• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Galatasaray

Meistaradeild Evrópu

Galatasaray á morgun

Björn Friðgeir skrifaði þann 19. nóvember, 2012 | 12 ummæli

Á morgun ferðast Manchester United til Istanbúl í fimmta sinn til leiks í Evrópukeppni meistaraliða, eða Meistaradeildinni. Með fullri virðingu fyrir fyrri leikjum gegn Fenerbahçe og Beşiktaş, þá eru það leikirnir gegn Galatasaray sem lifa í minningunni og þá fyrst og fremst leikur liðanna 3. nóvember 1993, eða fyrir rúmum 19 árum.

Haustið 1993 var stór stund hjá United áhangendum. Þá var Evrópukeppni meistaraliða var að breytast í Meistaradeild Evrópu og bar samt enn nafn með rentu, einungis fyrir meistara og eftir brjálæðislega sigurgleði vorsins áður fengu fékk Manchester United í fyrsta skipti í 24 ár farmiða sem gæti endað í fyrirheitna landinu með Evrópumeistaratigninni. Fyrstu mótherjarnir voru Ungverjarnir í Honved sem voru auðveldlega lagðir að velli heima og heiman en síðan kom að Galatasaray. Vanmat og mistök leiddu til þess að fyrri leikur liðanna á Old Trafford fór 3-3 og framundan var ferðin til Istanbúl. Lesa meira

Efnisorð: Galatasaray Upphitun 12
Meistaradeild Evrópu

Manchester United 1:0 Galatasaray

Björn Friðgeir skrifaði þann 19. september, 2012 | 11 ummæli

Galatasaray kom í heimsókn á Old Trafford í fyrsta skipti í átján ár og var frekar óheppið að fara heim án stiga í leik þar sem fjórum vítum var sleppt sem virtust öll púra víti.

Lið United var næstum alveg eins og spáð var hér á síðunni, utan að Scholes byrjaði. Í virðingarskyni við tvær lögreglukonur sem myrtar voru í Manchester í gær léku leikmenn með sorgarbönd Lesa meira

Efnisorð: Galatasaray Leikskýrslur 11
Meistaradeild Evrópu

Liðið gegn Galatasaray

Björn Friðgeir skrifaði þann 19. september, 2012 | 23 ummæli

Liðið er komið

De Gea

Rafael Vidic Evans Evra

Carrick Scholes

Valencia Kagawa Nani

Van Persie

Varamenn:Lindegaard, Ferdinand, Anderson, Cleverley, Fletcher, Hernandez, Welbeck.

Næstum eins og ég spáði. Scholes er inni og þá má búast við Cleverly inni á sunnudaginn. Ekki nema einn varnarmaður á bekknum, þessi leikur skal ekki verða varnarleikur. Fletcher þar eins og spáð var, en kemur örugglega ekki inná nema kannske undir lokin í öruggum sigri Lesa meira

Efnisorð: Galatasaray Liðsuppstilling 23
Meistaradeild Evrópu

Meistaradeildin snýr aftur! Galatasaray í heimsókn á morgun.

Björn Friðgeir skrifaði þann 18. september, 2012 | 6 ummæli

Loksins er runninn upp stundin sem við höfum beðið eftir frá því að skelfilegri riðlakeppni Meistaradeildarinnar lauk í fyrra. Þrátt fyrir að vera í þokkalega léttum riðli tókst okkur ekki að vinna nema tvo leiki og lentum í þriðja sæti eftir tap gegn Basel í síðasta leik. Skuldinni má að hluta skella á meiðsli en einnig er ljóst að Sir Alex tók allt of létt á keppninni og ætlaði að vinna þetta með vinstri, hvíldi leikmenn of mikið og því sem fór. Lesa meira

Efnisorð: Galatasaray Upphitun 6
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress