• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Hull City

Enska úrvalsdeildin

Hull(umhæ) á morgun (vonandi)!

Sigurjón skrifaði þann 28. nóvember, 2014 | 8 ummæli

Maður hefur svifið hátt síðustu 6 daga eftir frækinn sigur á Arsenal. Á morgun er þó kominn tími til að koma niður á jörðina, stilla miðið og afgreiða Hull sem kemur í heimsókn á Old Trafford. United hefur sigrað Hull í síðustu 6 leikjum sem liðin hafa spilað og skorað 3 mörk eða meira í síðustu 4 leikjum. Þetta ætti því að vera algjör skyldusigur en við þekkjum þó okkar menn, stundum vilja svona leikir vefjast fyrir þeim. United eru þó á góðu róli á Old Trafford, hafa ekki tapað þar síðan í fyrsta leik tímabilsins gegn Swansea á meðan Hull hafa tapað 3 leikjum í röð í deildinni. Vinni United á morgun verður það í fyrsta skipti í heilt ár sem liðið vinnur 3 leiki í röð (what?)! Lesa meira

Efnisorð: Hull City Upphitun 8
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 3:1 Hull City

Tryggvi Páll skrifaði þann 6. maí, 2014 | 15 ummæli

Sögulegur leikur á Old Trafford í kvöld. Fyrirliðinn okkar Nemanja Vidic kvaddi Old Trafford auk þess sem að besti leikmaður í sögu félagsins, Ryan Giggs, leikjahæsti og sigursælasti einstaklingur í sögu Manchester United spilaði líklega sinn síðasta leik á Old Trafford. Giggs kom nokkuð á óvart í liðsvalinu, hvíldi alla helstu leikmenn liðsins og gaf þeim félögum Tom Lawrence og James Wilson tækifæri í byrjunarliðinu. Þetta eru efnilegir leikmenn. Lawrence var á láni hjá Yeowil Town og Wilson hefur verið að rífa í sig unglingadeildirnar með unglingaliðum United. Liðið var svona: Lesa meira

Efnisorð: Hull City Leikskýrslur Nemanja Vidic Ryan Giggs 15
Enska úrvalsdeildin

Síðasti heimaleikurinn á tímabilinu

Tryggvi Páll skrifaði þann 5. maí, 2014 | 1 ummæli

Á morgun fer fram síðasti heimaleikurinn á Old Trafford í bili. Steve Bruce kemur með lærisveina sína í Hull í heimsókn. Það þurfti að færa þennan leik vegna þess að Hull hefur komið öllum að óvörum og sett saman ótrúlega atlögu að FA-bikarnum þar sem liðið er komið í úrslit.  Í deildinni hefur það lengst af siglt lygnan sjó um miðbil deildarinnar en hefur verið að sogast neðar og neðar að undanförnu, leikmennirnir eru kannski að láta drauminn um bikarinn trufla sig. Eftir úrslit helgarinnar er þó ljóst að liðið getur ekki fallið og því mun Hull spila í Úrvalsdeildinni að ári. Lesa meira

Efnisorð: Hull City Ryan Giggs Upphitun 1
Enska úrvalsdeildin

United heimsækir Hull City

ellioman skrifaði þann 25. desember, 2013 | Engin ummæli

Átjánda umferð ensku úrvalsdeildarinnar verður spiluð á morgun, öðrum degi jóla.

Fyrsti leikur umferðarinnar verður kl 12:45 þegar Steve Bruce og hans leikmenn í Hull City FC taka á móti United á KC Stadium.

Upphitunin

United er í áttunda sæti deildarinnar og átta stig skilja United og Liverpool sem situr í efsta sæti deildarinnar. Okkar menn eru á góðu róli þessa dagana eftir hræðilega byrjun í desember. Desember byrjaði með jafntefli gegn Tottenham og svo tapi gegn Everton og Newcastle (sem eru einmitt þau þrjú lið sem sitja í fimmta, sjötta og sjöunda sæti deildarinnar) en svo komu sigrar gegn Shakhtar, Aston Villa, Stoke og West Ham. Í þokkabót hefur liðið verið að spila betur og betur undir stjórn Moyes. Ég veit að það er alltaf hægt að koma með svona pælingar en… ímyndið ykkur að ef United hefði sigrað en ekki tapað leikjunum gegn Newcastle og Everton. Liðið væri í 4-5 sæti með Chelsea, einu stigi á eftir City og tveimur á eftir Liverpool og Arsenal. Það sýnir okkur hvað allt er í járnum ennþá og enn mjög góður möguleiki á að eiga mjög fínt tímabil undir stjórn Moyes. Lesa meira

Efnisorð: Hull City Upphitun 0
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Snjómaðurinn um Liðið í Manchester slagnum
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress