• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Hull City

Enska úrvalsdeildin

Hull City 0:1 Manchester United

Halldór Marteins skrifaði þann 27. ágúst, 2016 | 26 ummæli

Eftir að því er virtist endalausa bið var loksins komið að næsta leik. Manchester United í heimsókn hjá nýliðunum í Hull City. Fyrir leikinn voru bæði lið með 2 sigra í 2 leikjum svo það var ljóst að eitthvað varð undan að láta í baráttu þessara toppliða.

Byrjunarliðið gegn Hull var óbreytt frá leiknum gegn Southampton:

1
De Gea
23
Shaw
17
Blind
3
Bailly
25
Valencia
6
Pogba
27
Fellaini
11
Martial
10
Rooney (f)
8
Mata
9
Ibrahimović

Varamenn: Romero, Smalling, Herrera, Mkhitaryan, Schneiderlin, Young og Rashford Lesa meira

Efnisorð: Hull City Leikskýrslur 26
Enska úrvalsdeildin

Toppslagur helgarinnar: United heimsækir Hull

Tryggvi Páll skrifaði þann 26. ágúst, 2016 | 1 ummæli

Það er algjör toppslagur á morgun þegar okkar menn heimsækja spútniklið Hull City í síðdegisleik morgundagsins.

Við spáðum Hull lóðbeint niður en eins og frægt er orðið erum við líklega minnstu spámenn allra tíma. Auðvitað er Hull taplaust það sem af er tímabili í þriðja sæti með fullt hús stiga líkt og Manchester-liðin tvö.

Dregið var í riðla Evrópudeildarinnar í dag. Við fórum yfir andstæðingana. Lesa meira

Efnisorð: Hull City Upphitun 1
Enska úrvalsdeildin

Hull City 0:0 Manchester United

Björn Friðgeir skrifaði þann 24. maí, 2015 | 8 ummæli

Mikið óskaplega var þetta leiðinlegt.

Fyrir leikinn var komið á hreint að Falcao væri á leið frá félaginu. Hann var síðan ekki í hóp, sagt var að hann hefði meiðst á æfingu í gær. David de Gea var einnþá meiddur og Victor Valdes hóf því sinn fyrsta leik fyrir klúbbinn.

Rooney kom aftur inn eftir meiðsli og loksins fék Di María að byrja leik, í fyrsta sinn síðan í mars. Hann var settur á vinstri kantinn og Ashley Young tók vinstri miðjuna Lesa meira

Efnisorð: Hull City Leikskýrslur Marouane Fellaini 8
Enska úrvalsdeildin

Tímabilinu lýkur á morgun

Björn Friðgeir skrifaði þann 23. maí, 2015 | 4 ummæli

Það er erfitt að vera spenntur fyrir leiknum á morgun þegar United fer í heimsókn til Hull. Jú, þessi leikur skiptir reyndar öllu máli fyrr vin okkar Steve Bruce og hans menn í Hull, en það á enginn von á öðru en að Hull falli. Til að svo verði ekki þarf Hull að vinna og Newcastle að tapa. Og Louis van Gaal er ekkert að fara að tapa viljandi á morgun

Það yrði reyndar verulega magnað ef Newcastle félli, þeir hafa fengið 1 stig í síðustu 10 leikjum og ekki unnið leik frá í febrúar. Það voru hins vegar Leicester sem bjargaði sér snilldarlega, Hull hefur ekki verið jafn duglegt að hala inn stig og því kemur það í hlut United að fella þá á morgun. Lesa meira

Efnisorð: Hull City Upphitun 4
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 3:0 Hull City

Sigurjón skrifaði þann 29. nóvember, 2014 | 13 ummæli

Loksins kom þægilegur og stresslaus laugardagur fyrir framan sjónvarpið. Okkar menn voru á tánum í dag gegn Hull City, virtust afslappaðir á boltanum og fullir sjálfstrausts. Van Gaal plataði alla (sérstaklega Steve Bruce) með því að láta okkur halda að hann ætlaði að byrja leikinn með 3 manna vörn, en þegar leikurinn fór af stað kom í ljós að liðið leit svona út:

1
De Gea
18
Young
5
Marcos Rojo
12
Smalling
25
Valencia
8
Mata
16
Carrick
31
Fellaini
7
Di María
10
Rooney
20
Van Persie

Bekkurinn: Lindegaard, Blackett, McNair, Fletcher, Herrera, Januzaj, Falcao. Lesa meira

Efnisorð: Hull City Leikskýrslur 13
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Snjómaðurinn um Liðið í Manchester slagnum
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress