• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Scott McTominay

Evrópudeildin

Evrópuútsláttur hefst í Belgíu

Friðrik Már Ævarsson skrifaði þann 19. febrúar, 2020 | 1 ummæli

Þá er komið að því að Manchester United hefji Evrópukeppni á nýju ári þegar liðið heldur til Belgíu þar sem heimamenn í Club Brugge taka á móti okkur.

Um er að ræða fyrri viðureign liðanna í 32 liða úrlitum en eins og mörgum íslendingum er kunnugt lék Eiður Smári Guðjohnsen með liðinu í eitt og hálft tímabil 2013-2014.

Club Brugge KV er eitt allra stærsta liðið í Belgíu en sem stendur er liðið á toppi deildarinnar þar sem liðið siglir lygnan sjó með níu stiga forskot á liðið í öðru sæti. Liðið hefur einungis tapað einum deildarleik á tímabilinu og virðist allt stefna í að liðið verði meistari þrátt fyrir að hafa gert þrjú jafntefli í síðustu sex deildarleikjum. Lesa meira

Efnisorð: Club Brugge Eric Bailly Harry Maguire Odion Ighalo Ole Gunnar Solskjær Scott McTominay 1
Enska úrvalsdeildin

Sýnd veiði en ekki gefin þegar nýliðar Norwich koma í heimsókn

Friðrik Már Ævarsson skrifaði þann 10. janúar, 2020 | 1 ummæli

Þá er röðin komin að deildinni á nýjan leik eftir tvo leiki röð í bikarkeppnum. Eftir þrjá leiki á nýju ári er United enn að leita eftir fyrsta sigrinum en það sem af er ári hefur frammistaða liðsins verið langt undir pari. Tap gegn Arsenal og Manchester City og jafntefli í leik gegn Úlfunum þar sem United átti ekki skot á rammann (reyndar í rammann sem telur ekki) gefa ekki góð fyrirheit um það sem eftir lifir leiktíðar. Lesa meira

Efnisorð: Ole Gunnar Solskjær Paul Pogba Scott McTominay Teemu Pukki Todd Cantwell 1
Djöflavarpið

Djöflavarpið 75. þáttur – Glugginn er opinn en kemur einhver?

Magnús Þór skrifaði þann 5. janúar, 2020 | 8 ummæli

Maggi, Friðrik og Bjössi settust niður og tóku ítarlega umræða um Manchester United. Farið var yfir leikmannahópinn og frammistöðu lykilmanna. Einnig var rætt um hvaða stöðu þarf að styrkja strax í janúar.

https://open.spotify.com/episode/4tBhXKLi1joVAMS9oV1oZE

Við viljum endilega fá ykkar álit þannig að virk þáttaka í athugasemdarkerfinu er vel þegin.

Ef þið viljið senda okkur spurningar þá er það hægt að senda okkur skilaboð á Facebook síðu Rauðu djöflanna. Lesa meira

Efnisorð: Brandon Williams Ed Woodward Fred Harry Maguire Jesse Lingard Luke Shaw Ole Gunnar Solskjær Paul Pogba Scott McTominay Slúður Victor Lindelöf 8
Enska úrvalsdeildin

Borgarslagur á Etihad

Björn Friðgeir skrifaði þann 6. desember, 2019 | 1 ummæli

Það hefur verið þema undanfarið að þegar United liðið tekur eitt skref framávið með góðri frammistöðu í leik að sá árangur gengur til baka í næsta leik á eftir. Eftir góðan sigur gegn Tottenham í síðasta leik er því prófraunin meiri þegar haldið skal á Etihad á morgun.

Meistarar Manchester City hafa ekki verið mjög meistaralegir í haust og sitja í þriðja sæti, ellefu stigum á eftir meistarakandídötum Liverpool. Það hefur helst verið vörnin sem hefur veirð Akkilesarhæll City í vetur. Aymeric Laporte meiddist snemma í haust og verður frá fram yfir nýárið og skarð hans hefur ekki verið fyllt almennilega. Oleksandr Zinchenko hefur líka verið meiddur en verður hugsanlega með á morgun eftir sex vikna fjarveru. Hann kemur inn í vinstri bakvörð og það breytir því ekki að bæði Otaemendi og Stones hafa verið slakir í miðverðinum og því hefur Guardiola þurft að nota Fernandinho þar í stað annars hvors og miðjan þannig veikst. Lesa meira

Efnisorð: Fred Scott McTominay 1
Enska úrvalsdeildin

Mourinho snýr aftur á Old Trafford

Friðrik Már Ævarsson skrifaði þann 3. desember, 2019 | 1 ummæli

Þrjúhundruð og fimmtíu dögum eftir að José Mourinho var rekinn úr starfi sínu sem stjóri Manchester United, stígur hann aftur inn á Old Trafford en í þetta sinn sem arftaki þess stjóra sem margir töldu að yrði hans arftaki hjá United, Mauricio Pocchettino, sem varð þó ekki raunin.

Þess í stað tók norðmaðurinn knái, Ole Gunnar Solskjær, við liðinu eins og frægt er orðið en eftir frábæra byrjun þess norska hefur verulega tekið að halla undan fæti hvað varðar úrslit og spilamennsku. Lesa meira

Efnisorð: Jose Mourinho Mauricio Pochettino Ole Gunnar Solskjær Scott McTominay 1
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress