• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Norwich City

Enska deildarbikarkeppnin

Norwich í deildarbikarnum.

Tryggvi Páll skrifaði þann 28. október, 2013 | 9 ummæli

Á morgun kemur Norwich í heimsókn á Old Trafford í 4.umferð deildarbikarsins eða Capital One Cup eins og hann heitir víst fullu nafni. Við slógum auðvitað Liverpool út í þessari keppni og Norwich hefur sigrast á Bury og Watford til þess að komast í þessa umferð. Rétt er að vekja athygli á því að nú er kominn vetrartími á Englandi og er klukkan nú það sama þar og hér á klakanum. Leikurinn er því klukkan 19.45. Lesa meira

Efnisorð: Norwich City Upphitun 9
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 4:0 Norwich

ellioman skrifaði þann 2. mars, 2013 | 16 ummæli

Þrjú stig komin í hús og alls ekki leiðinlegt að krækja í þau með glæsisigri. United sigrar Norwich með fjórum mörkum gegn engu. Kagawa með þrennu og Rooney með bombu á 90. mínútu.

Þar sem þetta er nú aðeins leikskýrsla númer tvö hjá mér, þá ætla ég að taka það aftur fram að í mínum leikskýrslum nenni ég ekki að fara yfir hvert einasta atriði sem gerðist í leiknum. Ég tek frekar saman það helsta sem mér þótti eftirtektarvert, sem við getum svo rætt áfram í athugasemdunum fyrir neðan. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur Norwich City 16
Enska úrvalsdeildin

Liðið gegn Norwich

ellioman skrifaði þann 2. mars, 2013 | 9 ummæli

Byrjunarliðin voru að detta í hús. Svona líta þau út í dag:

Manchester United

De Gea

Smalling Evans Vidic Evra

Valencia Anderson Carrick Kagawa

Rooney Van Persie

Varamenn:
Lindegaard, Rafael, Cleverley, Nani, Young, Welbeck, Chicharito

Norwich*

Bunn

R.Martin Turner Bassong Garrido

Snodgrass Howson Johnson Pilkington Hoolahan

Holt

* Neita að bera einhverja ábyrgð á því hvort leikmenn Norwich séu í réttum stöðum :) Lesa meira

Efnisorð: Liðsuppstilling Norwich City 9
Enska úrvalsdeildin

Norwich á Old Trafford

ellioman skrifaði þann 1. mars, 2013 | 6 ummæli

Þá er komið að því gott fólk! Leikurinn sem allir eru búnir að bíða eftir! Manchester United gegn Rea…

Nei…

Öhmm…

Bíðið aðeins…

…Ahh. Afsakið. Sá leikur er víst næsta þriðjudag. Á morgun koma hinsvegar drengirnir frá Norwich í heimsókn á Old Trafford.

Sigur hér væru frábær úrslit fyrir United. Með sigri getur United aftur náð fimmtán stiga forskoti á City og tíu leikir eftir af tímabilinu. Hinsvegar verður helsti höfuðverkur Ferguson að ákveða hvaða leikmenn verða hvíldir fyrir leikinn gegn Real Madrid og hverjir munu spila. Ég get ómögulega neitað því að ég verð alltaf þónokkuð smeykur fyrir svona leiki því það er svo auðvelt fyrir leikmenn að gleyma sér, halda að þetta séu gefin þrjú stig og enda með því að hleypa City 3 stigum nær og gera deildina aftur spennandi. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur Norwich City 6
Enska úrvalsdeildin

Norwich 1:0 Manchester United

Tryggvi Páll skrifaði þann 17. nóvember, 2012 | 18 ummæli

Þetta var hrikalegt. Ég nenni ekki að eyða einni sekúndu í að skrifa um þennan leik. Í staðinn geta menn velt eftirfarandi fyrir sér:

  • Afhverju, ó afhverju, þarf liðið alltaf að lenda undir til þess að byrja leikinn?
  • Afhverju spilaði liðið þennan leik á gönguhraða?
  • Hvar eru vængmennirnir okkar? Hvað varð um Antonio Valencia?
  • Eru þetta endalok Ryan Giggs?
  • Lesa meira

    Efnisorð: Leikskýrslur Norwich City 18
    • « Go to Previous Page
    • Page 1
    • Page 2
    • Page 3
    • Page 4
    • Go to Next Page »

    Primary Sidebar

    Síðustu ummæli

    • Arni um Liðið í Manchester slagnum
    • Helgi P um Liðið í Manchester slagnum
    • Gummi um Liðið í Manchester slagnum
    • Halldór Marteins um Liðið í Manchester slagnum
    • sófinn um Liðið í Manchester slagnum

    Tístvélin

    Tweets by @raududjoflarnir

    Facebook

    Rauðu djöflarnir

    Footer

    Rauðu djöflarnir

    • Um okkur
    • Reglur

    Fantasy deildin

    Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

    Kóði: 1997321-460021

    Leit

    • Um okkur
    • Reglur

    Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress