• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Nemanja Matic

Enska úrvalsdeildin

Leicester City mætir á Old Trafford

Magnús Þór skrifaði þann 25. ágúst, 2017 | Engin ummæli

Eftir stóra sigra heima og að heiman er röðin komin að næsta verkefni þegar Leicester City kemur í heimsókn. Bæði lið hafa verið að skora mörk en United ívið fleiri og hefur einnig haldið hreinu í sínum leikjum. Leicester spilaði opnunarleik tímabilsins gegn Arsenal sem var fínasta skemmtun með slatta af mörkum og dramatík fyrir allan peninginn. Á endanum fór Arsenal með sigur af hólmi en Leicester átti meira skilið en ekkert úr þeim leik. Í næstu umferð tók Leicester á móti nýliðum Brighton & Hove Albion og sigraði liðið þann leik með tveimur mörkum gegn engu. Á þriðjudaginn mætti Leicester svo Sheffield United á Bramall Lane og sigraði heimaliðið með fjórum mörkum gegn einu. Um var að ræða aðra umferð EFL bikarsins sem er núna kallaður Carabao bikarinn. Lesa meira

Efnisorð: Eric Bailly Henrikh Mkhitaryan Nemanja Matic Paul Pogba Phil Jones Romelu Lukaku Upphitun Zlatan Ibrahimovic 0
Djöflavarpið

Djöflavarpið 42. þáttur – Zlatan snýr aftur

Magnús Þór skrifaði þann 20. ágúst, 2017 | 1 ummæli

Maggi, Björn og Halldór settust niður og ræddu stórsigrana gegn West Ham og Swansea. Einnig var komið inná endurkomu Zlatan Ibrahimovic sem gæti jafnvel gerst í þessari viku. Svo svöruðu þeir spurningunni hvort einhver leikmaður muni bætast í hópinn í þessum glugga.

Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér fyrir ofan auk þess sem hægt er að hala honum niður í gegnum spilarann eða hér að neðan. Jafnframt má gerast áskrifandi að þættinum í gegnum ýmis podkast-forrit: Lesa meira

Efnisorð: Andreas Pereira Anthony Martial Daley Blind Henrikh Mkhitaryan Ivan Perisic Marcus Rashford Marouane Fellaini Nemanja Matic Paul Pogba Phil Jones Romelu Lukaku Slúður 1
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 4:0 West Ham United

Halldór Marteins skrifaði þann 13. ágúst, 2017 | 11 ummæli

 

Enska úrvalsdeildin hófst með látum þessa helgina. Við vorum búin að sjá flotta leiki, mikið af mörkum, óvænt úrslit og mikla baráttu þegar kom að okkar mönnum í lokaleik umferðarinnar. Sá leikur olli okkur nákvæmlega engum vonbrigðum.

West Ham United var eitt af liðunum sem mætti á Old Trafford í fyrra og tók jafntefli með sér eftir leik þar sem United skapaði sér færi en náði ekki að nýta þau. Lesa meira

Efnisorð: Anthony Martial Marcus Rashford Nemanja Matic Paul Pogba Romelu Lukaku West Ham United 11
Djöflavarpið

Djöflavarpið 41. þáttur – Sumarkaupin rædd og hitað upp fyrir Real Madrid

Magnús Þór skrifaði þann 2. ágúst, 2017 | Engin ummæli

Maggi, Björn, Halldór, og Tryggvi settust niður og ræddu kaup sumarsins. Einnig var hitað upp fyrir leikinn gegn Real Madrid og rætt um hvaða leikmenn gætu komið áður en glugginn lokar.

Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér fyrir ofan auk þess sem hægt er að hala honum niður í gegnum spilarann eða hér að neðan. Jafnframt má gerast áskrifandi að þættinum í gegnum ýmis podkast-forrit: Lesa meira

Efnisorð: Fabinho Ivan Perisic Nemanja Matic Real Madrid Romelu Lukaku Victor Lindelöf 0
Æfingaleikir

Manchester United 2:1 Sampdoria

Björn Friðgeir skrifaði þann 2. ágúst, 2017 | 1 ummæli

Liðið í þessum sjöunda og síðasta upphitunarleik United var eilítið óvenjulegt

1
De Gea
2
Lindelöf
12
Smalling
17
Blind
36
Darmian
15
Pereira
31
Matić
6
Pogba
25
Valencia
22
Mkhitaryan
9
Lukaku

Byrjaði frekar rólega en á 7. mínútu kom Blind með sendingu aftur sem var alltof langt frá De Gea sem þurfti að dýfa sér í hornið fjær  og slá boltann frá marklínunni. Dómarinn sá einhverja furðulega ástæðu til að dæma óbeina aukaspyrnu utan markteigs. Glórulaus dómur. Eins og oftast fór samt skotið í vegginn, United sótti upp, Valencia lék up kantinn, Mkhitaryan gaf af hægri kanti yfir á vinstri, þar var Darmian í teignum, hann gaf fyrir og Mkhitaryan þá mættur aftur og var á undan varnarmanni á fjær stöng og stangaði boltann í netið. Fín sókn. Darmian hafði reyndar átt aðra fyrirgjöf á fyrstu mínútunum sem gerði ekki eins mikið en gott að sjá hann ákveðinn framávið. Lesa meira

Efnisorð: Anthony Martial Juan Mata Nemanja Matic Sampdoria 1
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Snjómaðurinn um Liðið í Manchester slagnum
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress