• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Nemanja Matic

Staðfest

Nemanja Matić er leikmaður Manchester United *staðfest*

Björn Friðgeir skrifaði þann 31. júlí, 2017 | 4 ummæli

Nemanja Matić hefur verið staðfestur sem leikmaður Manchester United

https://twitter.com/ManUtd/status/892037452076134400

Orðrómur um að José Mourinho hefði áhuga á að fá sinn gamla leikmann til liðs við sig er gamall og jókst í vor. Þessi kaup hafa því verið lengi á döfinni en hafa tafist vegna þess annars vegar að Chelsea þurfti að kaupa Tiemoue Bakayoko frá Monaco og United var heldur ekki tilbúið að greiða þær 50 milljónir punda sem Chelsea vildi. Nú er þetta hvort tveggja klárt, talað er um að verðið sé 35 milljónir punda auk 5 milljóna aukagreiðslna. Lesa meira

Efnisorð: Nemanja Matic 4
Félagaskipti

Nemanja Matić verður kynntur sem leikmaður United innan skamms

Björn Friðgeir skrifaði þann 30. júlí, 2017 | 4 ummæli

Annað lífseigasta slúður ársins er að detta í *staðfest*, kannske í dag, líklega á morgun

Traustustu blaðamennirnir eru með þetta á hreinu, hér er Luckhurst og sömuleiðis Ducker hjá Telegraph.

https://twitter.com/TelegraphDucker/status/891666175658164224

https://twitter.com/samuelluckhurst/status/891665971773091840

Samið í gær, læknisskoðun í morgun og líklega kynnt á morgun. myndin að neðan er ófölsuð skv greiningartóli Lesa meira

Efnisorð: Nemanja Matic 4
Djöflavarpið

Djöflavarpið 40. þáttur – Lukaku að verða leikmaður Manchester United?

Magnús Þór skrifaði þann 7. júlí, 2017 | 3 ummæli

Maggi, Halldór, og Tryggvi settust niður og ræddu kaupin á Romelo Lukaku og brottför Wayne Rooney til Everton. Einnig var rætt um Nemanja Matic og Ivan Perisic og hvaða kaup muni eiginlega fylgja í kjölfarið.

Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér fyrir ofan auk þess sem hægt er að hala honum niður í gegnum spilarann eða hér að neðan. Jafnframt má gerast áskrifandi að þættinum í gegnum ýmis podkast-forrit: Lesa meira

Efnisorð: Alvaro Morata Fabinho Ivan Perisic Julian Weigl Nemanja Matic Romelu Lukaku Wayne Rooney 3
Slúður

Breidd eða gæði. Hvort skal velja?

Björn Friðgeir skrifaði þann 1. júlí, 2017 | 15 ummæli

Nú þegar fyrsti júlí rennur upp er leikmannaglugginn opinberlega opinn og United er búið að kaupa einn leikmann af þeim fjórum sem búist er við að liðið kaupi. Leikmenn mæta aftur til æfinga á laugardaginn næsta, 8. júlí og fljúga til Bandaríkjanna daginn eftir. Eitt af því sem gengið hefur verið frá sem vísu er að José Mourinho hafi lagt fyrir Ed Woodward að ganga frá kaupum fyrir þann tíma til að nýir leikmenn yrðu með frá upphafi undirbúnings. Lesa meira

Efnisorð: Alvaro Morata Ivan Perisic Nemanja Matic Skýringarmyndir Taktík Victor Lindelöf 15
Slúður

Langt sumar framundan?

Runólfur Trausti skrifaði þann 28. júní, 2017 | 12 ummæli

Eftir síðasta sumar bjóst maður við því að United yrði búið að kaupa alla þá leikmenn sem liðið þyrfti fyrir 1. júlí. Sérstaklega í ljósi þess að José Mourinho sagði að Ed Woodward hefði haft óskalistann sinn í um það bil tvo mánuði þegar tímabilinu lauk. Það virðist þó sem sumarið 2017 ætli að verða töluvert flóknara en sumarið 2016.

Ástæðurnar eru margar og eflaust er Ed Woodward búinn að vera í yfirvinnu við að reyna koma þeim leikmönnum sem Mourinho vill til félagsins. Samkvæmt ESPN þá virðist sem Mourinho og Woodward hafi verið undirbúnir undir erfitt sumar. Auknar tekjur enskra liða í gegnum nýjan sjónvarpssamning gerir það að verkum að verðbólgan á leikmönnum innan Englands er enn meiri en undanfarin ár og lið utan Englands selja ekki leikmenn þangað nema fyrir hæsta mögulega verð. Lesa meira

Efnisorð: Alvaro Morata Blaise Matuidi Ivan Perisic Nemanja Matic Radja Nainggolan Slúður 12
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress