• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Reading

Enska bikarkeppnin

Bikarvörnin hefst á morgun *Uppfært*

Runólfur Trausti skrifaði þann 6. janúar, 2017 | 2 ummæli

Klukkan 12:30 á morgun hefur Manchester United leik í hinum fornfræga FA bikar. Liðið hefur titil að verja en liðið vann  Crystal Palace eftirminnilega 2-1 í framlengdum úrslitaleik á síðasta tímabili. Var það síðasti leikur Louis Van Gaal sem knattspyrnustjóri Manchester United.

Sigurmarkið var ekki af verri endanum en Jesse Lingard endaði síðasta tímabil, og byrjaði núverandi tímabil, með tveimur rosalegum mörkum. Lesa meira

Efnisorð: FA Bikarinn Jaap Stam Old Trafford Reading Upphitun 2
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 1:0 Reading

ellioman skrifaði þann 16. mars, 2013 | 8 ummæli

Frá-há-há-bær dagur í dag! United sigrar Reading með einu marki gegn engu. Rooney með sigurmarkið á 21. mínútu og Rio Ferdinand (af öllum mönnum) með stoðsendinguna.

Þessi leikskýrsla í dag verður í styttri kantinum af tveimur ástæðum.
1. Ég var búinn að lofa konunni eitt kvöld án þess að glápa á tölvuskjá. 2. Þetta var svo svakalega dapur leikur í dag að það er bara ekki mikið til að skrifa um. Þessari skýrslu verður því skipt í tvennt. Fyrri hlutinn verður á neikvæðu nótunum þar sem ég tek fyrir það slæma en svo kem ég ykkur í góða skapið með því að benda ykkur á það jákvæða eftir leik dagsins. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur Reading 8
Enska úrvalsdeildin

Byrjunarliðið gegn Reading

Björn Friðgeir skrifaði þann 16. mars, 2013 | 7 ummæli

Tækifæri til að ná 15 (fimmtán) stiga forystu, og mennirnir sem axla þá ábyrgð eru:

De Gea

Smalling Ferdinand Vidic Büttner

Welbeck Giggs Anderson Young

Rooney

Van Persie

Varamenn:  Lindegaard, Evans, Valencia, Hernandez, Carrick, Powell, Kagawa

Jahá. Evra, Rafael og Cleverley hvíla og Carrick  er á bekknum.

En þetta er allt í lagi, Rooney og Robin klára þetta! Og Nick Powell! Lesa meira

Efnisorð: Liðsuppstilling Reading 7
Enska úrvalsdeildin

Reading á Old Trafford

ellioman skrifaði þann 15. mars, 2013 | 8 ummæli

Við erum komin vel á veg með seinni hluta tímabilsins. Það eru tíu deildarleikir eftir, þrjátíu stig í boði og stjóralausa liðið Reading að koma í heimsókn á Old Trafford. Þetta verður síðasti leikurinn fyrir landsleikjafrí og spilar United ekki næst fyrr en þrítugasta mars, gegn Sunderland á útivelli.

Reading rak stjórann sinn, Brian McDermott, á dögunum og leitar að eftirmanni hans sem þýðir að Eamonn Dolan mun sjá um stjórn liðsins á morgun. Reading deilir neðsta sæti deildarinnar með QPR, bæði lið með tuttugu og þrjú stig og markahlutfallið -21. Reading hafa nú tapað 5 leikjum í röð í öllum keppnum (deildin + FA bikarinn) en síðustu 6 deildarleikir Reading hafa endað með einu jafntefli, einum sigri og svo fjóra tapleiki í röð. Svo til að bæta gráu ofan á svart fyrir Reading, þá hafa síðustu sex útileikir liðsins endað með 5 töpum og einum sigri. En þrátt fyrir slæma frammistöðu í síðustu fimm leikjum þá var Reading búið að vinna 6 af síðustu átta leikjum í öllum keppnum fyrir það. Varla þarf ég að minna ykkur á leik liðanna á Madejski Stadium 1. desember, sem endaði 4-3 fyrir United þar sem öll mörkin voru skoruð á fyrstu 35 mínútunum? Reading eru semsagt sýnd veiði en alls ekki gefin! Lesa meira

Efnisorð: Reading Upphitun 8
Enska bikarkeppnin

Manchester United 2:1 Reading

Björn Friðgeir skrifaði þann 18. febrúar, 2013 | 12 ummæli

Liðið sem Sir Alex tefldi fram í kvöld var mikið breytt frá Real Madrid leiknum en engu að síðar voru það þrír bestu leikmennirnir úr þeim leik sem héldu sætum sínum og fengu enga hvíld, Welbeck, De Gea og Jones. Það var þó ekkert að sjá að liðið væri eitthvað varalið, United pressaði frá upphafi. Það varði þó aðeins fimm mínútur eða svo og síðan varð leikurinn nokkuð jafn og ef eitthvað var voru Reading menn meira með boltann. Nemanja þurfti meira að segja að sýna gamla takta í vörninni til að stoppa Reading. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur Reading 12
  • Page 1
  • Page 2
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress