• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Louis van Gaal

Gestapistill Leikmenn

Útaf með bakvörðinn!?

Halldór Marteins skrifaði þann 28. mars, 2016 | 3 ummæli

Góður vinur Rauðu djöflanna er hér mættur á ný, Halldór Marteinsson lagðist í rannsóknir á bakvarðaskiptingum Louis van Gaal og varð vel við bón okkar um að fá að birta þær hér.

Bakvarðaskiptingar Manchester United

Eftir því sem liðið hefur á tímabilið hefur mér fundist pirringur út í að því er virðist endalausar bakvarðaskiptingar van Gaal fara stigmagnandi. Ég hef fundið það hjá sjálfum mér auk þess sem ég hef séð sífellt fleiri kaldhæðnar vísanir í bakvarðaskiptingar á hinum ýmsu samfélagsmiðlum í umræðum um Manchester United. Þegar enski boltinn fór í páskafrí ákvað ég að skoða hvort þessi pirringur væri rökréttur eða hvort maður væri kannski að mikla þetta mál aðeins fyrir sér. Lesa meira

Efnisorð: Louis van Gaal 3
Æfingaleikir Slúður

Framtíð Louis van Gaal + United fer til Kína

Tryggvi Páll skrifaði þann 23. mars, 2016 | 5 ummæli

Við höfum ansi athyglisverða sögu að segja ykkur, lesendur góðir. Þannig vill til að maður sem einn okkar þekkir ágætlega sat ráðstefnu í Basel um helgina og þar sat við hliðina á honum maður einn hollenskur. Byrjuðu þeir að tala saman og fljótlega barst talið að Manchester United. Sagðist þá sessunautur okkar manns vera góðvinur Louis van Gaal til 40 ára.

Ræddu þeir um stöðu mála hjá United og Hollendingurinn sagði að Louis van Gaal hafi sagt sér eftirfarandi: Lesa meira

Efnisorð: Louis van Gaal Tahith Chong Tour 2016 5
Enska úrvalsdeildin Pistlar Ritstjóraálit Stjórinn

Við þurfum að tala um Louis van Gaal

Tryggvi Páll skrifaði þann 18. mars, 2016 | 26 ummæli

Ég var ekkert sérlega æstur í að skrifa þessa upphitun eftir að liðið hrapaði úr Evrópudeildinni í gær. Það má því ímynda sér hvernig stemmarinn er á æfingasvæðinu fyrir næsta leik.

Já, það er skammt stórra högga á milli. Á sunnudaginn skreppur United í hinn enda borgarinnar til þess að mæta City í Manchester-borgarslagnum.

Þessi lið eru í harðri baráttu um fjórða og síðasta Meistaradeildarsætið í deildinni og leikurinn á sunnudag gæti veitt öðru hvoru liðinu gott spark í áttina að Wenger-bikarnum fræga. Spurning hvort að það mætti ekki fara að kalla þetta LvG-bikarinn enda virðist fjórða sætið vera hans helsta markmið. Lesa meira

Efnisorð: Louis van Gaal Manchester City Upphitun 26
Stjórinn

Louis van Gaal gekk út af blaðamannafundi

Runólfur Trausti skrifaði þann 23. desember, 2015 | 9 ummæli

Louis Van Gaal labbaði út af blaðamanna fundi fyrir leikinn gegn Stoke City annan í jólum eftir rétt rúmar 5 mínútur rétt í þessu. Svaraði hann tveimur spurningum áður en hann óskaði blaðamönnum gleðilegra jóla og labbaði út. Myndband af herlegheitunum má sjá neðst í færslunni.

Guardian skrifaði upp orðaskiptin sem áttu sér stað á fundinum og við tökum okkur það bessaleyfi að birta það hér: Lesa meira

Efnisorð: Louis van Gaal 9
Pistlar Stjórinn

Verður Van Gaal rekinn á næstu dögum?

Tryggvi Páll skrifaði þann 21. desember, 2015 | 12 ummæli

Stutta svarið er já, það stefnir allt í það.

Í gærkvöldi fóru stórir miðlar í Bretlandi út með sömu fréttina á sama tíma. Í henni sagði að  Louis van Gaal hefði tvo leiki til þess að bjarga sér, tap gegn Stoke í næsta leik eða gegn Chelsea þar á eftir og dagar Louis van Gaal í stjórasæti Manchester United eru taldir.

Frétt Guardian: Van Gaal may have two games to save Manchester United job as Mourinho waits Lesa meira

Efnisorð: Jose Mourinho Louis van Gaal Pep Guardiola 12
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Page 5
  • Interim pages omitted …
  • Page 9
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum
  • Helgi P um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress