• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Norwich City

Enska úrvalsdeildin

Manchester United 4 : 0 Norwich City

Magnús Þór skrifaði þann 26. apríl, 2014 | 14 ummæli

Þessum leik var beðið með mikilli eftirvæntingu vægast sagt. Það er líklega enginn Manchester United maður jafn dáður og Ryan Giggs. Maðurinn er goðsögn og er lifandi dæmi um allt það sem Manchester United stendur fyrir. Á blaðamannafundinum í gær talaði hann mikið um að láta liðið leika meira eins og United á að gera. Hann var líka ekki lengi að sækja Paul Scholes í þjálfarateymið og það gladdi alla stuðningsmenn. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur Norwich City Ryan Giggs 14
Enska úrvalsdeildin

United tekur á móti Norwich í fyrsta leik Giggs sem stjóri

Magnús Þór skrifaði þann 25. apríl, 2014 | 9 ummæli

Í sínum fyrsta blaðamannafundi sem knattspyrnustjóri Manchester United byrjaði Ryan Giggs á því að þakka David Moyes fyrir að hafa gefið sér sitt fyrsta tækifæri í þjálfun og og minntist á hvað hann væri stoltur að stýra Manchester United í þeim leikjum sem eftir eru. Hann talaði einnig um það að snúa aftur til United-hugmyndafræðinnar þar sem leikið er af ástríðu og hugrekki og þar sem leikmenn njóta sín á vellinum. Honum er mikið í mun að gefa aðdáendum eitthvað til að brosa yfir í þessum 4 leikjum sem eftir eru. Giggs segir að hjá sér sé sama tilhlökkun og sem leikmaður til næsta leiks og leikmenn hafi staðið sig vel á æfingum og séu einnig spenntir fyrir leiknum á morgun. Lesa meira

Efnisorð: Norwich City Ryan Giggs Upphitun 9
Enska úrvalsdeildin

Norwich City 0:1 Manchester United

Björn Friðgeir skrifaði þann 28. desember, 2013 | 19 ummæli

Klukkutíma fyrir leik kom í ljós að Wayne Rooney hafði orðið eftir heima í Manchester til að hvíla sig aðeins og ná sér af smá nárameiðslum. Liðið leit því svona út.

De Gea

Smalling Vidic Evans Evra

Carrick Cleverley

Young Giggs Kagawa

Hernandez

Varamenn: Lindegaard, Anderson, Welbeck, Fabio, Fletcher, Zaha, Januzaj.

United byrjuð leikinn vel og voru mikið meira með boltann. Spilamennskan var góð og Kagawa og Giggs voru að skipta nokkuð oft um stöður. Þeir sköpuðu þó engin afgerandi færi heldur var það Norwich sem átti fyrsta slíkt eftir kortérs leik. Komust þá upp hægra megin og inn í teig. De Gea varði vel , boltinn fór út í teiginn en Norwich maðurinn þar náði ekki að leggja boltann fyrirsig þannig að ekkert meira varð úr því. Norwich pressaði vel í hvert skipti sem þeir voru með boltann og voru komnir með fjögur horn í leiknum þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur Norwich City 19
Enska úrvalsdeildin

Norwich heimsótt á morgun

Björn Friðgeir skrifaði þann 27. desember, 2013 | 2 ummæli

Það verður seint sagt að enskir knattspyrnumenni hafi það náðugt um jólin. Eftir fyrsta alvöru „kommbakk“ liðsins undir stjórn David Moyes í gær eru okkar menn varla komnir heim þegar þeir þurfa að fara aftur af stað og eru að fara í loftið til að fljúga til Norwich þegar þetta er skrifað. Það gengur vonandi betur en í gær þegar þeir komu á völlinn rétt klukkutíma fyrir leik. Eitthvað er samt Carrick stressaður: Lesa meira

Efnisorð: Norwich City Upphitun 2
Enska deildarbikarkeppnin

Manchester United 4:0 Norwich City

ellioman skrifaði þann 29. október, 2013 | 15 ummæli

United tók á móti Norwich City í fjórðu umferð Capital One bikarkeppninni. Fyrir leikinn töluðu flestir stuðningsmenn um áhuga sinn að fá að sjá Januzaj og Zaha í liði United. Moyes ákvað að vera góður gæji og uppfyllti óskir þeirra.

Byrjunarlið United var skipað svona

Lindegaard

Rafael Ferdinand Vidic Büttner

Zaha Jones Cleverley Young

Januzaj

Chicharito

og á bekknum voru þeir Amos, Anderson, Rooney, Giggs, Smalling, Fabio og Valencia. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur Norwich City 15
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • sófinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Helgi P um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Elis um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress