• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Leicester City

Enska úrvalsdeildin

Manchester United 4:1 Leicester City

Björn Friðgeir skrifaði þann 24. september, 2016 | 23 ummæli

Stóru fréttirnar fyrir leik voru auðvitað þær að eftir fjölmiðlafár undanfarinna daga fór Wayne Rooney á bekkinn. Það kom ekki óvart ef miðað er við frammistöðu hans undanfarið, það kom meira á óvart að Carrick fékk ekki séns eftir góðan leik á miðvikudaginn.

1
De Gea
5
Blind
3
Bailly
12
Smalling
25
Valencia
6
Pogba
21
Herrera
19
Rashford
8
Mata
14
Lingard
9
Ibrahimović

Varamenn voru: Romero, Rojo, Fosu-Mensah, Carrick, Fellaini, Young, Rooney.

Lið meistaranna leit svona út

Zieler
Fuchs
Huth
Morgan
Simpson
Albrighton
Amartey
Drinkwater
Mahrez
Slimani
Vardy

Daley Blind var sem sé fyrir valinu í vinstri bakverði til að hafa gætur á Riyad Mahrez og byrjaði leikinn á fyrstu mínútu með að hirða boltann af Mahrez. Hann átt síðan fyrsta skot leiksins á fjórðu mínútu en það var varnarmannsskot frekar en hitt og fór vel framhjá. Það kom meira á óvart þegar Zlatan skaut yfir nokkru síðar, en United sótti nokkuð stöðugt þessar fyrstu mínútur. Lesa meira

Efnisorð: Juan Mata Leicester City Leikskýrslur 23
Enska úrvalsdeildin

Englandsmeistarar Leicester á Old Trafford

Björn Friðgeir skrifaði þann 23. september, 2016 | 3 ummæli

Englandsmeistarar Leicester, já, Englandsmeistarar Leicester koma á Old Trafford í fyrramálið kl 11.30. Hvað er hægt að segja um þetta Öskubuskuævintýri litla liðsins í fyrra sem ekki hefur verið sagt? Ekkert. Fyrsta bókin kom út í vikunni, þær verða fleiri, og stuðningsmenn Leicester munu lifa á þessu ævilangt. United komst frá leikjum liðanna í fyrra með þolanlegri sæmd, 1-1 jafntefli varð í báðum leikjum. Fyrir rétt rúmum mánuði vann síðan United Samfélagsskjöldinn með 2-1 sigri á Leicester og hóf því tímabilið ágætlega. Síðan þá hefur Leicester gert jafntefli við Arsenal á King Power, unnið Swansea og Burnley þar líka en tapað eina útileiknum, gegn Liverpool. Þeir unnu ágætan útisigur á Club Brugge í fyrstu umferð Meistaradeildarinnar en í vikunni skellti Chelsea þeim illa í deildarbikarnum, 2-4, þrátt fyrir að Okazaki skoraði fyrstu tvö mörkin . Þeir eru því aðeins komnir niður á jörðina og það er verkefni United að halda þeim þar. Lesa meira

Efnisorð: Leicester City Upphitun 3
Samfélagsskjöldurinn

Zamfélagsskjöldurinn: Manchester United 2:1 Leicester City

Halldór Marteins skrifaði þann 7. ágúst, 2016 | 19 ummæli

 

Mourinho er búinn að vinna sinn fyrsta titil með Manchester United. Zlatan er búinn að skora sitt fyrsta mark fyrir Manchester United. Sigurmarkið í leiknum sem tryggir það að Manchester United eru meistarar meistaranna.

Liðið sem byrjaði leikinn fyrir United:

1
De Gea
23
Shaw
17
Blind
3
Bailly
25
Valencia
27
Fellaini
16
Carrick
11
Martial
10
Rooney
14
Lingard
9
Ibrahimovic

Varamenn: Romero, Rojo, Schneiderlin, Herrera, Mata, Mkhitaryan, Rashford

Byrjunarlið Leicester City:

1
Schmeichel
28
Fuchs
5
Morgan
6
Huth
17
Simpson
11
Albrighton
10
King
4
Drinkwater
26
Mahrez
9
Vardy
20
Okazaki

Það var mikið um dýrðir á Wembley í dag og ekki að undra, upphafspunkturinn á virkilega spennandi tímabili í enska boltanum sem nú er að hefjast. Titill í húfi og bæði lið búin að gefa það skýrt út að það yrði ekki litið á þetta sem neinn vináttuleik. Lesa meira

Efnisorð: Leicester City Leikskýrslur Wembley 19
Samfélagsskjöldurinn

Samfélagsskjöldurinn 2016: Leicester City gegn Manchester United

Halldór Marteins skrifaði þann 6. ágúst, 2016 | 8 ummæli

Það er komið að því að henda þessu tímabili í gang. Þrátt fyrir að Evrópumót karlalandsliða hafi svo sannarlega hjálpað til við að stytta biðina í sumar þá getur maður ekki sagt annað en: loksins! Samkvæmt hefðinni byrjar tímabilið á Samfélagsskildinum, leiknum þar sem skorið er úr um hvaða lið er meistari meistaranna. Deildarmeistarar Leicester City gegn bikarmeisturum Manchester United. Lesa meira

Efnisorð: Leicester City Upphitun Wembley 8
Enska úrvalsdeildin

United verður að vinna í Norwich

Magnús Þór skrifaði þann 6. maí, 2016 | 3 ummæli

Eftir jafnteflið gegn Leicester City var stuðningsfólk Manchester United orðið ansi svartsýnt á að liðið næði í Meistaradeildarsæti. Sá leikur eins og margir í vetur bauð upp á svarta og hvíta frammistöðu. Fínni frammistöðu í fyrri hálfleiknum var fylgt á eftir með frekar dapurri. Maroune „Elbows McGee“ Fellaini tókst að láta dæma sig í bann í kjölfarið á nokkrum ágætum frammistöðum í undanförnum leikjum. En eftir mikla hjálp frá Southampton sem gerði sér lítið fyrir og valtaði yfir Manchester City þá er þetta allt í einu orðinn möguleiki aftur. Með sigri gegn Norwich þá myndi United vera 4 stigum á eftir Arsenal og 1 stigi á eftir City en þau eiga innbyrðisleik á sunnudaginn. Manchester City er orðið mjög tæpt á sætinu og mega alls ekki við að tapa gegn Arsenal og varla gera jafntefli því þá mun Evrópadeildarsætið blasa við. United gæti verið komið í bísna góða stöðu eftir helgina svo framarlega að liðið skili sínu. Svo væri mjög sætt að hefna fyrir tapið gegn Norwich á Old Trafford. Lesa meira

Efnisorð: Arsenal David de Gea Leicester City Manchester City Marcus Rashford Marouane Fellaini Meistaradeild Norwich City Upphitun 3
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Page 5
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum
  • Helgi P um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress