar sem fjórum vítum var sleppt sem virtust öll púra víti.

Lið United var næstum alveg eins og spáð var hér á síðunni, utan að Scholes byrjaði. Í virðingarskyni við tvær lögreglukonur sem myrtar voru í Manchester í gær léku leikmenn með sorgarbönd

De Gea

Rafael Vidic Evans Evra

Carrick Scholes

Valencia Kagawa Nani

Van Persie

Varamenn: Lindegaard, Ferdinand, Anderson, Cleverley, Fletcher, Hernandez, Welbeck.

Lið Galatasaray

Muslera

Eboué Semih Kaya Balta

Altıntop Melo İnan Amrabat

Yılmaz Bulut

United byrjaði illa þegar Vidic braut á Bulut innan teigs. Ekki alveg ljóst hvernig bæði dómarinn og sprotadómarinn misstu af því að Vidic fór beint aftan í manninn. Vel sloppið. United komst síðan vel inn í leikinn og sýndi oft snilldar uppbyggingu næstu mínútur.

Nani fékk prýðistækifæri á 6. mínútu sem Muslera varði, og mínútu síðar kom mark. Michael Carrick fékk boltann á miðjunni, gaf á Van Persie gerði vel að koma boltanum aftur á Carrick, sem gaf beint inn á Kagawa við vítahálfhringinn, og Carrick fékk boltann síðan beint til baka frá Shinji, var næsta óvaldaður og gat valsað inn í teig óáreittur. Muslera kom út á móti en Carrick fór snyrtilega framhjá honum, féll við þegar Muslera kom í hann, en náði samt að senda boltann í opið markið.

Galatasaray höfðu samt átt sínar sóknir og á 10. mínútu kom Amrabat upp að teig með fjóra í kringum sig, náði skotinu sem sveif í fallegum boga yfir De Gea og small í slána og yfir.

Leikurinn róaðist frekar eftir þennan hasar fyrstu mínúturnar, en fylgdu mynstrinu, United með boltann, en Galatasaray reyndi skyndisóknir. Þeir komu síðan meira inn í leikinn um miðjan hálfleikinn, United dró sig aðeins aftar og átti erfiðara með að halda boltanum.

Spilið hjá United var að fara mikið meira hægra megin eins og svo oft, en Valencia var ekki alveg í toppformi þegar kom að því að skila boltanum frá sér. Eftir því sem leið á varð Galatasaray hreinlega allsráðandi í leiknum, var að fá horn og eina hættulega aukaspyrnu við endamörk eftir að Evra braut klaufalega af sér, Evra var ekki að eiga góðan leik og virtist sem Galatasaray væri virkilega að stíla á að láta á hann reyna.

Virkilega erfiður fyrri hálfleikur ef frá eru taldar fyrstu 10 mínúturnar, og United í raun heppið að fara með 1-0 inn í hálfleik ef litið er til vítisins sem sleppt var.

United kom aðeins betur inn í seinni hálfleik og fékk víti á 52. mínútu þegar Rafael var felldur í góðu hlaupi inni í teig. Nani tók vítið, hikaði í aðhlaupinu og setti so lélegan bolta hálfa leið í hornið sem Muslera varði auðveldlega. United hefur skorað aðeins eitt mark úr síðustu sjö vítum sem er auðvitað hreinasta skömm

Rétt á eftir kom góð sending inn á teig United og skalli İnan fór í utanverða stöngina. Enn vel sloppið. Hinu megin átti Vidic skalla rétt yfir eftir horn Nani og United var með meiri stjórn á leiknum en í fyrri hálfleiknum. Spilið upp að teig var samt ekki alveg að gera sig.

Loksins kom færi á 70. mínútu, Nani stakk inn á Evra sem fór alveg upp að markteigshorni en skaut framhjá bæði Muslera og fjærstöng. Rétt á eftir vildi og átti Nani að fá víti en í staðinn kom Galatasaray upp, Yılmaz átti hörkuskot frá teig sem De Gea varði, boltinn barst út á varamanninn Çolak en De Gea varði skot hans glæsilega. Hasarinn hélt áfram og strax í næstu sókn endaði boltinn hjá Van Persie inni í teig en hann var of lengi að athafna sig og missti boltann.

Þetta var allt saman einhvern veginn of erfitt og allt of margir leikmenn að spila langt undir getu. Van Persie sást of lítið og var of slakur í að taka á móti þeim boltum sem hann þó fékk. Kagawa hvarf oft úr leiknum og Valencia var slakur. Nani var einna skástur, átti þokkalegar rispur.

Á 79. mínútu kom skipting sem fæstir bjuggust við. Darren Fletcher kom inná fyrir Scholes. Rétt á eftir fór Van Persie útaf og Chicharito kom inná. Ekkert við þá skiptingu að athuga, Van Persie búinn að vera slakur. Kagawa fékk svo líka að hvíla aðeins og Welbeck kom inn á. Það hefði verið hægt að dæma víti þegar Nounkeu kom alltof seint í Valencia, fór aðeins í fótinn á honum og Valencia féll. Sprotadómarinn var hins vegar að horfa inn í miðjan teiginn og ekkert var dæmt. Rétt á eftir kom sending frá Nani inn á Hernández sem skaut undir Muslera en Nounkeu var mættur og náði að stoppa skotið.

Fjórða vítið sem dómarinn missti af kom svo á þriðju mínútu uppbótartíma, Yilmas var á undan Evans í boltann og Evans sparkaði hann niður. Vægast sagt slök frammistaða há dómarnum, og ekki síður sprotadómaranum sem var beint fyrir framn brotin á Bulut, Nani og Valencia.

Chicharito skaut að lokum yfir með tilþrifum áður en dómarinn flautaði til leiksloka. United sleppur með þrjú stig úr því sem er á pappírnum erfiðasti heimaleikurinn, en ekki hægt að segja þetta hafi verið fallegt, vel spilað og öruggt. Sanngjarnt, kannske en dómaramistökin settu svip á leikinn. Úti á vellinum var Nani líklega skástur okkar manna, en maður leiksins var David De Gea sem hélt okkur inn í leiknum með nokkrum frábærum markvörslum þegar þeirra var virkilega þörf.

Ef liðið verður jafn andlaust á sunnudaginn verður leikurinn okkur erfiður.

Efnisorð: Galatasaray Leikskýrslur 11
Meistaradeild Evrópu

Liðið gegn Galatasaray

Björn Friðgeir skrifaði þann 19. september, 2012 | 23 ummæli

Liðið er komið

De Gea

Rafael Vidic Evans Evra

Carrick Scholes

Valencia Kagawa Nani

Van Persie

Varamenn:Lindegaard, Ferdinand, Anderson, Cleverley, Fletcher, Hernandez, Welbeck.

Næstum eins og ég spáði. Scholes er inni og þá má búast við Cleverly inni á sunnudaginn. Ekki nema einn varnarmaður á bekknum, þessi leikur skal ekki verða varnarleikur. Fletcher þar eins og spáð var, en kemur örugglega ekki inná nema kannske undir lokin í öruggum sigri

Galatasaray: Fernando Muslera; Emmanuel Eboué, Dany Nounkeu, Semih Kaya, Hakan Balta; Hamit Altıntop, Felipe Melo, Selçuk İnan, Nordin Amrabat; Burak Yılmaz, Umut Bulut

Leiðrétti uppstillinguna fyrir Galatasaray, var í númeraröð fyrst

Efnisorð: Galatasaray Liðsuppstilling 23
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 435
  • Page 436
  • Page 437
  • Page 438
  • Page 439
  • Interim pages omitted …
  • Page 444
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Elis um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress