• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Aston Villa

Enska úrvalsdeildin

Manchester United 1:0 Aston Villa

ellioman skrifaði þann 16. apríl, 2016 | 9 ummæli

United tók á móti Aston Villa á Old Trafford í leik sem skipti gríðarlega miklu máli fyrir bæði lið. United í bullandi baráttu við Arsenal, City og West Ham (mögulega Liverpool og Southampton) um fjórða sætið í deildinni og allt annað en sigur myndi þýða að Aston Villa væri fallið.

Fyrir leikinn var maður alveg hæfilega bjartsýnn á sigur þar sem United er búið að vera á ágætis róli þrátt fyrir tap í síðasta deildarleik og vegna þess að Aston Villa er búnir að vera áberandi versta liðið á þessu tímabili. Lesa meira

Efnisorð: Aston Villa Leikskýrslur Marcus Rashford 9
Enska úrvalsdeildin

Aston Villa kemur í heimsókn á Old Trafford

ellioman skrifaði þann 16. apríl, 2016 | 2 ummæli

Jæja, rússíbanareið tímabilsins hjá Manchester United heldur áfram. Eftir hrikalega svekkjandi tap gegn Tottenham Hotspurs um síðustu helgi þá náði liðið að vinna hið feiknasterka lið West Ham tvö núll í Fa bikarkeppninni í vægast sagt stórskemmtilegum og erfiðum leik þar sem Marcus Rashford skoraði eitt af fallegustu mörkum United á þessu tímabili. Það sem þessi sigur gerði var að koma United í fjögurra liða úrslit bikarkeppninnar með Everton, Crystal Palace og Watford og er það eini sjens United að vinna bikar á þessu tímabili. Lesa meira

Efnisorð: Aston Villa Upphitun 2
Enska úrvalsdeildin

Aston Villa 0:1 Manchester United

Magnús Þór skrifaði þann 14. ágúst, 2015 | 20 ummæli

Leikurinn

Leikurinn fór alveg ágætlega af stað. United til að mynda byrjuðu töluvert betur en gegn Spurs. Augljóst var að menn voru ekki alveg komnir í leikform. Í fyrri hálfleik er ekki hægt að segja United hafi vaðið í færum en þeir voru töluvert betri aðilinn. Það var svo á 29.mínútu að Adnan Januzaj fær sendingu frá Juan Mata og leikur síðan glæsilega á Micah Richards og skorar. Boltinn fór af Villa manni og í fjærstöng og inn. Eftir markið varð allt frekar varfærnislegt og hægt. En liðið leiddi þó í hálfleik. Lesa meira

Efnisorð: Aston Villa 20
Enska úrvalsdeildin

Aston Villa á föstudegi

Magnús Þór skrifaði þann 13. ágúst, 2015 | 6 ummæli

Um leikinn

Já, þið lásuð það rétt. Á morgun föstudag mun Manchester United mæta á Villa Park og leika gegn heimamönnum í Aston Villa. Þegar nýji sjónvarpssamningurinn var gerður sem hefur tryggt liðunum í deildinni töluverða peninga var ákveðið að einhverjir leikir myndu fara fram á föstudögum. En það mun ekki byrja fyrr en á tímabilinu 2016-2017. Ástæðan fyrir þessari tímasetningu mun vera vegna hægri-öfgasamtakanna EDL (English Defence League) sem ætla að marséra um nágrannabæinn Walsall á laugardeginum og mun þurfa allt fáanlegt lögreglulið svæðisins. United að fara að spila í Meistaradeildinni á þriðjudeginum og þar af leiðandi var sunnudagurinn úr myndinni. Því var ákveðið að leika á morgun. Lesa meira

Efnisorð: Aston Villa Upphitun 6
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 3:1 Aston Villa

Magnús Þór skrifaði þann 4. apríl, 2015 | 9 ummæli

View image | gettyimages.com

Eftir stórsigur Arsenal gegn Liverpool gafst gullið tækifæri til að taka stórt skref í átt að meistaradeildarsæti. Einnig var ljóst að með sigri myndi United komast upp fyrir Man City á töflunni þó þeir eigi reyndar núna leik til góða.

Það var vitað að van Gaal myndi ekki breyta liðinu sem hefur einmitt staðið sig svo vel að undanförnu. Eina breytingin var gerð vegna meiðsla Chris Smalling en Marcos Rojo tók sæti hans í vörninni. Lesa meira

Efnisorð: Aston Villa Leikskýrslur 9
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Page 5
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Snjómaðurinn um Liðið í Manchester slagnum
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress