• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Crystal Palace

Djöflavarpið

Djöflavarpið 50.þáttur – Er José Mourinho algjörlega búinn að missa það?

Magnús Þór skrifaði þann 22. mars, 2018 | 11 ummæli

Maggi, Tryggvi, Björn og Halldór settust niður  og fórum yfir leikina frá sigrinum á Chelsea. Einnig voru mál þeirra Luke Shaw og Alexis Sánchez tekin fyrir. José Mourinho hefur verið mikið á milli  tannanna hjá aðdáendum United og létum við spurningarnar ykkar ráða ferðinni þegar hann var  ræddur.

PS: Þessi þáttur var tekinn upp mínútum áður en fréttir bárust af stofnun atvinnukvennaliði Manchester United og það verður klárlega tekið fyrir í næsta þætti. Lesa meira

Efnisorð: Alexis Sanchez Brighton Crystal Palace Jose Mourinho Liverpool Luke Shaw Sevilla Spurningar 11
Enska úrvalsdeildin

Crystal Palace 2:3 Manchester United

Halldór Marteins skrifaði þann 5. mars, 2018 | 27 ummæli

 

Lengi vel leit út fyrir að þriðja tap Manchester United á útivelli í röð væri á leiðinni. En ótrúleg endurkoma á lokaparti leiksins náði að bæta upp fyrir virkilega slaka frammistöðu framan af. Manchester United náði því að endurheimta 2. sætið í deildinni og auka muninn í 5. sætið upp í 9 stig.

Fyrir leikinn kom í ljós að Anthony Martial gat ekki ferðast með hópnum til London vegna meiðsla. Vonum að það sé ekkert stórvægilegt því liðið getur sannarlega nýtt hans krafta á lokasprettinum. Lesa meira

Efnisorð: Chris Smalling Crystal Palace Nemanja Matic Romelu Lukaku Selhurst Park 27
Enska úrvalsdeildin

Mánudagskvöld á Selhurst Park

Halldór Marteins skrifaði þann 4. mars, 2018 | 1 ummæli

Tottenham Hotspur vann sinn laugardagsleik gegn Huddersfield Town með tveimur mörkum gegn engu. Liverpool vann svo sinn leik seinni part laugardags gegn Newcastle United, einnig með tveimur mörkum gegn engu. Chelsea náði hins vegar ekki að vinna sinn sunnudagsleik heldur tapaði gegn verðandi meisturum Manchester City. Fyrir þennan leik Manchester United gegn Crystal Palace þá er því Liverpool aftur komið uppfyrir United í töflunni, Tottenham er aðeins einu stigi frá United en Chelsea áfram sex stigum á eftir. Það er því dauðafæri að slíta sig frá fimmta sætinu og koma muninum upp í 9 stig með 9 leiki eftir. Lesa meira

Efnisorð: Crystal Palace Selhurst Park Upphitun 1
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 2:0 Crystal Palace

Magnús Þór skrifaði þann 21. maí, 2017 | 8 ummæli

Það var fallegt sumarveður í Manchesterborg í dag. Sólin skein og andrúmsloftið á Old Trafford var jákvætt. José Mourinho var búinn að gefa það út að rjóminn af yngri leikmönnum félagsins myndu fá tækifæri til að spila á þessum magnaða heimavelli. Gengið í deildinni í vetur var ekkert annað hörmung en samt var allt svo jákvætt eitthvað í dag.

Embed from Getty Images Lesa meira

Efnisorð: Angel Gomes Crystal Palace Joel Pereira Josh Harrop Leikskýrslur Paul Pogba Wayne Rooney 8
Enska úrvalsdeildin

Crystal Palace 1:2 Manchester United

Halldór Marteins skrifaði þann 14. desember, 2016 | 16 ummæli

Að þessu sinni gerði Mourinho fjórar breytingar á liðinu frá sigurleiknum gegn Tottenham um liðna helgi. Tvær breytinganna voru þvingaðar þar sem Eric Bailly og Juan Mata komu inn fyrir Valencia, sem tók út leikbann, og hinn meidda Mkhitaryan. Auk þeirra komu fyrirliðinn Wayne Rooney og Daley Blind inn fyrir Martial og Darmian. Liðsuppstillingin var því svona:

1
De Gea
17
Blind
5
Rojo
4
Jones
3
Bailly
6
Pogba
16
Carrick
21
Herrera
10
Rooney
9
Zlatan
8
Mata

Varamenn:

Romero, Darmian, Fellaini, Lingard, Schweinsteiger, Young, Rashford Lesa meira

Efnisorð: Crystal Palace Leikskýrslur Liðsuppstilling Marcos Rojo Paul Pogba Zlatan Ibrahimovic 16
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Page 5
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Arni um Liðið í Manchester slagnum
  • Helgi P um Liðið í Manchester slagnum
  • Gummi um Liðið í Manchester slagnum
  • Halldór Marteins um Liðið í Manchester slagnum
  • sófinn um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress