• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Burnley

Enska úrvalsdeildin

Manchester Utd 2:2 Burnley

Magnús Þór skrifaði þann 29. janúar, 2019 | 21 ummæli

Leikurinn

Það hlaut að koma að því að þessi sigurhrina myndi enda. En einhvern veginn bjóst maður vikki við því að það myndi gerast gegn Burnley á Old Trafford. Leikurinn sýndi að það er enn ansi langt í land þó svo að margt hafi lagast heilmikið. Fyrri hálfleikurinn var ekki nógu góður og átti Marcus Rashford að skora í upplögðu færi en á einhvern ótrúlegan hátt tókst það ekki. Það hjálpaði heldur ekki neitt að Anthony Martial hafði meiðst aðeins fyrir leikinn og þurfti því að gera breytingu á sóknarleiknum sem virkaði bara alls ekki. Tom Heaton varði svo þessi fáu skot sem rötuðu á rammann. Burnley komust yfir snemma í seinni hálfleik með marki frá Ashley Barnes eftir mistaka kokteil hjá United þar sem Andreas Pereira átti mesta sökina. Ole tók sinn tíma að gera breytingar en það voru þeir Pereira og Romelu Lukaku sem voru teknir af velli en Jesse Lingard og Alexis Sánchez leystu þá af hólmi. Heimamenn pressuðu stöðugt en bjuggu ekki til nógu mikið af færum. Chris Wood kom svo Burnley í 0:2 á 83. mínútu og aftur var varnarmistökum um að kenna. Þetta stefndi í að ætla að vera einstaklega svekkjandi kvöld og dæmigert fyrir tímabilið í heild. United fékk vítaspyrnu nokkrum mínútum síðar og skoraði Paul Pogba örugglega framhjá Heaton sem á alltaf leik lífs síns í þessum viðureignum. Dómarinn bætti svo við 5 mínútum af „Ólatíma“ og vaknaði smá von um að hægt væri að bjarga kvöldinu. Það gerðist svo á 92. mínútu þegar Victor Lindelöf skoraði eftir frákast en Heaton hafði varið mjög vel og boltinn hrokkið til Svíans sem gerði allt rétt. Niðurstaðan 2:2 jafntefli og Solskær enn ósigraður. Lesa meira

Efnisorð: Andreas Pereira Burnley Leikskýrslur Paul Pogba Romelu Lukaku Victor Lindelöf 21
Djöflavarpið

Djöflavarpið 60.þáttur – „Hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér?“

Magnús Þór skrifaði þann 6. september, 2018 | 5 ummæli

Maggi, Halldór og Björn settust niður og fóru yfir sigurinn gegn Burnley. Einnig ræddum við um leikmenn sem eru við það að renna út á samning og að sjálfsögðu hann Paul Pogba. Svo viljum við endilega fá spurningar frá ykkur fyrir næsta þátt.

Við viljum endilega fá ykkar álit þannig að virk þáttaka í athugasemdarkerfinu er vel þegin.

 

Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér fyrir ofan auk þess sem hægt er að hala honum niður í gegnum spilarann eða hér að neðan. Jafnframt má gerast áskrifandi að þættinum í gegnum ýmis podkast-forrit: Lesa meira

Efnisorð: Alexis Sanchez Burnley David de Gea Karlaliðið Luke Shaw Paul Pogba Romelu Lukaku Samningamál 5
Djöflavarpið

Djöflavarpið 59.þáttur – Er kortér í krísu hjá United?

Magnús Þór skrifaði þann 30. ágúst, 2018 | 4 ummæli

Maggi, Halldór Björn, Runólfur og Friðrik settust niður og fóru yfir drættina í Meistaradeild Evrópu og Carabao bikarnum. Tottenham leikurinn hjá karla liðinu var einnig til umræðu sem og leikur kvennaliðsins gegn Reading. Svo var farið yfir það sem helst var að frétta í vikunni.

Við viljum endilega fá ykkar álit þannig að virk þáttaka í athugasemdarkerfinu er vel þegin. Lesa meira

Efnisorð: Alexis Sanchez Burnley Chris Smalling David de Gea Ed Woodward Jose Mourinho Karlaliðið Kvennaliðið Luke Shaw Paul Pogba Romelu Lukaku Tottenham Hotspur 4
Enska úrvalsdeildin

United fer til Burnley

Magnús Þór skrifaði þann 22. apríl, 2017 | 3 ummæli

Manchester United var  heldur betur refsað grimmilega fyrir að ná ekki að klára Anderlecht í venjulegum leiktíma því bæði Marcos Rojo og Zlatan Ibrahimovic fóru meiddir af velli. Meiðsli Rojo virtist ekki jafn slæm og hjá Zlatan en nú hefur verið staðfest að báðir slitu þeir krossbönd í hné og ólíklegt að þeir komi meira við sögu á árinu 2017. Svo er hreinlega spurning hvort Zlatan hefur leikið sinn síðasta leik fyrir United því samningurinn hans rennur út í sumar og hann verður a.m.k. frá þangað til í janúar og því erfitt að réttlæta háan launakostnaðinn. Lesa meira

Efnisorð: Burnley Michael Keane Upphitun Zlatan Ibrahimovic 3
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 0:0 Burnley

Magnús Þór skrifaði þann 29. október, 2016 | 24 ummæli

Ótrúlega svekkjandi markalaust jafntefli er niðurstaðan í dag. United gjörsamlega yfirspilaði Burnley en gátu bara ekki komið tuðrunni í netið. Ótrúlega léleg dómgæsla Mark Clattenburg hjálpaði ekki en hann allar stóru ákvarðanirnar voru rangar hjá honum í dag.

Þessi leikur var í rauninni stórfurðulegur. Liðið spilaði virkilega vel og vörnin var traust. Burnley mætti með tvær rútur í dag og lögðu þeim á mjög svo árangursríkan hátt. Það hjálpaði t.d. Tom Heaton að líta út fyrir að vera meira en bara miðlungs markvörður. En það er náttúrulega ekki nýtt að þannig markverðir eigi leiki lífs síns á Old Trafford. Lesa meira

Efnisorð: Ander Herrera Burnley Leikskýrslur Mark Clattenburg Old Trafford 24
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress