• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Real Sociedad

Meistaradeild Evrópu

Manchester United 1:0 Real Sociedad

Magnús Þór skrifaði þann 23. október, 2013 | 13 ummæli

Það var gaman að sjá Own Goal mæta hressan til leiks í kvöld. Hann skoraði ófá mörkin fyrir okkur um árið.

Þessi sigur var sanngjarn, vægast sagt. Liðið spilaði mjög vel og ekki síst vörnin. Evans og Jones voru alveg með þetta og spurningin er hvenær en ekki hvort þeir muni verða miðvarðarpar númer eitt. Sociedad áttu engin alvöru færi, mestallt voru skottilraunir utan af velli sem besti markvörður ensku úrvalsdeildarinnar átti ekki í vandræðum með. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur Real Sociedad 13
Meistaradeild Evrópu

Manchester United tekur á móti Real Sociedad

Magnús Þór skrifaði þann 22. október, 2013 | 6 ummæli

Eftir vægast sagt svekkjandi frammistöðu og úrslit gegn Southampton á heimavelli um síðustu helgi er komið að öðrum heimaleik. Að þessu sinni mætum við Real Sociedad sem hafa ekki verið alltof sannfærandi í sinni deild og sitja nú í 12.sæti La Liga.

Danny Welbeck, Tom Cleverley, Nemanja Vidic og Rio Ferdinand eru tæpir vegna meiðsla en búist er við að einhverjir að þeim muni þó koma við sögu annað kvöld. Lesa meira

Efnisorð: Real Sociedad Upphitun 6
Meistaradeild Evrópu Pistlar

Andstæðingar og leikdagar í Meistaradeildinni

Magnús Þór skrifaði þann 30. ágúst, 2013 | 1 ummæli

FC Shakhtar Donetsk

Shakhtar eru Úkraínumeistarar, þeir hafa vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína í deild þeirra bestu. Fyrir utan Úkraínska leikmenn þá leikur mikill fjöldi Brasilíumanna með liðinu. Af þeim eru kannski Fred, Bernard, Luis Adriano og Douglas Costa þekktastir. Aðdáendur enska boltans muna kannski eftir króatíska brassanum Eduardo sem lék með Arsenal um árið, annar Króati, hinn öflugi Dario Srna leikur einnig með liðinu. Shakhtar unnu UEFA Cup árið 2009, áður en keppninni var breytt í Evrópudeildina (Europa League). Liðið hefur orðið meistari í heimalandinu 8 sinnum. Heimavöllur liðsins er Donbass Arena og tekur hann rúmlega 52.000 manns í sæti. Þjálfari liðsins er hinn rúmanski Mircea Lucescu sem einnig hefur þjálfað lið eins og Internazionale, Galatasaray, Besiktas og rúmenska landsliðið. Leikum gegn Shakhtar 2.október og 10.desember. Lesa meira

Efnisorð: Bayer Leverkusen Real Sociedad Shakhtar Donetsk 1
Meistaradeild Evrópu

Riðillinn okkar í Meistaradeildinni

Magnús Þór skrifaði þann 29. ágúst, 2013 | 2 ummæli

A riðill

Manchester United
Shakhtar Donetsk (ÚKR)
Bayer 04 Leverkusen (ÞÝS)
Real Sociedad (SPÁ)

Leikdagar:

Þri 17/9 Bayer Leverkusen (H)
Mið  2/10 Shakhtar Donetsk (Ú)
Mið  23/10  Real Sociedad (H)
Þri  5/11 Real Sociedad (Ú)
Mið 27/11 Bayer Leverkusen (Ú)
Þri 10/21 Shakhtar Donetsk (H)

Donetsk ferðalagið kemur á milli WBA og Sunderland leikja þannig þetta kemur alveg ágætleaa út

Hinir riðlarnir

B riðill: Real Madrid, Juventus, Galatasaray, FC Kaupmannahöfn
C riðill: Benfica, Paris Saint-Germain, Olympiakos, Anderlecht
D riðill: Bayern München, CSKA Moskva, Manchester City, Viktoria Plzen
E riðill: Chelsea, Schalke, Basel, Steaua Búkarest
F riðill: Arsenal, Borussia Dortmund, Marseille, Napoli
G riðill: Porto, Atlético Madrid, Zenit St Pétursborg, Austria Vín
H riðill: Barcelona, AC Milan, Ajax, Celtic Lesa meira

Efnisorð: Bayer Leverkusen Real Sociedad Shakhtar Donetsk 2
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Snjómaðurinn um Liðið í Manchester slagnum
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress