Pistlar

Er allt í rugli?

Eftir leikinn í gær fannst mér tilvalið að hlaupa aðeins yfir leikinn, mína skoðun á leikmannahópnum og það sem af er tímabili.

Eins og þau ykkar sem lásu upphitunina fyrir leikinn í gær tókuð eflasut eftir þá var ég sammála Mourinho með flest allar breytingarnar sem hann gerði á liðinu. Hann veit það sjálfur að það þarf að halda leikmönnum góðum og ferskum, því voru flestar breytingarnar jákvæðar, allavega fyrir leik. Þeir leikmenn sem hafa ekki fengið mínútur fengu þær núna, hvernig þeir nýttu þær er svo allt annað mál. Lesa meira

Evrópudeildin

United fer til Hollands

Annað árið í röð dregst Manchester United með félagi frá Hollandi í Evrópukeppni. Í ár tekur United hins vegar ekki þátt í Meistaradeild Evrópu heldur hinni víðfrægu Evrópudeild sem við höfum fengið að kynnast fullvel á undanförnum árum.

Klukkan 17:00 á morgun hefst Evrópuævintýri okkar manna í Rotterdam, Hollandi. Þetta er fyrsti leikur United af þremur á útivelli í þremur mismunandi keppnum. Það sem gerir leikinn á morgun ef til vill enn sérstakari er að þetta er völlurinn þar sem United lagði Barcelona í Evrópukeppni Bikarhafa árið 1991. Lesa meira