• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Luke Shaw

Félagaskipti Leikmenn Staðfest

Luke Shaw er leikmaður Manchester United *staðfest*

Ritstjórn skrifaði þann 27. júní, 2014 | 3 ummæli

Eftir spennandi tvo daga með Ander Herrera eru önnur kaupin á jafnmörgum dögum gengin í gegn. Vinstri bakvörðurinn Luke Shaw hefur skrifað undir 4 ára samning við Manchester United.

Fréttirnar voru löngu leknar út, Shaw búinn að breyta Twitter upplýsingum um sig í „Leikmaður Manchester United“ áður en hann breytti til baka, en loksins kom staðfestingin frá United:

.@LukeShaw3 joins @AnderHerrera8 as an #mufc player. Welcome to the club! Full story: http://t.co/xCBqiqNPmI pic.twitter.com/NR4acNQuNS Lesa meira

Efnisorð: Luke Shaw 3
Félagaskipti Leikmenn

Luke Shaw verður kynntur sem leikmaður Manchester United í dag

Björn Friðgeir skrifaði þann 27. júní, 2014 | 1 ummæli

Samkvæmt Guardian er Luke Shaw búinn að standast læknisskoðunina, búið er að semja við Southampton um kaupverð upp á 27 m. punda auk viðbótargreiðslna (leikir og titlar fyrir United, leikir fyrir England væntanlega).

Þannig að það þarf mikið að gerast til þess að við sjáum ekki nýjan leikmann hjá United annan daginn í röð.

Við *staðfest*um þetta um leið og hægt er! Lesa meira

Efnisorð: Luke Shaw 1
Slúður

Herrera og Shaw í morgunslúðrinu.

Björn Friðgeir skrifaði þann 24. júní, 2014 | 7 ummæli

Munið þið eftir Ander Herrera? Ég var næstum búinn að gleyma honum, enda gerði hann lítið hjá Athletic Bilbao í vetur til að minna á sig. Hann var þó fastamaður í liðinu.. En núna fullyrðir spænska blaðið Marca að hann sé búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við United. Þetta verði tilkynnt opinberlega í dag. United á að hafa greitt upp klásúluna góðu upp á 36m. Upphaflega á þetta sér rætur í frétt Cadena Ser útvarpsstöðvarinnar. Lesa meira

Efnisorð: Ander Herrera Luke Shaw 7
Lesefni Slúður Stjórinn

Stjóralausir djöflar lesa

Tryggvi Páll skrifaði þann 24. apríl, 2014 | 7 ummæli

Nú streyma inn á alnetið greinar um hitt og þetta tengt stjóraleitinni hjá United. Við tókum saman þær helstu:

Traustvekjandi fréttir frá Manchester Evening News. Þó að þjálfarar eins og Klopp og Guardiola hafi sagt að þeir ætli að vera áfram hjá sínum félögum ætli stjórn United ekki að gefast upp á þeim þrátt fyrir það. Jafnframt mun Sir Alex Ferguson taka virkan þátt í því að finna næsta stjóra Manchester United ásamt því að Glazerarnir virðast vera að fara að mæta á svæðið til þess að taka þátt í stjóraleitinni. Er ekki hægt að gera einhvern raunveruleikaþátt úr þessu? Lesa meira

Efnisorð: Diego Simeone Jurgen Klopp Louis van Gaal Luke Shaw Ryan Giggs 7
Slúður

Morgunslúður

Björn Friðgeir skrifaði þann 25. janúar, 2014 | 6 ummæli

Ef það er ekki nóg að búið sé að tilkynna að kaupa eigi Juan Mata þá er hér fínn morgunslúðurpakki:

Wayne Rooney er við það að skrifa undir nýjan samning sem færir honum lítil 300.000 pund á viku í tekjur. Þannig að enn einu sinni virðist ætla að taka að sefa hans órólegu sál með peningum, bæði til hans og með að sýna að okkur sé alvara í leikmannakaupum.

Skv. Mirror og Mail hefur United gert 22,5m. punda tilboð í undrabarnið Luke Shaw hjá Southampton. Shaw er 18 ára vinstri bakvörður og búinn að standa sig gríðarvel í vetur. Eina vandamálið við þetta er að Chelsea er líka á höttunum eftir honum til að koma í stað Ashley Cole, og Shaw ku gallharður Chelsea aðdáandi. En það má reyna. Lesa meira

Efnisorð: Luke Shaw Mario Mandžukić Toni Kroos Wayne Rooney 6
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 5
  • Page 6
  • Page 7

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress