• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska úrvalsdeildin

Liðið gegn Southampton

Björn Friðgeir skrifaði þann 2. september, 2012 | 36 ummæli

Liðið gegn Southampton er komið og lítur svona út:

Lindegaard

Rafael Ferdinand Vidic Evra

Cleverley Carrick

Valencia Kagawa Welbeck

Van Persie

Kemur verulega á óvart að sjá Rio þarna! Welbeck á kantinum kemur minna á óvart. Svo er bara vonandi að það sé bara verið að hvíla de Gea frekar en það séu meiðsli hjá honum

Viðbót: Bekkurinn: Giggs, Powell, Scholes, Evans, Nani og Chicharito

Lið Southampton K. Davis, Clyne, Fonte, Hooiveld, Fox, Ward-Prowse, Schneiderlin, S. Davis, Puncheon, Lallana, Lambert

Hér má líka ræða gang leiksins jafnóðum

Efnisorð: Liðsuppstilling Southampton 36
Enska úrvalsdeildin

Southampton á morgun

Björn Friðgeir skrifaði þann 1. september, 2012 | 32 ummæli

Southampton - Manchester United
United í heimsókn á St Mary’s

Eftir hálfbrösuglega byrjun Manchester United koma þær góðu fréttir að Jonny Evans er orðinn heill, og því þurfum við ekki lengur að þola að besti miðjumaðurinn okkar sé í miðverðinum. Evans lék allan leik U-21 árs liðsins í vikunni og er tilbúinn í slaginn á morgun. Rio Ferdinand og Phil Jones eru byrjaðir að æfa þó þeir séu ekki enn leikhæfir þannig að vonandi er varnarlínan að komast í fullan styrkleika. Ashley Young er hins vegar frá vegna meiðsla sem og auðvitað Rooney, en síðustu fréttir herma að hann verði kominn til baka eftir um mánuð, sem má teljast þokkalega sloppið.

Voetbal International í Hollandi var í gær að halda því fram að Büttner yrði í byrjunarliði, en ég ætla ekki að hlusta á það og spái liðinu okkar á morgun því svona:

De Gea

Rafael Evans Vidic Evra

Cleverley Carrick

Valencia Kagawa Nani

Van Persie


Það má búast við að á bekknum verði menn á borð við Büttner og jafnvel Nick Powell, og ólíklega spáin í þetta skiptið er að Darren Fletcher verði á bekknum eftir að hafa spilað U-21 árs leikinn í vikunni. Sir Alex segir að Fletcher verði að öllum líkindum í Meistaradeildarhópnum þar sem ekki sé það margir yfir 21 árs í hópnum að hann komist ekki fyrir án þess að ryðja öðrum út.

Á morgun fer United niður á suðurströndina og leikur á St Mary’s í Southampton í fyrsta skipti í deildinni síðan við felldum þá með sigri í síðasta leik vorið 2005.

Southampton er einn af þeim klúbbum sem margir eldri fótboltaáhugamennt líta á sem eitt af þeim liðum sem „eiga heima“ í efstu deild. Þessum áhugamönnum hefur nú orðið að ósk sinni eftir að Southampton komst upp í úrvalsdeildina i vor eftir sjö ára fjarveru. Þeir urðu í öðru sæti í fyrra á fyrsta ári sinu í deildinni eftir að þeir komu beint upp úr League One.

Þessi endurreisn klúbbsins eftir fall í kjölfar gjaldþrots mátti þakka yfirtöku Svisslendingsins Marcus Liebherr. Þrátt fyrir lát hans í fyrra breyttist aðstaða Southampton lítið þar sem erfingjar Liebherr fylgdu óskum hans um framgang klúbbsins. Einnig þykir stjóri Southampton, Nigel Adkins vinna einstaklega vel með mannskapinn

Southampton styrkti sig ekki að ráði í sumar en var nálægt því að gera Manchester City skráveifu í fyrsta leik tímabilsins þegar varamenn þeirra, Ricky Lambert, markakóngur Championship síðasta vetur og Steven Davies komu Southampton 2-1 yfir, áður en City kláraði leikinn 3-2. Tap gegn Wigan í síðasta leik 2-0 gefur þó til kynna að Southampton muni eiga erfitt uppdráttar í vetur.

Á lokadegi leikmannagluggans gengu Dýrlingarnir þó frá einum skemmtilegustu kaupum gluggans þegar þeir keyptu Úrúgvæann Gastón Ramírez frá Bologna. Ramírez var einn af aðalleikmönnum Úrúgvæ á Ólympíuleikunum í sumar og þykir mikið efni, alhliða miðjumaður. Hann var þó keyptur of seint í gær til að fá leikheimild fyrir leikinn á morgun.

Ásamt Lambert má því ætla að Adam Lallana fyrirliði og Jay Rodriguez sem keyptur var frá Burnley í sumar, séu hættulegustu leikmenn Southampton.
Ein aðvörun: Ekki verða hissa þegar þið sjáið leikinn, Southampton er liðið í Liverpool búningnum. Einhverra hluta vegna ákváðu þeir að hætta að spila í gömlu góðu hvítröndóttu búningunum sínum og fara í staðinn í alrauða búninga.

Þegar litið er á þessi tvö lið eigum við ekkert að velkjast í vafa að um skyldusigur er að ræða. Kagawa og van Persie hafa sýnt hvað þeir geta nú þegar og ásamt Valencia og Nani eiga þeir að leika vörn Southampton, sem er lítið meira en Championship vörn, grátt. En þrátt fyrir það sjáum við að City átti í vandræðum og vitum vel að enska deildin er ekki sú spænska og að vel skipulagt lið getur haldið mun sterkara liði í skefjum. Hvað um það, fyrsta spá mín hér á síðunni verður í bjartsýna kantinum, 3-0 sigur okkar manna.

En það merkilegasta við leikinn er auðvitað sú staðreynd að á morgun stýrir Sir Alex Ferguson United liðinu í þúsundasta skipti í deildarleik. Enn á ný sjáum hversu ótrúlega heppnir við vorum að fá hann til starfa og þökkum fyrir alla sigrana!

Efnisorð: Southampton Upphitun 32
Opin umræða

Velkomin á Rauðu djöflana – íslenska Manchester United bloggið

Björn Friðgeir skrifaði þann 1. september, 2012 | 24 ummæli

Rauðu djöflarnir
Rauðu djöflarnir
Kæru United aðdáendur! Nú er komið að því!

Í langan tíma hefur það verið draumur fyrir aðdáendur Manchester United, bloggara og tístara að fá alvöru íslenskt United stuðningsmannablogg. Ónefndur klúbbur, í nágrenni við Manchester, hefur í allnokkur ár haldið úti glimrandi fínu bloggi hér á landi og hafa aðstandendur þess oft varpað þeirri spurningu á United menn hvers vegna þeir séu ekki með sitt eigið blogg.

Fyrir um það bil mánuði síðan var eins og síðasta púslið smylli inn, fimm saman ákváðum við að láta slag standa og erum við núna tilbúnir með þessa síðu. Við hvetjum ykkur heimsækja sem oftast, gefa okkur ykkar álit, vera virk og taka þátt í umræðum og fjörinu með okkur. Við vonum að þið séuð ánægð með þetta framlag og að þessi síða veiti okkur öllum skemmtilegan vettvang til að ræða hluti tengda United.

Við höfum verið að skrifa hér í smá tíma þannig að nú þegar er til góður skammtur af efni til að renna yfir og við munum síðan kappkosta að flytja fréttir hér um leið og þær berast okkur!

24
Leikmenn Staðfest

Dimitar Berbatov til Fulham (staðfest)

Björn Friðgeir skrifaði þann 30. ágúst, 2012 | 6 ummæli

Dimitar starir bless

31. ágúst 2008 var viðburðaríkur dagur í Manchester. Sheikarnir frá Abu Dhabi keyptu Manchester City, og í æsingnum við að kaupa sterkan leikmann buðu þeir meira að segja 30m punda í Lionel Messi þegar einhver misskildi orð annars um að „things were getting messy“. Þeir buðu líka í Dimitar Berbatov. En Manchester United bauð líka í Dimi og í hans huga kom ekkert annað til greina. Manchester United hafði eytt yfir 20 milljónum punda í leikmann í fyrsta sinn síðan Malcolm Glazer keypti félagið og reyndar í síðasta sinn þangað til Robin van Persie kom til liðsins fyrir tveimur vikum. Verðið var reyndar rúmar 30 milljónir og Berbatov er dýrasti leikmaður í sögu félagsins.

Allt átti þetta sér auðvitað skýringu, félagið vissi á þessum tíma að Ronaldo var búinn að fá loforð um að fá að fara frá félaginu næsta sumar og víst að hann yrði seldur góðu verði.

Það er alveg óhætt að segja að Berbatov hafi skipt stuðningsmönnum United í tvo hópa síðan þá. Sumir dá hann, aðrir líta á hann sem letihaug. Ég skammast mín ekkert fyrir að vera í fyrri hópnum. Fyrsta árið skoraði hann 9 mörk í 31 leik í deild og margir stuðningsmenn voru æfir yfir að Tévez væri látinn fara en ekki Berbatov. Þar litu menn auðvitað alveg framhjá því að það hefði kostað amk 25 milljónir að kaupa Tévez til að vera áfram. En ansi margir voru hrifnari af þindarlausum hlaupum hins síðarnefnda frekar en áreynslulausu spili Berbatov sem byggðist á bestu fyrstu snertingu í heimi og tækni sem var meiri en nokkur sem ég hef séð síðan kóngurinn Cantona var og hét.

Árið eftir töpuðum við deildinni til Chelsea, Berbatov skoraði 12 mörk í deild og var ekki að vinna hug og hjörtu þeirra sem ekki voru hrifnir af honum. En tímabilið 2011-12 ætti að nægja hverjum sem er til að dá Dimitar Berbatov. Hann skoraði 20 mörk í 32 leikjum, var markahæstur í deild (ásamt þessum fyrrnefnda fyrrverandi United leikmanni) og var ein meginástæðan fyrir því að United vann 19. titilinn sinn, titil sem þarf væntanlega ekki að segja neinum sem þetta les hvers vegna er svo mikilvægur okkur.

En í fyrra var ljóst að Sir Alex hafði ákveðið að það sem fyrst og fremst vantaði í leik United væri aukinn hraði, og það þýddi bara eitt. Dagar Dimitars hjá United voru taldir. Engu að síður skoraði hann sjö mörk í tólf deildarleikjum og sagði aldrei eitt styggðaryrði um klúbbinn né Sir Alex. Ótrúlega kurteisleg og virðingarverð framkoma sem er óvenjulegt að sjá frá knattspyrnumanni úti í kuldanum

Í vor var nýtt ákvæði í samningi hans og sá framlengdur um ár, og það var nokkuð ljóst að það væri bara til að United fengi einhvern pening fyrir hann þegar hann færi. Samt virtist enginn hraði á hlutunum, fyrr en síðustu tvo daga að allt fór að gerast og núna er Berbatov Fulham leikmaður. Ég hefði svo miklu heldur viljað sjá hann á Ítalíu í aðeins hægari bolta, þar sem hann væri ólíklegur að gera okkur skráveifu. Og að auki er Fulham búið að spila á Old Trafford nú þegar þannig stuðningsmenn fá ekkert að hylla hann.

Að lokum. Í mínum huga snýst Berbatov ekki um 19. titilinn, markakóngstitil, eða meinta leti. Hann var einfaldlega mesti töframaður sem ég hef lengi séð. Í 99,9% hata ég af einlægni tónlist sem menn velja við fótboltamyndband. Hér kveðjum við sannan meistara með frábæru myndbandi með fullkomlega viðeigandi tónlist.

httpv://www.youtube.com/watch?v=29czY142IpQ

Efnisorð: Dimitar Berbatov 6
Meistaradeild Evrópu

H-riðill Meistaradeildarinnar

Tryggvi Páll skrifaði þann 30. ágúst, 2012 | 1 ummæli

Það eru fáir vellir sem státa af fjalli sem stúku, eins og Estádio Municipal de Braga.

Eins og alþjóð veit var í dag dregið í riðla Meistaradeildar Evrópu. Að venju var riðillinn okkar í léttari kantinum. Við drógumst gegn Braga frá Portúgal, Galatasaray frá Tyrklandi og CFR Cluj frá Rúmeníu. Þetta eru allt lið sem við ættum að fara í gegnum.

Þó er best að hafa allan vara á eftir reynslu síðasta tímabils þar sem við fengum mjög áþekkan riðil en guldum algjört afhroð. Það eina slæma við þennan riðil er okkar menn þurfa að fara í helst til of löng ferðalög til Tyrklands og Rúmeníu. Þetta hefði þó getað verið verra, eins og andstæðingar okkar í City fengu að kenna á.

Riðilinn lítur þá svona út:

H-riðill

  1. Manchester United
  2. Braga
  3. Galatasaray
  4. CFR Cluj

Braga

Lið Braga er nokkuð lítið lið en er þó líklega með einn flottasta heimavöll Evrópu sem var byggður fyrir EM 2004 sem fór fram í Portúgal. Heitir hann Estádio Municipal de Braga og tekur 30.154 í sæti. Liðið endaði í 3.sæti portúgölsku deildarinnar, 13 stigum frá meisturum Porto. Braga var í potti 2 ásamt liðum eins og City, Valencia og Benfica þrátt fyrir að vera ekki með mikla reynslu í Meistaradeildinni. Ástæðan fyrir því að liðið var svo ofarlega í pottaröðinni er sú að liðið hefur náð góðum árangri í Evrópudeildinni undanfarin ár og komst m.a. í úrslit árið 2011 en tapaði þar fyrir löndum sínum í Porto.

Galatasaray

Lið Galatasaray þekkja flestir enda fornfrægt félag. Liðið er með bækistöðvar í Istanbúl og því gaman fyrir liðsmenn United að fá að kynnast þessari sögulegu borg aðeins betur. Liðið er eitt af stóru liðunum í Tyrklandi og eina liðið sem hefur unnið UEFA-bikarinn, UEFA Super-cup, tyrknesku deildina og tyrkneska bikarinn á sama ári en það gerðist árið 2000. Liðið spilar á flunkunýjum heimavelli, hinum glæsilega Turk Telecom Arena sem tekur alls 52.695 manns í sæti. Ekki amalegt það. Lið í Tyrklandi hafa undanfarin ár verið helst þekkt fyrir að sanka að sér nokkuð þekktum nöfnum sem ekki náðu að meika það í bestu deildum Evrópu. Af núverandi spilurum í röðum Galatasaray af því taginu má nefna leikmenn eins og ruslakarlinn sjálfan Felipe Melo, Liverpool-manninn Alberto Riera og skemmtikraftinn Emanuel Eboue.

CFR Cluj

Fyrir tiltölulega skömmu var CFR Cluj lið sem enginn hafði hugmynd um að væri til. Það er svosem ekki skrýtið enda hafa lið frá höfuðborginni í Bucharest eignað sér rúmensku deildina í gegnum tíðina. Árið 2008 varð CFR Cluj fyrsta liðið í 17 ár utan höfuðborgarinnar til þess að vinna deildartitilinn en sex árum áður hafði liðið verið í rúmensku þriðju deildinni en vísir menn segja reyndar að hún sé ógnarsterk. Árið 2002 komu nýjir eigendur að liðinu og síðan hefur leiðin bara verið upp og hefur liðið unnið alls 8 titla síðan þá, þar af deildina þrisvar. Liðið leikur á heimavelli sem tekur 23.500 manns í sæti og heitir því athyglisverða og þjála nafni Dr. Constantin Radulescu stadium. Það er nú ekki mikið um þekkt nöfn sem spila með liðinu. Ég kannaðist aðeins við nafn Ádám Vass sem spilaði eitt sinn um skamma hríð með Stoke.

Uppfært (BFrB): Leikdagar komnir: 19. sep. Galatasaray (h); 2. okt. Cluj (ú); 23. okt. Braga (h); 7. nóv. Braga (ú); 20. nóv. Galatasaray (ú); 5. des. Cluj (h). Smá fjúkk hér, Leikirnir á eftir heimaleikjunum eru Liverpool (ú), Chelsea (ú) og City (ú). Þannig að sleppa við ferðalög á undan þeim er snilld.

1
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 441
  • Page 442
  • Page 443
  • Page 444
  • Page 445
  • Page 446
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Arni um Liðið í Manchester slagnum
  • Helgi P um Liðið í Manchester slagnum
  • Gummi um Liðið í Manchester slagnum
  • Halldór Marteins um Liðið í Manchester slagnum
  • sófinn um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress