• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Louis van Gaal

Fjármál Lesefni Opin umræða Pistlar Stjórinn

Fréttir og vangaveltur í vikubyrjun

Tryggvi Páll skrifaði þann 28. apríl, 2014 | 9 ummæli

Loksins jákvæð knattspyrnuhelgi fyrir okkur United-stuðningsmenn. Það var alveg frábært að að sjá Ryan Giggs stýra liðinu til sigurs í leiknum gegn Norwich og í kjölfarið hefur maður séð álitsgjafa tala og skrifa um að hann ætti að taka við liðinu til frambúðar. Eins og það væri nú alveg gjörsamlega fullkomið að hafa sigursælasta, leikjahæsta og besta leikmann í sögu félagsins stýra skipinu þá er auðvitað það of snemmt. Við vitum ekkert um hann sem stjóra og það verður erfitt að dæma hann af þessum þremur leikjum sem eftir eru, þeir skipta jú auðvitað engu máli og pressan er engin.
Lesa meira

Efnisorð: Jurgen Klopp Louis van Gaal Ryan Giggs 9
Stjórinn

Er Louis van Gaal búinn að semja?

Björn Friðgeir skrifaði þann 26. apríl, 2014 | Engin ummæli

Frétt De Telegraaf í Hollandi í morgun er einföld: Louis van Gaal er búinn að samþykkja að verða næsti stjóri Manchester United. hann mun taka með sér þjálfarateymið frá hollenska landsliðinu og Patrick Kluivert verður aðstoðarþjálfari. Við vonum svo að staðfesta Van Gaal í að halda alltaf í a.m.k. einn þjálfara frá fyrra teymi þýði að Ryan Giggs verði áfram hjá United Lesa meira

Efnisorð: Louis van Gaal 0
Lesefni Slúður Stjórinn

Stjóralausir djöflar lesa

Tryggvi Páll skrifaði þann 24. apríl, 2014 | 7 ummæli

Nú streyma inn á alnetið greinar um hitt og þetta tengt stjóraleitinni hjá United. Við tókum saman þær helstu:

Traustvekjandi fréttir frá Manchester Evening News. Þó að þjálfarar eins og Klopp og Guardiola hafi sagt að þeir ætli að vera áfram hjá sínum félögum ætli stjórn United ekki að gefast upp á þeim þrátt fyrir það. Jafnframt mun Sir Alex Ferguson taka virkan þátt í því að finna næsta stjóra Manchester United ásamt því að Glazerarnir virðast vera að fara að mæta á svæðið til þess að taka þátt í stjóraleitinni. Er ekki hægt að gera einhvern raunveruleikaþátt úr þessu? Lesa meira

Efnisorð: Diego Simeone Jurgen Klopp Louis van Gaal Luke Shaw Ryan Giggs 7
Pistlar Ritstjóraálit Slúður Stjórinn

Hver tekur við af David Moyes?

Ritstjórn skrifaði þann 22. apríl, 2014 | 2 ummæli

Allir helstu miðlar Bretlandseyja hafa birt einhverjar vangaveltur um hver verði næsti knattspyrnustjóri Manchester United. Í gærkvöldi greindu bæði The Guardian og The Telegraph frá því að þrír stjórar væru á listanum: Carlo Ancelotti, Louis van Gaal og Diego Simeone, því miður virðist Jürgen Klopp vera staðráðinn í því að halda áfram með Dortmund, í bili. Þá var jafnframt greint frá því að Sirarnir Alex Ferguson og Bobby Charlton myndu fá að koma að ráðningu nýs stjóra en lokaákvörðunin yrðu alfarið í höndum Ed Woodward, Yfiraðstoðarvaraformanns stjórnar United. Þeir blaðamenn sem birta þessar greinar, Daniel Taylor og Mark Ogden eru einna áreiðanlegastir þegar kemur að United og ljóst að þeir fá þessar upplýsingar beint frá einhverjum aðilum innan klúbbsins. Lesa meira

Efnisorð: Carlo Ancelotti Diego Simeone Jurgen Klopp Louis van Gaal Ryan Giggs 2
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 7
  • Page 8
  • Page 9

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum
  • Helgi P um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress